Mourinho seldi Mata frá Chelsea til United og ætlar líka að losa hann núna Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. maí 2016 09:15 Juan Mata er á útleið. vísir/getty
Juan Mata og Daley Blind verða báðir seldir frá Manchester United í sumar en þeir eru ekki í framtíðaráforum José Mourinho á Old Trafford. Þetta hefur Sky Sports eftir heimildum. Mourinho er sagður tilbúinn til að selja bæði hollenska varnarmanninn og spænska miðjumanninn berist sómasamleg tilboð í þá en hann ætlar sér að kaupa leikmenn sem fylla í þeirra skörð. José Mourinho var knattspyrnustjóri Chelsea þegar félagið seldi Juan Mata til Manchester United í janúar 2014 en aðeins sex mánuðum áður var hann valinn leikmaður ársins hjá Chelsea annað árið í röð. Mourinho var óánægður með vinnuframlag Mata á vellinum og þá fannst honum Spánverjinn ekki passa inn í skipulag sitt. Sky Sports telur sig hafa heimildir fyrir því að Portúgalinn sé enn á sömu skoðun. Daley Blind, sem kostaði Manchester United fjórtán milljónir punda, er sagður ekki vera nógu líkamlega sterkur. Mourinho vill hafa mun sterkari miðverði í sínu liði en Hollendingurinn spilaði stærstan hluta síðasta tímabils sem miðvörður og stóð sig vel. Mourinho mætti á Carrington, æfingasvæði Manchester United, í gær og er nú þegar byrjaður að vinna í leikmannamálum. Ljóst er að hópurinn mun breytast töluvert ætli Mourinho að ná sínum leikstíl fram á Old Trafford.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Körfubolti „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Körfubolti Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Körfubolti Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport „Hann kýldi mig“ Körfubolti Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Körfubolti Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Handbolti „Hann var eitthvað að tala og svo lét hann höggin tala“ Körfubolti Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Fótbolti Börkur hló spurður um framboð: „Talandi um að fara úr öskunni í eldinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Sjá meira