Fleiri fréttir

Tónlistarhúsið "Made in China"

Árrisulir vegfarendur vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar þeir gengu fram hjá Hörpu, ráðstefnu- og tónlistarhúsi, í morgun og ráku augun í risastóran merkimiða sem festur hafði verið á suðurhlið hússins og á stóð: "Made in China" sem á íslensku útleggst: "Framleitt í Kína." Ekki er vitað hverjir voru þarna á ferð en merkingin fékk að hanga uppi til hádegis. Engar skemmdir urðu á byggingunni vegna uppátækisins. Þó ekki liggi ljóst fyrir hvaða skilaboðum var þarna verið að koma á framfæri eru uppi getgátur um að gjörningurinn tengist því að kínverskir verkamenn hafa verið einna iðnastir manna við uppbyggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss Íslendinga.

Hott hott í Hveragerði

Börnum í Hveragerði var boðið að bregða sér á hestbak við grunnskóla bæjarins og þótti þeim það góð skemmtun, þrátt fyrir eilitla rigningu. Hestamannafélagið Ljúfur stóð fyrir viðburðinum, sem var aðeins einn af fjölmörgu sem íbúum Hveragerðis stendur til boða í dag. Yngstu börnin fá að fara í Leikjaland í íþróttahúsinu, keppt er í knattspyrnu og dagurinn verður kvaddur með kvöldvöku sem hefst í Lystigarðinum klukkan hálf níu. Meðal þeirra sem fram koma er söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem gerði garðinn frægan í Eurovision hér um árið.

Opið hús á Alþingi - þar var Háskóli Íslands í 29 ár

Fjöldi manns mætti á opið hús á Alþingi í dag í tilefni af hundrað ára afmæli Háskóla Íslands, sem fyrstu 29 árin hafði aðsetur í alþingishúsinu. Háskólinn hafði aðstöðu á fyrstu hæð þinghússins og þar var í dag lögð áhersla á að miðla upplýsingum um sögu Háskóla Íslands, einkum þann tíma sem háskólakennsla fór fram í Alþingishúsinu á vegum læknadeildar, lagadeildar, guðfræðideildar og heimspekideildar. Önnur hæð þinghússins var einnig opin almenningi en þar var að finna muni og fróðleik um Jón Sigurðsson.

Skýjað yfir miðbæ Reykjavíkur

Mikil mannmergð er í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk er saman komið til að fagna 17. júní. Hátíðardagskrá gengur samkvæmt áætlun. Að sögn lögreglu hafa engin vandamál komið upp og allt gengið eins og í sögum. Fyrir hálfri klukkustund hófst hátíðardagskrá á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, til heiðurs afmælisbarninu. Þar eru forseti Íslands og forsætisráðherra, auk fleiri mektarmenna saman komin. Hátíðargestir á Akureyri skemmta sér vel. Nokkuð rigndi þar í morgun en stytti upp um hádegið og vonir standa til að hann lafi þurr..

„Stórskaðlegt íslenskum sjávarútvegi"

„Þetta frumvarp er ekki aðeins stórskaðlegt íslenskum sjávarútvegi og öllum sem við hann starfa heldur efnahag þjóðarinnar í heild. Frumvarpið fær falleinkunn í þessari hagfræðiúttekt," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða. Niðurstöðu sína byggir Friðrik á ítarlegri greinargerð sérfræðihóps sem sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra skipaði til þess að fara yfir hagræn áhrif frumvarpsins. Í greinagerðinni segir meðal annars að frumvarpið leiði til þess að mun erfiðara verður fyrir fyrirtækin að halda áfram rekstri og vart réttlætanlegt hjá mörgum þegar raunverulegt verðmæti eigna verður langtum meira en virði skulda. Friðrik segir að öllum hljóti að vera orðið ljóst að draga þurfi frumvarpið til baka og hefja vinnu við undirbúning að gerð frumvarps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða með aðkomu fulltrúa allra þeirra sem í sjávarútvegi starfa,

Eftirmynd hins forna Fitjakaleiks tekin í notkun

Í dag verður tekinn í notkun nýr kaleikur í Fitjakirkju í Hvanneyrarprestakalli. Hann er eftirmynd hins forna Fitjakaleiks sem var í Fitjakirkju, en hefur verið á Þjóðminjasafni Íslands frá 1915. Í tilefni af þessu er dagskrá í Fitjakirkju þar sem sagt er frá sögu kaleiksins og kaleikinn sem silfurgrip. Þá veðrur guðsþjónusta í Fitjakirkju þar sem kaleikurinn verður helgaður. Dagskráin hófst klukkan tvö á því að dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur frá Danmörku flutti erindið: fjalla um : Hinn forni kaleikur Fitjakirkju - Saga, greining og hugleiðingar Næst á dagskránni er: 14:30 Ívar Þ. Björnsson leturgrafari sem gert hefur nýjan Fitjakaleik fjallar um gripina af sjónarhóli silfursmiðsins 15:00 Guðsþjónusta í Fitjakirkju - helgaður nýr Fitjakaleikur sem er gjöf frá kirkjubændum. Prestar: Flóki Kristinsson og Kristján Valur Ingólfsson. Organisti: Steinunn Árnadóttir. Einsöngur: Bjarni Guðmundsson 16:00 Kirkjukaffi að gömlum og góðum sið

Kviðdómari ræddi við sakborning á Facebook

Kviðdómari í Bretlandi hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa haft samband við sakborning í gegnum Facebook. Saksóknarinn í málinu sagði að dómurinn ætti að vera öðrum kviðdómurum víti til varnaðar, en hin fertuga Joanne Fraill er sú fyrsta sem er dæmd fyrir vanvirðingu við dómstóla vegna gjörða sinna á internetinu. Hún sat í kviðdómi í fíkniefnatengdum málaferlum gegn 34 ára konu í borginni Manchester á síðasta ári. Joanne viðurkenndi að hafa haft samúð með konunni og því hafi hún haft samband við hana og sent henni skilaboð í gegnum Facebook þar sem Joanne greindi frá umræðum innan kviðdómsins. Þá viðurkenndi hún einnig að hafa flett kærasta konunnar upp á netinu, en hann var einnig sakborningur í málinu. Hvort tveggja er brot á reglum enska réttarkerfisins, og því var konan sakfelld fyrir vanvirðingu við réttinn og dæmd til átta mánaða fangelsisvistar, en hún gróf höfuðið í höndum sér og grét þegar dómurinn var kveðinn upp. Almenningur var hins vegar látinn borga brúsann, því málaferlin kostuðu um 6 milljónir punda, meira en milljarð króna, en dómarinn neyddist til að leysa kviðdóminn upp þegar upp komst um athæfi Joanne.

Hestur stöðvaði umferð við Vesturlandsveg

Hestur stöðvaði alla umferð við Vesturlandsveginn upp úr hádeginu þar sem hann gerði sig heimakominn á miðjum veginum. Hesturinn hafði sloppið úr gerði sínu við Mosfellsbæ, rétt neðan við Vesturlandsveg. Ökumenn hemluðu snarlega þegar hrossið lét sjá sig en ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið. Nokkrir ökumanna fóru út úr bílum sínum, náðu hestinum og komum honum aftur í gerðið. Umferð um Vesturlandsveginn er því aftur komin í eðlilegt horf eftir smáværilegar tafir í báðar áttir.

Strauss-Kahn sagðist njóta friðhelgi

Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, reyndi að halda því fram við handtöku að hann nyti diplómatískrar friðhelgi. Hann var handtekinn er hann var að yfirgefa Bandaríkin fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga hótelþernu í New York. Lögfræðingar Strauss-Kahn hafa hins vegar ekki gert neina tilraun til að halda fram friðhelgi umbjóðanda síns, og því er talið að yfirlýsing framkvæmdastjórans við handtöku hafi verið röng.

Lagði blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar

Forseti borgarstjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, lagði blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar nú um hádegisbilið. Föngulegur hópur gekk fylktu liði frá Austurvelli að kirkjugarðinu við Suðurgötu þar sem Jón hvílir og lék Lúðrasveit Reykjavíkur fyrir göngunni, undir stjörn Lárusar Grímssonar. Nú tekur við fjölbreytileg dagskrá í miðbæ Reykjavíkur. Hópakstur Fornbílaklúbbsins og sýning á fornbílum verður við Arnarhól, börnin geta fylgst með ævintýrum Lilla í Brúðubílnum milli hálf tvö og hálf þrjú, og Sirkus Íslands verður með götuleikhús og sirkusskóla á Ingólfstorgi. Heildardagskrá yfir viðburði í Reykjavík má finna hér. http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4515

"Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi"

Forsætisráðherra sagði íslenskt samfélag hafa styrkst að flestu leyti frá stofnun lýðveldisins og það væri fyrirmynd annarra þjóða á fjölmörgum sviðum, í hátíðarræðu sinni á Austurvelli í morgun. "Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi voru orðin sem Jón Sigurðsson valdi til hvatningar íslenskri þjóð á öndverðri nítjándu öld. Þessi hvatningarorð eiga ekki síður erindi við okkur í dag og við skulum heiðra minningu þessa baráttumanns með því að hafa þau að leiðarljósi," sagði Jóhanna. Hún sagði Íslendinga nú hafa tækifæri í kjölfar efnahagsáfallsins til þess að byggja upp réttlátara þjóðfélag, þar sem virðing fyrir öllum hópum og stéttum er í öndvegi, þar sem öllum eru sköpuð jöfn tækifæri til þess að láta til sín taka á mismunandi sviðum allt eftir kostum, eiginleikum og hugðarefnum hvers og eins. Jóhanna vitnaði í Jón Sigurðsson sem sagði "Það þarf annað en hjalið tómt til að hrinda Íslandi á fætur aftur, það þarf atorku og ráðdeild og framsýni og þollyndi." Hún stappaði Íslendinga í stálinu og hvatti þá til að líta bjartsýnir til framtíðar. Ræða Jóhönnu í heild sinni; http://www.forsaetisraduneyti.is/radherra/raedur_greinar_JS/nr/6810

Bifreið valt við Þjórsárbrú

Ungur karlmaður missti stjórn á bifreið sinn í lausamöl rétt austan við Þjórsárbrú um hálfáttaleytið í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf veginum og valt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp með minniháttar meiðsli en bifreiðin er ónýt.

Saka kaþólskan prest um kynferðislegt ofbeldi

Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Fjallað er um málið í Fréttatímanum í dag. Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Mennirnir sem stíga fram og segja sögu sína í Fréttatímanum í dag eru um fimmtugt. Brot gegn þeim eru fyrnd og hinir meintu gerendur látnir. Annar maðurinn segist hafa orðið fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi af hálfu sér A. George, sem var á þeim tíma skólastjóri Landakotsskóla, og Margrét Müller, þýskrar kennslukonu við skólann. Séra George var einn af valdamestu mönnum kaþólsku kirkjunnar hér á landi og sæmdur riddarakrossi fyrir störf sín. Margrét Müller var kennslukona við skólann. Hún bjó í einum af turnum skólans þar til hún svipti sig lífi. Lýsingar mannana, sem birtast í Fréttatímanum, eru sláandi. Þar er ofbeldið sagt hafa haldið áfram í sumarbúðum fyrir krakkana í Ölfusi. Í niðurlagi greinarinnar er sagt að fréttaflutningur á síðasta ári af kynferðisbrotum kaþólskra presta út í heimi hafi ýtt við mönnunum og fengið þá til að stíga fram með sögu sína. Þeir hafi skrifað Pétri Bürcher, biskupi kaþólikka hér á landi, bréf en fengið þau svör ekkert yrði aðhafst af hálfu kaþólsku kirkjunnar hér á landi.

Strauss-Kahn sagðist njóta friðhelgi

Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, reyndi að halda því fram við handtöku að hann nyti diplómatískrar friðhelgi. Hann var handtekinn er hann var að yfirgefa Bandaríkin fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga hótelþernu í New York. Lögfræðingar Strauss-Kahn hafa hins vegar ekki gert neina tilraun til að halda fram friðhelgi umbjóðanda síns, og því er talið að yfirlýsing framkvæmdastjórans við handtöku hafi verið röng.

Útför Ólafs Gauks á mánudag

Útför Ólafs Gauks Þórhallssonar, tónlistarmanns, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 20. júní 2011 klukkan 13:00. Ólafur Gaukur fæddist 11.ágúst 1930 en lést á hvítasunnudag, 12. júní, 2011. Dóttir Ólafs, Anna Mjöll, óskaði eftir því að tilkynning um útförina yrði birt. Foreldrar Ólafs Gauks voru Bergþóra Einarsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík og Þórhallur Þorgilsson magister í rómönskum málum. Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Íslandi sem gítarleikari, lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, útsetjari,, textahöfundur, plötuútgefandi og kennari. Hann útskrifaðist úr kvikmyndatónlistarháskóla Dick Grove í Los Angeles árið 1984. Aðeins fimmtán ára gamall stofnaði Ólafur Gaukur sitt fyrsta tríó og á menntaskólaárum sínum, hóf hann að leika með vinsælustu danshljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett og einnig stýrði hann eigin hljómsveitum og mun Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur vera þeirra þekktust. Ólafur Gaukur stofnaði Gítarskóla Ólafs Gauks árið 1975 og rak hann til æviloka. Fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar hlaut Ólafur Gaukur ýmsar viðurkenningar. Hann var útnefndur til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd, fyrir myndina Benjamín Dúfu á Berlin Film Festival í Þýskalandi árið 2006. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut hann árið 2006. Árið 2008 var hann sæmdur hinni Íslensku Fálkaorðu, sama ár var hann kjörinn heiðursfélagi í Félagi tónskálda og textahöfunda og árið 2009 sæmdu gítarleikarar hann Gullnöglinni. Ólafur Gaukur lætur eftir sig uppkomin börn. Eftirlifandi eiginkona Ólafs Gauks er Svanhildur Jakobsdóttir.

200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar - hátíðardagskrá um allt land

Í dag eru 200 ár liðin frá því að Jón Sigurðsson sjálfstæðishetja fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð og verður fæðingu hans minnst með mikilli hátíðardagskrá um allt land. Hátíðarmessa verður haldin í Minningarkapellu Jóns á fæðingarstað hans og munu forseti Íslands og forsætisráðherra flytja ávarp á útisviði þar um hálf þrjúleytið. Í Reykjavík hófst formleg dagskrá með guðþjónustu í Dómkirkjunni en á Austurvelli um ellefuleytið en þaðan lagði skrúðganga af stað nú í hádeginn í kirkjugarðinn við Suðurgötu, þar sem forseti borgarstjórnar mun leggja blómsveig á leiði Jóns. Á Akureyri hefst hefðbundin hátíðardagskrá í Lystigarðinum Heiðursvörður en þar verður meðal annars Hugvekja og bænagjörð í Akureyrarkirkju.

