Maðurinn sem bjargaði Leicester City loksins búinn að fá nýtt starf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2016 17:45 Nigel Pearson og Jamie Vardy. Vísir/AFP
Claudio Ranieri er vissulega knattspyrnustjórinn sem gerði Leicester City að Englandsmeisturum í fyrsta sinn á nýloknu tímabili en Ítalinn hefði aldrei verið í aðstöðu til þess ef ekki hefði verið fyrir starf forvera hans, Nigel Pearson. Nigel Pearson hefur verið atvinnulaus síðan að hann var rekinn frá Leicester City 30. júní 2015 en í dag fékk hann loksins nýtt starf. Það verður síðan spennandi að fylgjast með framhaldinu. Guardian segir frá því að Pearson hafi skrifað undir þriggja ára samning við B-deildarlið Derby County í dag. Derby County endaði í 5. sæti í ensku b-deildinni í vetur og datt síðan út fyrir Hull City í undanúrslitum umspilsins þar sem 2-0 sigur í seinni leiknum dugði ekki. Það eru tvær ástæður til að halda því fram að Englandsmeistarar Leicester City væru ekki í ensku úrvalsdeildinni ef Nigel Pearson hefði ekki notið við. Hann kom liðinu í fyrsta lagi upp í ensku úrvalsdeildina með því að vinna b-deildina tímabilið 2013–14 og hélt síðan Leicester uppi á magnaðan hátt þegar liðið var nýliði í ensku úrvalsdeildinni 2014-15. Nigel Pearson yfirgaf Leicester City aftur á móti óvænt síðasta sumar eftir ósætti við eigendur félagsins. Hann hafði þó með ótrúlegum endaspretti tekist að stýra liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Leicester City var í vonlitli stöðu á botni deildarinnar stærsta hluta tímabilsins og allt leit út fyrir að liðið myndi falla. Nigel Pearson tókst hinsvegar að kveikja í liðinu í lok tímabilsins og liðið bjargaði sér frá falli með því að vinna sjö af síðustu níu leikjum sínum tímabilið 2014-15. Claudio Ranieri byggði ofan á starf Nigel Pearson og úr varð eitt mesta fótboltaævintýri sögunnar.
Enski boltinn Mest lesið Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Körfubolti Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Körfubolti „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Körfubolti Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Ólympíufari eftirlýstur af FBI fyrir morð og eiturlyfjasmygl Sport Íslenska ungmennaliðið vann Evróputitilinn Sport „Hann kýldi mig“ Körfubolti Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Fótbolti Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Körfubolti Nýir þjálfarar drepi alla sköpun Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Sjá meira