Háloftafuglinn úr Vesturbænum minnir á sig | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. desember 2015 14:45 Kristófer Acox í háloftunum með íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum í sumar. vísir/stefán
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Furman unnu sannfærandi sigur gegn Liberty-háskólanum 79-56, í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt. Furman hefur verið á fínum skriði að undanförnu og vann í nótt þriðja sigurinn í röð. Liðið er nú í heildina búið að vinna fimm leiki og tapa þremur. Kristófer Acox átti flottan leik og var nálægt tvennu með þrettán stig og níu fráköst á þeim 20 mínútum sem hann spilaði. Hann var frákastahæstur í sinni deild á síðustu leiktíð. Þessi ungi vesturbæingur er mikill háloftafugl enda gríðarlegur íþróttamaður með mikið vænghaf og rosalegan stökkkraft. Hann minnti heldur betur á hæfileika sína í loftinu þegar hann tróð með tilþrifum svo karfan hristist í byrjun seinni hálfleiks. Þá kom hann sínum mönnum í 42-30. Það helsta úr leiknum má sjá í myndbandinu hér að neðan en troðslan hjá Kristófer kemur eftir 36 sekúndur.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira