Markvörður Stjörnunnar hjálpaði Jamaíku að vinna Síle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2016 11:30 Duwayne Kerr. Vísir/Getty
Duwayne Kerr gat ekki verið með Stjörnunni í bikarleiknum á móti Víkingi Ólafsvík í vikunni af því að hann er upptekinn með landsliði Jamaíka sem er á leiðinni í Ameríkukeppnina í næsta mánuði. Duwayne Kerr spilaði seinni hálfleikinn í nótt þegar Jamaíka vann 2-1 útisigur á Síle í vináttulandsleik í Vina del Mar. Clayton Donaldson og Joel Grant skoruðu mörkin. Jamaíka var 1-0 yfir í hálfleik þegar Duwayne Kerr kom inná sem varamaður fyrir Ryan Thompson en hann spilar með Saint Louis í USL-deildinni í Bandaríkjunum. Jamaíka komst síðan í 2-0 á 53. mínútu áður en Nicolás Castillo náði að skora hjá Duwayne Kerr átta mínútum fyrir leikslok. Kerr hafði áður fengið gula spjaldið á 60. mínútu leiksins. Arsenal-maðurinn Alexis Sánchez lék allan leikinn með Síle en náði ekki að koma boltanum framhjá markverði Stjörnunnar. Jamaíka er í riðli með Úrúgvæ, Mexíkó og Venesúela í Ameríkukeppninni og er fyrsti leikurinn á móti Venesúela 5. júní næstkomandi. Keppnin verður sýnd beint á Stöð 2 Sport. Edinson Cavani, leikmaður Paris-Saint Germain, skoraði tvö mörk fyrir Úrúgvæ í 3-1 sigri á Trínidad og Tóbagó en þriðja markið skoraði Matías Vecino sem spilar með Fiorentina á Ítalíu. Luis Suarez er meiddur og spilaði ekki með Úrúgvæ í leiknum. Gonzalo Higuaín heldur áfram að raða inn mörkum en hann tryggði Argentínu 1-0 sigur á Hondúras á 31. mínútu eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Manchester United manninum Marcos Rojo. Gonzalo Higuaín setti markamet á Ítalíu á tímabilinu með því að skora 36 mörk fyrir Napoli. Lionel Messi lék fyrstu 64 mínúturnar í leiknum.
Fótbolti Mest lesið Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Körfubolti Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Körfubolti „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Körfubolti Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Ólympíufari eftirlýstur af FBI fyrir morð og eiturlyfjasmygl Sport Íslenska ungmennaliðið vann Evróputitilinn Sport „Hann kýldi mig“ Körfubolti Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Fótbolti Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Körfubolti Nýir þjálfarar drepi alla sköpun Fótbolti Fleiri fréttir Sara öflug og komst áfram í bikarnum Mainoo frá í nokkrar vikur Fanney sögð á leið til Svíþjóðar Nýir þjálfarar drepi alla sköpun Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Tvær breytingar á Bandaríkjahópnum Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Messi: Hamingjan skiptir mig meira máli en að spila á HM 2026 Fótboltinn þurfi að njóta vafans hjá Val: „Er mjólkurkýr félagsins“ Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Börkur hló spurður um framboð: „Talandi um að fara úr öskunni í eldinn“ Sveindís og Amanda áttu strembið Meistaradeildarkvöld Ómar Björn áfram í Bestu deildinni Aðeins tvöfaldur espressó gegn Íslandi Myndasyrpa: Fyrsta skóflustungan tekin og Ásmundur á traktornum Pogba segir að danssagan sé lygi Færeyingar ráku þjálfara sinn Fyrsta skóflustungan tekin á Laugardalsvelli í dag Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Paul Pogba: Reiðin mun hjálpa mér Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Árni tekur við Fylki af Rúnari Úrslitaleikurinn um titilinn spilaður undir ljósunum Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Sædís Rún mátti þola tap gegn Arsenal og Barcelona skoraði átta Glódís Perla og stöllur sóttu sigur til Ítalíu Hinn síungi Matthías framlengir í Víkinni Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Myndasyrpa: Dómarinn í Crocs skóm þegar gamla grasið var kvatt Sjá meira