Menning

Ávaxtafjör fyrir blessuð börnin

í fyrsta sinn í bíó Ólöf Jara og Matti Matt eru meðal þeirra sem fara með hlutverk í bíómyndinni um Ávaxtakörfuna sem verður frumsýnd í bíóhúsunum á morgun.
í fyrsta sinn í bíó Ólöf Jara og Matti Matt eru meðal þeirra sem fara með hlutverk í bíómyndinni um Ávaxtakörfuna sem verður frumsýnd í bíóhúsunum á morgun.
Íslenska barnaleikritið um ávextina í Ávaxtakörfunni hefur nú verið flutt af sviði yfir á hvíta tjaldið í fyrsta skipti og verður bíómyndin frumsýnd á morgun.

Það er margt stórra nafna sem fer með hlutverk ávaxtanna hressu sem hafa alltaf góðan boðskap fram að færa. Ólöf Jara Skagfjörð fer með hlutverk jarðarbersins sem lagt er í einelti af hinum ávöxtunum, Matti Matt leikur hinn stjórnsama og sjálfumglaða Imma ananas, Helga Braga er ofurskipulagða rauða eplið og Ágústa Eva Erlendsdóttir kemur fram í gervi Evu appelsínu sem sér fátt annað en sjálfa sig. Birgitta Haukdal kemur svo inn í hópinn sem Gedda gulrót, grænmetið sem þykir ekki eiga heima innan um alla ávextina. Þetta eru bara nokkrir þeirra færu listamanna sem leggja sitt á plóginn í myndinni sem er full af tónlist eftir Þorvald Bjarna.

Ýmsar nýjungar verða kynntar til leiks í myndinni sem ekki þekkjast úr leikritinu, þar á meðal eru nokkur ný lög og Mygluholan ógurlega. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu af yngstu kynslóðinni og óhætt er að ætla að bíóhúsin muni fyllast af litlum og spenntum aðdáendum um helgina, í fylgd foreldra sinna. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×