Enski boltinn

Di Matteo tekur við Aston Villa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Roberto di Matteo.
Roberto di Matteo. vísir/getty
Aston Villa tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Roberto di Matteo sem knattspyrnustjóra liðsins.

Di Matteo tekur við liðinu af Remi Garde sem fór með Villa lóðrétt niður í ensku B-deildina í vetur.

Di Matteo vann Meistaradeildina með Chelsea árið 2012. Aðstoðarmaður hans hjá Chelsea, Steve Clarke, verður með honum hjá Villa.

Ítalinn var síðast þjálfari hjá þýska félaginu Schalke en hann hefur einnig þjálfað Milton Keynes Dons og WBA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×