Serbnesku stelpurnar í úrslitaleikinn á EM eftir spennuleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2015 17:54 Úr leiknum í kvöld. Vísir/AFP
Serbía spilar til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir tveggja stiga sigur á Hvíta-Rússlandi, 74-72, í fyrri undanúrslitaleiknum á EM í Ungverjalandi. Leikurinn var æsispenandi og úrslitin réðust ekki fyrr en í lokasókninni þegar Hvíta-Rússlandi mistókst að nýta síðustu sóknina í leiknum. Ana Dabović, sem spilar með Ormanspor í Tyrklandi, var stigahæst í serbneska liðinu með 21 stig en eldri systir hennar og fyrirliði liðsins, Milica Dabović, skoraði 12 stig. Þær Sonja Petrović og Jelena Milovanović skoruðu báðar 14 stig. Yelena Leuchanka, sem spilar með tyrkneska liðinu Yakin Dogu, var atkvæðamest hjá Hvít-Rússum með 22 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar, Katsiaryna Snytsina skoraði 11 stig og hin "bandaríska" Lindsey Harding var með 10 stig og 6 stoðsendingar. Hvít-Rússar voru með forystuna hluta leiksins, voru tveimur stigum yfir í hálfleik, 38-36, og náðu síðan sex stiga forskoti í upphafi seinni hálfleiksins. Serbneska liðið kom hinsvegar til baka og var sterkara á spennandi lokamínútum leiksins. Serbnesku stelpurnar unnu ekki sinn riðil í riðlakeppninni og voru fjórða liðið inn í átta liða úrslitin en engu að síður komnar alla leið í úrslitaleikinn. Serbía mætir annaðhvort Spáni eða Frakklandi í úrslitaleiknum en liðin sem komust í úrslitaleikinn fyrir tveimur árum mætast í seinni undanúrslitaleiknum seinna í kvöld. Serbía hefur aldrei spilað til úrslita á EM kvenna síðan Júgóslavía liðaðist í sundur en júgóslavneska kvennalandsliðið vann silfur á Evrópumótinu 1991.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira