Fleiri fréttir

Styðja rétt samkynhneigðra

Sameinuðu þjóðirnar hafa nú, í fyrsta sinn í sögu sinni, lýst yfir stuðningi við réttindi samkynhneigðra. Bandaríkin, Evrópuríki og ríki Suður-Ameríku greiddu ályktun þess efnis atkvæði sitt og segja þetta mikilvæg tímamót en fulltrúar Afríkuríkja og íslamskra ríkja fordæma ályktunina.

Röð fyrir utan NASA - styttist í tónleika GusGus

Á áttunda tímanum í kvöld hafði myndast dágóð röð fyrir utan NASA við Austurvöll vegna útgáfutónleika nýjustu plötu GusGus, Arabian Horse. Um er að ræða tvenna tónleika og uppselt er í forsölu á þá báða, en einhverjir miðar verða seldir í hurð. Þeir sem ekki komst á þessa tímamótatónleika geta glaðst vegna þess að fyrri tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en sjálfir tónleikarnir hefjast síðan klukkan rúmlega 21.

Viðbrögð Helga Björns: Ég held að þetta sé í alvöru

Allt eldvarnarkerfi Hörpu fór í gang á ellefta tímanum í gærkvöldi á miðjum tónleikum Helga Björnssonar og tvö þúsund manns þurftu að rýma tónleikasali og veitingahús. Enginn eldur hafði þó brotist út - heldur steig gufa upp úr uppþvottavél.

Vill að ríki taki upp frjálsan hugbúnað

Richard Stallman er umdeildur maður. Hann hefur allan sinn feril barist fyrir frjálsum hugbúnaði, lagði grunninn að GNU-Linux stýrikerfinu og boðar fagnaðarerindi tölvufrelsis víða um heim.

Vann 26 milljónir í lottóinu

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann rúmum 26 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 2, 21, 22, 37 og 38. Ekki kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá hvort vinningshafinn hafi verið með tölurnar í áskrift.

Afdrif ofbeldismannsins býsna endaslepp

Það skyti skökku við ef ofbeldismenn fengju hraðari afgreiðslu á húsnæðisvandræðum sínum en brotaþolar, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún telur að lög sem leyfi að ofbeldismenn séu fjarlægðir af heimilum sínum hefðu gagnast betur ef þeir fengju strax meðferð við sinni ofbeldishneigð.

Hundar sem réðust á konu aflífaðir

Hundarnir sem réðust á konu í Reykjanesbæ í lok síðasta mánaðar voru aflífaðir í gær ásamt fleiri hundum sem voru í umsjá eiganda þeirra.

Eldur í potti

Talsverður viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á sjötta tímanum í dag þegar tilkynning barst um eld í íbúðum aldraðra í Mörkinni við Suðurlandsbraut. Skömmu síðar kom í ljós kom að um var að ræða eld í potti á eldavél í einni íbúð. Í framhaldinu var flestum bílum snúið við. Einhver reykur var í umræddri íbúð en allt lítið út fyrir að ekki hafi orðið neitt tjón.

Vill sjá hausa fjúka

„Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna.

Þingkonan sem var skotin í höfuðið heimsækir heimaborgina

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona í janúar heimsækir um helgina borgina Tucson í fyrsta sinn eftir ráðist var á hana. Hún hefur dvalið á sjúkrastofnun í Houston að undanförnu og náð merkilega miklum framförum þó enn sé nokkuð í að hún nái fullum bata. Giffords var útskrifuð þaðan á miðvikudaginn.

Flugmenn valda vonbrigðum

Icelandair lýsir yfir vonbrigðum með að Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafi boðað til verkfallsaðgerða í formi yfirvinnubanns þrátt fyrir að flugfélagið hafi boðið flugmönnum sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair.

Stjórnvöld virði störf kennara

Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mikilvægt að stjórnvöld meti og virði störf kennara því rannsóknir sýni að öflugt skólastarf sé langbesta forvörnin gegn rótleysi og lífsfirringu. Hann fagnar að náðst hafi kjarasamningur milli ríkis og kennara. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Jóns Más Héðinssonar, skólameistara, þegar Menntaskólanum á Akureyri var slitið 131. sinn í dag.

Lýst eftir pilti og stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Burkna Þór Berglindarsyni og Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur en ekki er vitað um ferðir þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag þegar þau voru í Árbæjarhverfi.

Bera börur og safna áheitum

Hópur ungmenna frá björgunarsveit Suðurnesja gengur nú meðfram Reykjanesbraut með níðþungur börur en hópurinn lagði af stað í morgun frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík.

