Enski boltinn

Leicester semur við heimsmeistara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zieler lék alla deildarleiki Hannover á síðasta tímabili.
Zieler lék alla deildarleiki Hannover á síðasta tímabili. vísir/getty
Englandsmeistarar Leicester City hafa gengið frá kaupunum á þýska markverðinum Ron-Robert Zieler frá Hannover 96.

Zieler, sem er 27 ára gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning við Leicester en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Þjóðverjinn mun berjast um markvarðastöðuna hjá Englandsmeisturunum við Kasper Schmeichel.

Zieler lék alla 34 leiki Hannover á síðasta tímabili en liðið endaði í 18. og neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og féll niður um deild.

Zieler hefur leikið sex landsleiki fyrir Þýskaland en hann var hluti af þýska liðinu sem varð heimsmeistari í Brasilíu fyrir tveimur árum.

Zieler var um tíma á mála hjá Manchester United en spilaði þó aldrei fyrir aðallið félagsins. Hann spilaði með Danny Drinkwater, Danny Simpson, Ritchie De Laet og Matty James, núverandi leikmönnum Leicester, í vara- og unglingaliðum United




Fleiri fréttir

Sjá meira


×