Fótbolti

Á­frýjun Barcelona hafnað og tíminn að renna út

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Klukkan tifar og á morgun mun leikheimild Olmo renna út. Hann mun þá geta sagt upp samningi sínum og rætt við önnur lið. 
Klukkan tifar og á morgun mun leikheimild Olmo renna út. Hann mun þá geta sagt upp samningi sínum og rætt við önnur lið.  Irina R. Hipolito/Getty Images

Dani Olmo mun að öllu óbreyttu missa leikheimild sína með Barcelona á morgun. Liðið áfrýjaði ákvörðun spænska knattspyrnusambandsins en var hafnað af dómstólum á Spáni. Kjósi Olmo að ræða við önnur félög er honum frjálst að segja upp samningi sínum og gera það á morgun. 

Hinn 26 ára gamli Olmo gekk til liðs við Barcelona frá RB Leipzig í ágúst á þessu ári. Félagið þurfti hins vegar að nýta sér glufu í kerfinu til að ná að skrá Olmo inn hjá spænsku deildinni.

Félagið gat aðeins skráð Olmo fyrri hluta tímabils. Barcelona sótti svo um bráðabirgðaleyfi til að fá að skrá leikmanninn út júní á næsta ári, en spænska deildin hafnaði þeirri beiðni.

Barcelona ákvað því að leita réttar síns hjá yfirvöldum á Spáni, en þeirri áfrýjun var hafnað í gær. Félagið er nú í kapphlaupi við tímann því skráning Olmo rennur út á morgun, 1. janúar.

Til þess að réttlæta útgjöldin, það er að segja launakostnað Olmo, og fá leikleyfið frá spænsku deildinni þarf Barcelona að geta sýnt fram á auknar tekjur. Félagið er talið ætla að sækja þær með því að selja VIP stúkur á Nývangi, fyrir hátt í hundrað milljónir evra, en það mun einnig krefjast samþykkis spænsku deildarinnar og taka töluverðan tíma.

Olmo hefur verið mikilvægur fyrir Barcelona og skorað sex mörk í fimmtán leikjum hingað til. Önnur stórlið í Evrópu eru sögð áhugasöm um leikmanninn í janúar ef hann fær ekki leikleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×