Hugh Hefner ekki lengi að jafna sig - tvíburar fluttir inn

Svo virðist sem að Hugh Hefner, stofnandi Playboy tímaritsins, ætli ekki að eyða miklum tíma í að sleikja sárin eftir að fyrrverandi unnusta hans hætti við að giftast honum því Hefner bauð tvíburum að flytja inn á Playboy-setrið í hennar stað. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum eru systurnar Karissa og Kristina Shannon nú þegar fluttar inn.

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar

Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á á morgun Kvenréttindadaginn. Athöfnin hefst klukkan 14:30.

Flugmenn samþykkja yfirvinnubann

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt yfirvinnubann sem hefst næstkomandi föstudag verði ekki búið að semja við þá um kjarabætur. Boðað yfirvinnubann þýðir að forfallist flugmaður kemur enginn sjálfkrafa í staðinn. Bannið kemur því til með að hafa áhrif á flugferðir Icelandair.

Lýst eftir 15 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 15 ára stúlku, Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur. Kolbrún fór að heiman í Árbæjarhverfi síðastliðinn fimmtudag klukkan tólf á hádegi klædd í skærgræna íþróttapeysu, gráar íþróttabuxur og gráa íþróttaskó. Kolbrún er 168 cm að hæð, um 70 kg og með rautt sítt hár.

Kvartaði sáran undan handjárnunum

Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kvartaði sáran undan handjárnum sem honum var gert að hafa fyrir aftan bak þegar hann var handtekinn í síðasta mánuði. Hann sagði þau of þröng. Daginn eftir handtökuna bað hann um egg í fangelsinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslum sem hafa verið opinberaðar um handtökuna.

Snjóvarnargirðing ver kálgarð fyrir kanínum

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur í sumar fyrir könnun á kanínustofni borgarinnar. Er vonast til þess að í haust liggi fyrir nægar upplýsingar til að skipuleggja aðgerðir til að stemma stigu við fjölgun og útbreiðslu stofnsins. Villtum kanínum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og ekki eru allir sáttir við tilvist þeirra.

Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið

Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar.

Ekki vísbendingar um frekari óróa

Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun. Jarðskjálftahrinan stóð yfir í um 15 mínútur og mældust stærstu skjálftarnir rúmlega þrjú stig á richter. Sigþrúður Ármannsdóttir, landfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana þó ekki hafa verið marga eða um tíu talsins.

Konan töluvert slösuð

Átta manns slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem olli slysinu er grunaður um ölvunarakstur.

Kjarasamningar í uppnámi

Svo gæti farið að kjarasamningar, sem náðust eftir margra mánaða viðræður, verði hleypt í uppnám í næstu viku vegna aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en aðilar vinnumarkaðarins telja hana ekki hafa efnt.

Ófreskjan frá Kiel játar á sig fimm morð

Ófreskjan frá Kiel, raðmorðinginn Hans-Jürgen S., sem var handtekinn í byrjun apríl njósnaði um ungar stúlkur í bíl sínum, beið eftir rétta tækifærinu og myrti þær síðan. Tæp 30 ár eru frá því Hans varð síðasta fórnarlambi sínu að bana. DNA sýni kom lögreglunni á sporið.

Bandaríkjamenn ræða um frið við talíbana

Bandaríkjamenn eiga í friðarviðræðum við talíbana í Afganistan. „Friðarviðræður eru hafnar og þeim miðar vel. Erlendar hersveitir taka þátt í viðræðunum og þá einkum Bandaríkjamenn sem leiða þær,“ sagði Hamid Karzai, forseti Afganistans, á blaðamannafundi í morgun.

Harpa rýmd í miðjum tónleikum Helga Björns

Hátt í 2000 manns þurftu að yfirgefa Hörpu í hasti í gærkvöldi, á meðan tónleikarnir Dægurperlur Helga Björns stóðu sem hæst í Eldborgarsalnum, þegar brunavarnarkerfi hússins fór í gang.

Jarðskjálftahrina í Geitlandsjökli

Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun og stóð hún yfir í um 15 mínútur. Stærstu skjálftarnir voru rúmlega þrjú stig og fundust meðal annars í Húsafelli.

Skutu fyrir mistök á farþegaþotu

Suður-kóreskir hermenn skutu fyrir mistök á farþegaþotu í grennd við landamæri Suður- og Norður-Kóreu í gær. Þeir töldu að um flugvél norður-kóreska hersins væri að ræða og skutu hátt í hundrað skotum að henni. Hermennirnir áttu sig síðan á því að þarna væri á ferðinni farþegaþota á leið á alþjóðaflugvöllinn í Seúl. Ekkert skotanna hitti farþegaþotuna sem kom inn til lendingar skömmu síðar. Um borð voru um 120 farþegar.

Yfir tuttugu látnir eftir átök í fangelsi

Hermenn hafa náð fangelsi í Vensúela undir sína stjórn eftir að óeirðir og átök glæpagengja brutust út í vikunni. Hermennirnir voru kallaðir út eftir að fangaverðir misstu stjórn á fangelsinu. Að minnsta kosti 22 eru látnir og þá eru fjölmargir særðir. Einn hermaður er meðal hinna látnu.

Tveir gistu fangageymslur á Akureyri

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri en fjöldi lagði leið sína í bæinn og sat að sumbli fram á morgun. Tveir gistu fangageymslur og var einn tekinn fyrir ölvunarakstur. Þá komu nokkur fíkniefnamál inn á borð lögreglu.

Á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys

Alvarlegt umferðarslys varð þegar kona keyrði aftan á bifreið á ferð á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bifreið hennar valt og hafnaði utan vegar. Konan var ein í bílnum þegar slysið átti sér stað og var hún flutt með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi, þar sem hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild samkvæmt vakthafandi lækni.

Forsendubrestur gæti stytt kjarasamninga

Aðilar vinnumarkaðarins telja skorta á efndir stjórnvalda í mörgum af þeim lykilatriðum sem þau tiltóku í aðgerðaáætlun sinni vegna nýrra kjarasamninga. Því gætu forsendur samninganna verið brostnar.

Ætla að ná arftaka bin Ladens

Bandaríkjamenn ætla að leita uppi Ayman al Zawahiri, arftaka hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden, þótt Robert Gates varnarmálaráðherra segi hann ekki jafnmikilvægan.

Efla þarf regluverk og eftirlit

Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópusambandsins, hefur í liðinni viku við nokkur tækifæri rætt nauðsyn þess að gerðar verði breytingar á regluverki evrunnar. Hann segir að regluverkið, sem sett var upp seint á síðustu öld, hafi reynst veikburða og í ofanálag hafi því ekki verið fylgt nægilega vel eftir.

Formaður SÁÁ vill skattleggja knæpur og næturklúbba

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir óbeinan kostnað af næturlífi Reykjavíkur gríðarlegan og furðulegt að barir og skemmtistaðir beri ekki samfélagslegan kostnað í samræmi við þann óbeina kostnað ríkisins sem hlýst af. Í grein á heimasíðu SÁÁ segir Gunnar að nær allt lið lögreglu höfuðborgarsvæðisins sé haft á vakt um helgar, hópar verkamanna mæti undir morgun til að hreinsa götur og torg, læknar og hjúkrunarlið þurfi að gera að sárum þeirra sem verða undir í gleðinni og þá sé ótalinn gríðarlegur óbeinn kostnaður af áfengis- og vímuefnanotkun einstaklinga.

Næturklúbbar ættu að greiða hærri skatt

"Kannski ættum við að rifja upp þetta hugtak; kostnaðarvitund. Og beita því á miðbæ Reykjavíkur. Þá myndum við skattleggja næturklúbbana svo þeir gætu staðið undir nauðsynlegri löggæslu, hreinsun gatna og aðhlynningu sjúkra. Stöðunum myndi þá hugsanlega fækka, opnunartíminn styttast og tekjur og gjöld úr sameiginlegum sjóðum vegna þessarar starfsemi leita jafnvægis." Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í nýjum pistli á vef samtakanna. Þar segir hann að það sé víðar en í bankaheiminum sem menn einkavæða gróða en þjóðnýta tap. Gunnar Smári tekur dæmi af þrátt fyrir háa skatta á bíla og bensín sé ólíklegt að þeir standi undir því sem samfélagið þarf að greiða vegna umferðar slysa og mengunar, svo eitthvað sé nefnt. Þá bendir hann einnig á hversu lágt verð er á sætindum og gosi, og fer því kostnaður vegna heilsutjóns af ofneyslu þeirra ekki inni í vöruverð. Að mati Gunnars Smára ætti kostnaðarvitund þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna að leiða til hærri skattbyrði á næturklúbba. "Við gætum þá varið meira fé úr sameiginlegum sjóðum til velferðar og sinnt þeim sem eru veikir og hjálparþurfi. Þótt umfangsmiklar stuðningsaðgerðir hins opinbera til eflingar amfetamínsdrifins næturlífs fram á morgun í miðbæ Reykjavíkur séu ekki færðar undir sérstakan lið á fjárlögum eða fjárhagsáætlunum; þá eru þær staðreyndir engu að síður. Og það er síendurtekin ákvörðun ríkis- og borgarstjórnar að styðja myndarlega við bakið á þessari starfsemi og auka stuðninginn fremur en hitt. Á sama tíma og þessir aðilar taka ákvarðanir um að skerða framlög til þeirra sem glíma við neikvæðar afleiðingar þessarar starfsemi." Pistil Gunnars Smára má lesa í heild sinni á vef SÁÁ. http://www.saa.is/islenski-vefurinn/felagsstarf/pistlar/nr/117631/

Rólegheit í miðbænum - kalt og næðingur

Var á röltinu í miðborginni og getur sagt með mikilli ánægju að ástandið var mjög gott. Vart að sjá vín á fólki og drykkja ungmenna vart merkjanleg. Frekar fátt var í bænum enda kalt og næðingur Töluvert minna af hátíðargestum heldur en öllu jafna, svona fljótt á litið.

Fyrrverandi ballettmær í faldbúningi

Íslendingar voru flestir flottir í tauinu í dag en fyrrverandi balletmær bar þó af þeim flestum. Hugrún Halldórsdóttir hitti og ræddi við þessa einstaklega prúðbúnu konu í dag. Unnur Guðjónsdóttir, fyrrverandi balletmeistari Þjóðleikhússins, mætir iðulega í íslenska þjóðbúningnum niður í bæ á þjóðhátíðardaginn sjálfan, en í ár var hún sérstaklega prúðbúin. „Ég er núna í sérstaklega fallegum búningi af því þetta er faldbúningur en annars er eg vön að fara í upphlut. 0g hver er munurinn á þessum tveimur? Það er náttúrulega höfuðfatið, þetta er það sem kallað er faldur og þessi hringur um hálsinn, kraginn. Þetta er mikið eldri búningur en upphluturinn," segir hún. Unnur saumaði búninginn sjálf en silfrið lét hún smíða eftir munum úr þjóðminjasafninu. Þá ber hún spaða á höfði úr silfri en hann er vanalega úr taui. „Ég vil hafa þetta almennilegt. Og vekurðu ekki athygli? Jú jú, fólk er að spá í þetta. Mér finnst bara synd að það skuli ekki vera miklu fleiri í búningum. Ég meina ef ekki í dag, 200 ára fæðingarafmæli Jóns, nema hvað?"

Sirkus og sápukúlur - blómlegur bær á þjóðhátíð

Borgin bókstaflega blómstraði í dag þegar fagurmáluð andlit, full af gleði, virtust á hverju götuhorni. Viðamikil dagskrá var um alla borg og mátti sjá sirkusfólk á stultum, klifurgarpa og ungar stúlkur í skautbúningum. Haraldur Guðjónsson ljósmyndari var á ferðinni í allan dag og í meðfylgjandi myndasafni má líta afrakstur dagsins.

Þröngt á þingi í alþingishúsinu

Háskóli Íslands fagnaði hundrað ára afmæli sínu í dag og því var haldin hátíðarsamkoma í þinghúsinu, þar sem háskólinn starfaði einmitt fyrstu þrjá áratugina.

Fékk á sig torfærubíl

Betur fór en á horfðist þegar torfærubíll sem var til sýnis á Selfossi í dag rann af stað og hafnaði á konu sem var að njóta hátíðarhaldanna. Konan er meidd á fæti en talin vera óbrotin. Torfærubíllinn var ásamt öðrum bílum til sýnis í brekku við hátíðarsvæðið í bænum og leikur grunur á að drengur sem fékk að setjast í bílinn hafi rekið sig í gírstöng með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað.

Kviknað í bíl við Hörpu

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrr í kvöld þegar eldur kviknaði í bifreið sem stóð á bílastæðinu við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur. Vel gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. Töluverðar skemmdir urðu hins vegar á bílnum en upptök eldsins eru enn ókunn.

Skjálftahrina í Mýrdalsjökli - sá stærsti 3 stig

Skjálftahrina reið yfir Mýrdalsjökul á sjötta tímanum og var stærsti skjálftinn um 3 stig. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar voru skjálftarnir um tíu talsins og flestir litir, en þar er tekið fram að um óyfirfarnar tölur er að ræða. Enginn skjálfti hefur mælst síðan á svæðinu, samkvæmt Veðurstofunni.

Sjá næstu 50 fréttir