Örn Bárður vill biskup og forystu kirkjunnar frá

Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju og stjórnlagaráðsfulltrúi, hvetur forystu kirkjunnar til að stíga til hliðar í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að viðbrögð yfirstjórnar kirkjunnar við skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar hafi valdið honum vonbrigðum. Hann gagnrýnir einnig kirkjuþing og spyr af hverju biskup hafi ekki vikið úr þingsal og leyft þinginu að ræða málið að honum fjarstöddum. Hann spyr einnig hvort enginn hafi orðað þann möguleika að biskup þyrfti hugsanlega að segja af sér. Hann segir að forysta kirkjunnar geti nú sýnt auðmýkt með djarfmannlegu verki; stigið til hliðar og viðurkennt að henni hafi mistekist í málinu. sáttargjörð verði ekki í reynd fyrr en hrein iðrun hafi átt sér stað, og þjóðin þoli illa hálfkák í alvarlegu máli sem þessu.

Þykir umsókn að ESB sverta minningu Jóns Sigurðssonar

„Umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu svertir minningu Jóns Sigurðssonar sem á 200 ára afmæli í dag. Jón helgaði líf sitt sjálfstæði Íslands." Þetta segir í dag á vef Heimssýnar, félags sjálfsstæðissinna í Evrópumálum sem telja hag Íslands best borgið utan ESB. Formaður samtakanna er Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins. „Umsóknin færir Evrópusambandinu á silfurfati yfirráð yfir fiskveiðilandhelginni. Beri umsóknin þann eitraða ávöxt að Ísland verði aðildarríki mun strandríkið Ísland leggja sína hagsmuni í hendur meginlandsríkjasambands. Samningaviðræður Íslands við önnur ríki á Norður-Atlantshafi væru á forræði Evrópusambandsins," segir þar ennfremur. Samkvæmt viðhorfskönnun sem Capacent vann fyrir Heimssýn, og var birt í gær eru 50 prósent þjóðarinnar andvíg inngöngu í Evrópusambandið en 37,3 prósent eru fylgjandi aðild að ESB. 12,6 prósent gefa ekki upp afstöðu eða hafa ekki skoðun. Verulega hefur dregið saman með stuðningsmönnum og andstæðingum aðildar og hefur munurinn ekki verið minni frá því í efnahagshruninu 2008.

Háskóli Íslands 100 ára í dag - opið hús á Alþingi

Á þessum degi fyrir réttri öld var Háskóla Íslands stofnaður, hinn 17. júní 1911 á Alþingi þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Af þessu tilefni verður Alþingishúsið opið almenningi í dag frá kl. 14 til 17.30. Á fyrstu hæð þinghússins, þar sem Háskólinn var til húsa í 29 ár, verður áhersla lögð á upplýsingar um sögu Háskóla Íslands, einkum þann tíma sem háskólakennsla fór fram í Alþingishúsinu á vegum læknadeildar, lagadeildar, guðfræðideildar og heimspekideildar. Þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands. Önnur hæð þinghússins verður einnig opin en þar verður að finna muni og fróðleik um Jón Sigurðsson í tilefni af 200 ára afmæli hans. Stofnunar Háskóla Íslands verður einnig minnst með hátíðarsamkomu í þingsal Alþingis, klukkan 12. Að lokinni hátíðarsamkomunni verður afhjúpaður minnisvarði um stofnun Háskóla Íslands og veru hans í tæpa þrjá áratugi í Alþingishúsinu. Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þorsteins eru hönnuðir minnisvarðans.

