Innlent

Úr­skurðaður í gæslu­varð­hald til 30. ágúst

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Frá Norðfirði í gær.
Frá Norðfirði í gær. Vísir/Hjalti

Fallist hefur verið á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald og einangrun til 30. ágúst yfir manni sem handtekinn var í tengslum við andlát hjóna á Neskaupstað. Krafan var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Lögreglan á Austurlandi greinir frá þessu.

Margt er enn óljóst um málsatvik en komið hefur fram að lögregla telji sig hafa nokkuð skýra mynd af málinu og hverjir komi að því. Ekki er grunur um að fleiri tengist málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×