Strákarnir okkar mæta Dirk Nowitzki á EM í Berlín Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. júní 2015 10:09 Dirk Nowitzki er einn stigahæsti leikmaður NBA frá upphafi. vísir/epa
Dirk Nowitzki, leikmaður Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta, staðfesti á blaðamannafundi í Frankfurt í morgun að hann verður með þýska landsliðinu á EM í sumar. Þetta styrkir þýska liðið, sem verður á heimavelli, augljóslega mikið, en Nowitzki hefur einu sinni verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og hefur unnið hana með Mavericks. Það er því ljóst að strákarnir okkar mæta einni skærustu körfuboltastjörnu heims, en Þýskaland spilar í riðli með Íslandi, Ítalíu, Serbíu, Tyrklandi og Spáni á EM. Riðilinn verður spilaður í Berlín og eru vitaskuld fleiri NBA-stjörnur í hinum landsliðunum eins og Gasol-bræðurnir hjá Spáni.Dirk verður með á EM — Jón Arnór Stefánsson (@jonstef9) June 4, 2015 Nowitzki hefur legið undir feldi í nokkrar vikur, en hann sagðist þurfa að ræða ákvörðunina við þjálfarann sinn, foreldra, eiginkonu og Marc Cuban, eiganda Mavericks. „Ég kýs að vera í Berlín. Ég notaði maí til að koma mér aðeins frá körfuboltanum sem hjálpaði mér að taka þessa ákvörðun. Þetta verður frábær endir á mínum landsliðsferli,“ sagði Nowitzki við mikinn fögnuð áhorfenda í salnum. Nowitzki hefur ekki spilað í síðustu 141 landsleik fyrir Þýskaland, en hann var síðast með á EM 2011 í Ltiháen. Hann tók þátt á Ólympíuleikunum 2008 og vann til bronsverðlauna með Þýskalandi á HM 2002 og EM 2005.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira