Vandræði Tottenham í deildinni halda áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 9. mars 2019 17:00 Yann Valery fagnar sínu marki. vísir/getty Vandræði Tottenham halda áfram í ensku úrvalsdeildinni en í dag tapaði liðið fyrir Southampton á útivelli 2-1 eftir að hafa komist í 1-0 forystu. Harry Kane kom Tottenham yfir á 26. mínútu og þannig var staðan í hálfleik en stundarfjórðungi fyrir leikslok jafnaði Yann Valery metin. Yann var einnig á skotskónum gegn United á dögunum. Sigurmarkið kom svo níu mínútum fyrir leikslok en það gerði James Ward Prowse beint úr aukaspyrnu. Lokatölur 2-1 og Ralph Hasenhuttl heldur áfram að gera flotta hluti með Southampton.Coming to a cinema near you: Whip It Like Ward-Prowse. pic.twitter.com/fd1Nhicm3c — Squawka News (@SquawkaNews) March 9, 2019 Tottenham er nú í þriðja sætinu með 61 stig og eru þremur stigum á undan Manchester United sem getur komist upp að hlið Tottenham með sigri gegn Arsenal á morgun. Southampton er hins vegar komið með 30 stig og er nú tveimur stigum á undan Cardiff sem er í átjánda sæti deildarinnar. Enski boltinn