Fótbolti

Brasilíu­menn í basli í undan­keppni HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vinicius Jr. er langt frá því að sýna það sama með brasilíska landsliðinu og hann gerir venjulega með Real Madrid.
Vinicius Jr. er langt frá því að sýna það sama með brasilíska landsliðinu og hann gerir venjulega með Real Madrid. Getty/Lucas Figueiredo

Brasilía og Argentína töpuðu leikjum sínum í undankeppni HM 2026 í fótbolta í nótt en það er óhætt að segja að staða liðanna sé gjörólík.

Argentína er enn í toppsætinu þrátt fyrir 2-1 tap á móti Kólumbíu en Kólumbíumenn eru núna tveimur stigum á eftir heimsmeisturunum. Kólumbía hefur enn ekki tapað í undankeppninni (4 sigrar og 4 jafntefli).

James Rodriguez tryggði Kólumbíu sigurinn með marki úr vítaspyrnu en argentínska liðið lék án Lionel Messi sem er meiddur. Þetta var í fyrsta sinn síðan 2019 sem Kólumbía nær að vinna Argentínu.

Yerson Mosquera kom Kólumbíu í 1-0 á 25. mínútu en Nico Gonzalez jafnaði á 48. mínútu eftir varnarmistök. James skoraði síðan úr vítaspyrnu á 60. mínútu og það reyndist vera sigurmarkið í leiknum.

James Rodriguez fagnar hér sigurmarki sínu á móti Argentínumönnum í nótt.Getty/Eurasia Sport Images

Brasilía tapaði á sama tíma 1-0 á útivelli á móti Paragvæ. Diego Gómez skoraði eina mark leiksins á 20. mínútu. Brasilíska liðið er með ekkert sjálfstraust þessa dagana og náði ekki einu sinni skoti á mark í fyrri hálfleiknum.

Þetta var enn einn leikurinn þar sem Vinicius Jr var ekki nálægt því að sýna það sama og hann gerir með Real Madrid.

Þetta var líka fjórða tap Brasilíumanna í síðustu fimm leikjum þeirra í undankeppninni og þeir eru nú með fleiri töp (4) en sigra (3) í fyrstu átta leikjum hennar. Það þýðir að brasilíska liðið er í fimmta sætið með tíu stig alveg eins og Venesúela sem er í sjötta sætinu.

Sex efstu þjóðirnar fara beint á HM en sjöunda sætið fer í umspil á milli álfanna. Paragvæ er stigi á eftir Brasilíu og Venesúela eftir þennan sigur.

Brasilíumenn hafa verið með á öllum heimsmeistarakeppnum sögunnar og oftast hafa þeir tryggt sér sætið með sannfærandi hætti.

Nú er aftur á móti mikil pressa á liðinu í næsta glugga í október þar sem liðið mætir Síle á útivelli og Perú á heimavelli. Þetta er tvær neðstu þjóðirnar í suður-ameríska undanriðlinum en kannski sýnd veiði en ekki gefin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×