Háskólaráð fagnar Aldarafmælissjóðnum

Háskólaráð Háskóla Íslands fagnar því að stjórnvöld hafi stofnað sérstakan Aldarafmælissjóð fyrir skólann og nýja prófessorsstöðu í nafni Jóns Sigurðssonar í tilefni 100 ára afmælis skólans. Greint var frá því í gær að Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hefðu samþykkt að heiðra Háskóla Íslands með 150 milljóna króna stofnframlagi í sérstakan Aldarafmælissjóð. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast munu til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar, eins og segir í yfirlýsingu Ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Þá stendur til að setja á fót starfshóp sem gera mun tillögu um framlög í Aldarafmælissjóðinn á árunum 2012-2020. Enn fremur var samþykkt á Alþingi í gær þingsályktunartillaga um stofnun prófessorsstöðu við Háskóla Íslands í nafni Jóns Sigurðssonar, en 200 ár eru frá fæðingu hans. Starfsskyldur prófessorsins verða meðal annars við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Háskólaráð Háskóla Íslands fagnaði á fundi sínum í dag þeirri velvild og viðurkenningu sem skólanum er sýnd á aldarafmælinu. „Gjafir Ríkisstjórnar Íslands og Alþingis eru ómetanlegt framlag til að auka þekkingu, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Það er gleðiefni að stjórnvöld og þingmenn allra flokka skuli vera samtaka um nauðsyn þess að hefja nýja sókn og vera reiðubúnir að fylgja henni eftir í verki með stuðningi við Háskóla Íslands," segir í ályktun háskólaráðs. Ennfremur segir í ályktuninni að „Aldarafmælissjóðurinn er dýrmætt framlag til að gera Háskóla Íslands kleift að hrinda í framkvæmd skýrri framtíðarstefnu sinni og metnaðarfullum vísindamarkmiðum og munu framlög úr honum grundvallast á ströngustu alþjóðlegum mælikvörðum um árangur og gæði."

SFR semur við Reykjavíkurborg

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og samningurinn sem SFR gerði við ríkið nýverið. Kjarasamningur SFR við borgina gildir frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014. Launahækkanir verða krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin skilar félagsmönnum hagstæðari niðurstöðu. Þannig er félagsmönnum tryggðar 12.000 kr. eða að lágmarki 4,6% hækkun þann 1. júní 2011, 11.000 krónur eða að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. mars 2012 og 11.000 kr. eða að lágmarki 3,50% þann 1. mars 2013 Þetta kemur fram á vef SFR. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir 50.000 króna eingreiðslu ef hann verður samþykktur, sem og álagsgreiðslum upp á 25.000 krónur þann 1. febrúar 2012. Einnig er gert ráð fyrir hækkunum á orlofs- og desemberuppbætur. Stærsti hópurinn sem samningurinn nær til eru stuðningsfulltrúar og félagsliðar, sem vinna við málefni fatlaðra. Sá hópur flutti frá ríkinu yfir til Reykjavíkurborgar um síðustu áramót þegar málefni fatlaðra var flutt yfir frá ríki yfir til sveitarfélaga.

Vöruþurrð um borð hjá Iceland Express

Farþegar Iceland Express í júní hafa orðið varir við að úrvalið af mat og öðrum vörum um borð er fremur fátæklegt miðað við það sem vaninn hefur verið.

Banna auglýsingar gegn áti á hvalkjöti

Isavia hefur farið fram á að Alþjóða dýraverndunarsamtök og Samtök hvalaskoðunarfélaga endurskoði auglýsingar sínar í Leifsstöð, ellegar verði þær fjarlægðar. Auglýsingarnar eru liður í átaki gegn neyslu á hvalkjöti og beint að ferðamönnum. Auglýsingarnar hafa hangið uppi frá mánaðamótum og voru samþykktar af markaðsdeild Isavia án nokkurra vandkvæða þegar þær voru settar upp, en samtökin voru með samning við Leifsstöð út sumarið.

Vel heppnað sameiningartákn

200 ár eru í dag síðan Jón Sigurðsson fæddist. Hann hefur löngum skipað stóran sess í samræðu þjóðarinnar enda stefndi hann leynt og ljóst að því. Jóni var hampað í sjálfstæðisbaráttunni og stjórnmálamenn hafa löngum vitnað til hans um hin ólíkustu málefni.

Segir RÚV njóta óréttláts forskots

Ari Edwald, forstjóri 365, segir samkeppnisstöðu einkareknu sjónvarpsstöðvanna skakka á meðan Ríkissjónvarpinu er dreift frítt um dreifikerfi Símans og Vodafone.

