Menning

Bendir á ólíkar leiðir til að njóta tónlistar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Árni Heimir kann sögu tónlistarinnar upp á sína tíu fingur.
Árni Heimir kann sögu tónlistarinnar upp á sína tíu fingur. Mynd/úr einkasafni
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands stendur að fyrirlestrinum „101 Klassísk tónlist“. Þar fræðir Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur gesti um sinfóníuformið, stiklar á stóru í sögu klassískrar tónlistar og bendir á ólíkar leiðir til að njóta hennar.

Kynningin er sérstaklega ætluð þeim sem hafa lítil kynni haft af klassískri tónlist en hafa áhuga á að kynnast þeim töfrum sem hún býr yfir.

Árni Heimir lauk doktorsprófi í tónlistarfræði frá Harvard-háskóla árið 2003 og starfar sem listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann vinnur nú að bókinni Saga tónlistarinnar, sem kemur út hjá Forlaginu snemma á næsta ári.

Aðgangur er ókeypis að fyrirlestri Árna Heimis sem er í Kaldalóni í Hörpu í kvöld klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.