Jakob vann stórsigur á Hlyni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2015 19:42 Jakob Sigurðarson í leik á Eurobasket. Vísir/Getty
Jakob Sigurðarson fagnaði stórum sigri á móti sínum gömlu félögum í Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Borås Basket vann leikinn með 29 stiga mun, 101-72, og tók með því þriðja sætið af Hlyni Bæringssyni og hinum drekunum í Sundsvall. Jakob Sigurðarson var með 17 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar í kvöld en Hlynur Bæringsson skoraði 9 stig, tók 15 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Jakob skoraði tvær þriggja stiga körfur og alls átta stig í lokaleikhlutanum sem sáu til þess að sigurinn var nægilega stór til að Borås Basket komst upp fyrir Sundsvall Dragons á betri árangri í innbyrðisviðureignum. Jakob og félagar hefndu með þessu fyrir 19 stiga skell í síðasta leiknum sínum á móti Drekunum en sá leikur fór fram í Sundsvall. Borås Basket hafði mikla yfirburði í leiknum, var komið 28-21 eftir fyrsta leikhlutann og vann á endanum alla fjóra leikhlutana. Borås var með fimmtán stiga forskot í hálfleik, 51-36. Þetta var annað tap Sundsvall Dragons í röð en liðið tapaði með 20 stiga mun á móti Norrköping Dolphins í leiknum á undan. Sundsvall Dragons hefur unnið 8 af 13 fyrstu deildarleikjum sínum á tímabilinu en Borås er með átta sigra í tólf fyrstu leikjum sínum.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira