Klopp vill Mané eftir að missa af Götze Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. maí 2016 11:00 Sadio Mané hefur spilað vel fyrir Southampton síðustu tvö ár. vísir/getty
Eftir að ná ekki að landa Mario Götze frá Bayern München vill Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, nú fá Senegalann Sadio Mané til liðsins í sumar. Þetta kemur fram á vef Guardian en Mané verður eftirsóttur í sumar. Manchester United hefur viljað fá hann í sínar raðir í nokkra mánuði og þá er Tottenham einnig sagt áhugsamt. Þrátt fyrir að vera tekinn úr liðinu hjá Ronald Koeman í byrjun árs og skora ekki mark í fjóra mánuði endaði Mané samt sem markahæsti leikmaður Dýrlinganna í öllum keppnum með 15 mörk. Hann er búinn að skora 21 deildarmark á síðustu tveimur leiktíðum eftir að hann kom til Southampton frá Red Bull Salzburg. Klopp er að leita að framliggjandi miðjumanni eða kantmanni sem ræður við orkumikinn leikstíl Liverpool-liðsins og þess vegna var hann á eftir Götze. Liverpool bauð Bayern 20 milljónir punda fyrir þýska landsliðsmaninn. Liverpool var vongott um að fá Götze áður en skipti um umboðsmann og lýsti því yfir í síðustu viku að hann ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Bayern undir stjórn nýs þjálfara, Carlo Ancelotti. Mané mun væntanlega kosta mun meira en 20 milljónir punda en hann er með samning hjá Southampton til 2018 á meðan Götze verður samningslaus næsta sumar.
Enski boltinn Mest lesið Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Körfubolti Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Körfubolti „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Körfubolti Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Ólympíufari eftirlýstur af FBI fyrir morð og eiturlyfjasmygl Sport Íslenska ungmennaliðið vann Evróputitilinn Sport „Hann kýldi mig“ Körfubolti Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Fótbolti Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Körfubolti Nýir þjálfarar drepi alla sköpun Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Sjá meira