Menning

Andlegt anarkí í Tjarnarbíói

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Gunný Ísis Magnúsdóttir
Gunný Ísis Magnúsdóttir Vísir/GVA
,,Ég fíla svo vel þetta andlega anarkí sem ríkir í svitahofinu,” segir Gunný Ísis Magnúsdóttir, nemi í þjóðfræði, sem frumsýnir sína fyrstu heimildamynd Svitahof, í Tjarnarbíói annað kvöld klukkan níu.

,,Svitahof er ný íslensk heimildarmynd um svokölluð svitahof, eða sweat lodge á ensku, og þá menningu sem myndast hefur í kringum hofið,” segir Gunný, en kvikmyndin er hluti lokaverkefnis Gunnýjar í mastersnámi sínu. Ítarlegt viðtal við Gunný var í helgarblaði Fréttablaðsins seint á síðasta ári.

Gunný hefur síðastliðin þrjú ár unnið við gerð heimildarmyndarinnar ásamt tökumanninum Jóni Má Gunnarssyni. Gunný hefur lagt áherslu í námi sínu í þjóðfræði að rannsaka jaðarmenningu, með tilliti til valds og menningar í grasrótarmenningu.

Svitahofið er ein birtingarmynd grasrótarmenningar og hefur verið stundað hér á landi í um það bil þrjátíu ár. Hópurinn sem stundar svett, eins og það er gjarnan kallað, fer vaxandi og verður sífellt fjölbreyttari.

Gunný hefur sjálf lengi stundað svitahofið, en þetta er hennar fyrsta heimildamynd.



Svitahofið hefur uppruna sinn í menningu Indjána Norður-Ameríku. 

Á Íslandi hefur svitahofið verið stundað í um það bil 30 ár og fer sá hópur sem sækir í svitahofið sífellt vaxandi.

Tilgangurinn með svitahofinu er að hreinsa anda og líkama í tengslum við náttúrukraftana og endurfæðast á táknrænan hátt. Í kvikmyndinni er athöfninni fylgt eftir og viðtöl við aðilla sem hafa stundað svitahofið hér á landi og erlendis í fjölda ára






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.