Leicester City búið að selja sinn dýrasta leikmann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2016 16:30 Andrej Kramaric. Vísir/Getty
Króatinn Andrej Kramaric var í dag seldur frá Leicester City til þýska liðsins 1899 Hoffenheim en þar með hafa ensku meistararnir látið dýrasta leikmann í sögu félagsins fara frá félaginu eftir aðeins 15 spilaða leiki. Leicester City keypti Andrej Kramaric frá króatíska félaginu HNK Rijeka fyrir níu milljónir punda í janúar 2015. Leicester City borgaði 9 milljónir punda fyrir framherjann og hafði aldrei borgað meira fyrir einn leikmann. Kramaric gerði þriggja og hálfs árs samning við enska félagið sem átti þar með að gilda út 2017-18 tímabilið. Hann entist þó bara á King Power Stadium í eitt ár. Andrej Kramaric skoraði 2 mörk í 13 leikjum á 2014-15 tímabilinu en hann spilaði síðan aðeins tvo leiki á meistaratímabili Leicester City og var síðan lánaður til 1899 Hoffenheim 20. janúar. Andrej Kramaric skoraði 5 mörk í 12 leikjum með Hoffenheim og stóð sig það vel að Þjóðverjarnir vildu halda honum. Félögin hafa nú náð samkomulagi um félagsskipti hans eins og kom fram á Twittersíðu Leicester City. Andrej Kramaric hefði þurft að spila þrjá leiki í viðbót til að fá gullmedalíu fyrir sigur Leicester City í ensku úrvalsdeildinni á nýloknu tímabili en hann spilaði bara tvo leiki sem þýðir að hann fær enga minjagrip um Leicester-ævintýrið í vetur. Dýrasti leikmaðurinn í sögu Leicester City sem er enn á málum hjá félaginu er nú Argentínumaðurinn Leonardo Ulloa sem Leicester City borgaði Brighton & Hove Albion átta milljónir fyrir.CONFIRMED: Andrej Kramarić has completed a permanent move to German Bundesliga outfit Hoffenheim. More follows... pic.twitter.com/UNiQ374ZYz— Leicester City (@LCFC) May 25, 2016
Enski boltinn Mest lesið Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Körfubolti Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Körfubolti „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Körfubolti Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Íslenska ungmennaliðið vann Evróputitilinn Sport Ólympíufari eftirlýstur af FBI fyrir morð og eiturlyfjasmygl Sport „Hann kýldi mig“ Körfubolti Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Fótbolti Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Körfubolti Í beinni: Þór Þ. - KR | Þrususlagur í Þorlákshöfn Körfubolti Fleiri fréttir Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Sjá meira