Bæjarstjóri biðst afsökunar vegna bílamálsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. febrúar 2011 15:42 Þetta er bíllinn sem bæjarstjórinn hefur til umráða.
Bæjarstjórinn í Kópavogi ætlar hér eftir að nota bílinn sem hún hefur til umráða í bænum ein, án þess að leyfa dóttur sinni eða öðrum aðgang að honum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bæjarstjórinn, Guðrún Pálsdóttir, hefur sent frá sér vegna umfjöllunar Fréttablaðsins um notkun á bílnum. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að bíll sem Kópavogsbær leggur Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra til sé notaður af nítján ára dóttur hennar. Sjálf noti Guðrún stundum aðra bíla bæjarins. Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ segir að ráðningarsamningur við bæjarstjórann sé sambærilegur þeim samningum sem gerðir hafa verið við forvera hennar í starfi. Í samningnum séu afnot af bíl hluti af starfskjörum hennar og borgi hún skatt af þeim hlunnindum. Fyrri bæjarstjórar hafi verið með bílastyrk. Hvergi sé í samningnum tilgreint hvernig notkun bifreiðarinnar skuli háttað. Bæjarstjóra sé það hins vegar mikilvægt að sameiginlegur skilningur ríki milli hennar og bæjarstjórnar á túlkun ráðningarsamningins. Hún hafi því lýst því yfir við forseta bæjarstjórnar, Hafstein Karlsson, að framvegis muni hún ein hafa afnot af bifreiðinni. „Ég tel mikilvægt að enginn vafi leiki á því að ég hafi og muni ávallt starfa af fullum heilindum fyrir bæjarbúa. Það er mikilvægt að ég njóti trausts þeirra og bæjarstjórnar enda starfa ég í þeirra umboði. Í ljósi þess að skilningur minn og bæjarfulltrúa á því hvernig nota megi bifreiðina er ekki sá sami, hef ég tekið af öll tvímæli um það að í framtíðinni muni ég ein nota bílinn. Ég biðst afsökunar á því að hafa túlkað ráðningarsamninginn á þann veg sem ég gerði og hef jafnframt óskað eftir því að hnykkt verði á umræddu ákvæði samningsins," segir Guðrún í tilkynningunni. Undir það tekur Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar. Hann segir að Guðrún njóti áfram trausts og stuðnings meirihlutans í bænum."
Mest lesið Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Erlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Erlent Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Erlent Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Erlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Innlent Fleiri fréttir Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Sjá meira