Enski boltinn

Sky Sports fullyrðir að Mourinho sé búinn að skrifa undir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mourinho hefur verið hundeltur af blaða- og fréttamönnum undanfarna daga.
Mourinho hefur verið hundeltur af blaða- og fréttamönnum undanfarna daga. vísir/getty
Sky Sports fullyrðir að José Mourinho sé búinn að skrifa undir samning við enska úrvalsdeildarliðið Manchester United.

Sky Sports segir að Mourinho hafi hitt Ed Woodward, stjórnarformann United, á hóteli í London og skrifað undir samninginn.

Mourinho tekur við starfi knattspyrnustjóra United af Louis van Gaal en Hollendingurinn var rekinn fyrr í vikunni eftir tvö ár í starfi.

United verður annað liðið sem Mourinho stýrir á Englandi en hann var áður stjóri Chelsea, fyrst 2004-2007 og svo 2013-15. Portúgalinn gerði Chelsea þrisvar sinnum að Englandsmeisturum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×