Enski boltinn

Besiktas býður í Skrtel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skrtel missti sæti sitt í Liverpool-liðinu seinni hluta síðasta tímabils.
Skrtel missti sæti sitt í Liverpool-liðinu seinni hluta síðasta tímabils. vísir/getty
Samkvæmt frétt Daily Mail hefur tyrkneska liðið Besiktas boðið Liverpool sjö milljónir punda fyrir varnarmanninn Martin Skrtel.

Slóvakinn er ekki talinn eiga sér framtíð á Anfield Road en Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, notaði hann afar sparlega á seinni hluta síðasta tímabils.

Skrtel hefur verið í herbúðum Liverpool frá árinu 2008 og leikið 320 leiki fyrir félagið í öllum keppnum.

Skrtel er fyrirliði slóvakíska landsliðsins sem undirbýr sig nú af kappi fyrir EM í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×