Erlent

Tuga kíló­metra slóð á hafs­botni hjá skemmda sæstrengnum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Olíuskipið Eagle S er hluti af rússneskum skuggaflota.
Olíuskipið Eagle S er hluti af rússneskum skuggaflota. AP/Jussi Nukari

Grunur leikur á að tuga kílómetra löng slóð sem fannst á hafsbotni tengist mögulegum skemmdarverkum á sæstreng. Finnar rannsaka nú málið.

Sæstrengurinn í Eystrasalti sem liggur á milli Finnlands og Eistlands bilaði á jóladagskvöld. Snemma kom upp grunur á að um skemmdarverk væri að ræða.

Olíuflutningaskipið Eagle S, sem er hluti af svokölluðum rússneskum „skuggaflota“ sigldi þá óvenju hægt fram hjá strengnum þegar atvikið átti sér stað. Skipið var á leið frá Sankti Pétursborg til Egyptalands. 

Finnsk yfirvöld grunar að olíuskipið hafi eitthvað að gera með bilunina. Þá fannst löng slóð á hafsbotni.

Slóðin er tuga kílómetra löng og gefa vísbendingar til kynna að hún sé eftir akkeri Eagle S sem hafi verið dregið eftir hafsbotninum. Slóðin endaði þar sem skipverjar Eagle S drógu upp akkerið. Finnski ríkismiðillinn Yle greinir frá

„Slóðin endaði þar sem skipið dró upp akkerið. Og frá þeim punkti er slóð í austurátt sem heldur áfram í nokkuð tugi kílómetra, og gæti jafnvel verið nálægt hundrað kílómetrum,“ sagði Sami Paila sem er yfir rannsókninni í samtali við Yle.

Finnska rannsóknarstofnun ríkisins er nú um borð skipsins þar sem þeir framkvæma rannsókn. Eagle S er innan landhelgi Finna og er í gildi flugbann í þriggja kílómetra radíus frá skipinu. Slæmt veður var í Finnlandi í gær og því þurfti að fresta rannsókninni.

Rannsakendur notuðu kafbáta og neðansjávarmyndavélar til að skoða hafsbotninn. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×