Innlent

Bein út­sending: For­menn flokka funda með for­seta Ís­lands

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bjarni Benediktsson ræði við fréttamenn fyrir utan Bessastaði í morgun, mánudaginn 14. október 2024.
Bjarni Benediktsson ræði við fréttamenn fyrir utan Bessastaði í morgun, mánudaginn 14. október 2024. Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands klukkan níu til að óska eftir þingrofi sem hann vonast til að geti formlega átt sér stað á fimmtudag. Verði af því munu kosningar að öllum líkindum fara fram í lok næsta mánaðar. 

Halla sagði að loknum fundinum með Bjarna ætla að ræða við formenn annarra flokka. Hún fundar með formönnum stjórnarandstöðunnar í dag og er fyrsti fundurinn með Kristrúnu Frostadóttur klukkan 10:30.

Vísir verður í beinni útsendingu frá fundahöldunum í dag þar sem Heimir Már Pétursson stendur vaktina. 

Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki strax ráð að endurhlaða síðunni:




Fleiri fréttir

Sjá meira
×