Svínabúamál aftur til Samkeppniseftirlitsins

Sú ákvörðun Arion banka að selja fyrirtækinu Stjörnugrís tvö svínabú í fjárhagsvandræðum, bak við luktar dyr en búin ekki auglýst opinberlega, orkar tvímælis að mati áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem hefur vísað málinu aftur til Samkeppniseftirlitsins (SE) til meðferðar. Áfrýjunarnefndin gerir einnig athugasemd við þá ákvörðun Arion banka að áskilja að aðeins mætti selja búin í einu lagi – skýringar á henni séu ófullnægjandi.

Samin til að vernda hlutleysisstefnuna

Lagagrein í almennu hegningarlögunum frá 1940 þar sem segir að hver sá sem ráði menn innan íslenska ríkisins til erlendrar herþjónustu skuli sæta fangelsi allt að tveimur árum var líklega samin til þess að vernda hlutleysisstefnuna. Þetta er mat Birgis Loftssonar, sagnfræðings og höfundar Hernaðarsögu Íslands 1170 til 1581.

Neitar e-töflusmygli

Ákæra var þingfest í gær á hendur ungum manni sem gefið er að sök að hafa flutt gríðarlegt magn af fíkniefnum til landsins í mars síðastliðnum. Hann neitar sök.

Leggur til enn hærri skatta

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir, í nýrri skýrslu um skattkerfið á Íslandi, nauðsynlegt að hækka hér skatta og gera margvíslegar breytingar á skattkerfinu.

Íslensk utanríkisstefna hefur verið órökrétt

Ísland hefur ekki alltaf verið rökvís gerandi á alþjóðagrundvelli, þótt það hafi lengst af rekið afar árangursríka utanríkisstefnu. Svo segir Meike Stommer, nemi við Ernst-Moritz-Arndt-háskóla í Þýskalandi. Hún skrifaði doktorsritgerð sína um íslenska utanríkisstefnu.

Hernaður ekki á fjárlögum ESB

Rekstur hernaðarlegra verkefna fellur ekki undir fjárlög ESB og ríki geta kosið að standa utan framlaga vegna einstakra verkefna, segir í nýlegri fundafrásögn samninganefndar Íslands (29. fundur) vegna aðildarviðræðna Íslands og ESB.

Frysting beinist helst að Skúla

Sérstakur saksóknari hefur fengið eignir Skúla Þorvaldssonar, Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar í Lúxemborg kyrrsettar. Viðskiptablaðið greindi frá þessu í gær, en áður hafði verið fjallað um kyrrsetningarnar í Morgunblaðinu.

Papandreú lofar að berjast til þrautar

Vaxandi ótti er við að atburðirnir í Grikklandi muni smita út frá sér með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahag Evrópusambandsríkjanna, einkum þó þeirra sem nota evruna.

Ástralski leikstjórinn aftur til Íslands

Benedict Andrews, ástralski leikstjórinn sem leikstýrði sýningunni Lér konungur í Þjóðleikhúsinu, hefur tekið að sér leikstjórn á verkinu Makbeð, sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu árið 2013.

Braust inn til fyrrverandi sambýliskonu

Karlmaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í fyrradag fyrir að brjótast tvívegis inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og taka þaðan ýmsan húsbúnað sem hann taldi sig eiga.

Fjórtán nýnemar hlutu veglega styrki

Fjórtán nýnemar við Háskóla Íslands fengu í dag veglega styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði skólans, samtals að verðmæti tæplega fimm milljóna króna. Nemendurnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi en hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds við háskólann, sem er 45.000 krónur.

Fagna Aldarafmælissjóð

Háskólaráð Háskóla Íslands fagnar því að stjórnvöld hafi stofnað sérstakan Aldarafmælissjóð fyrir skólann og nýja prófessorsstöðu í nafni Jóns Sigurðssonar í tilefni 100 ára afmælis skólans.

Máli gegn fyrrverandi bankastjóra vísað frá

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms þar sem máli slitastjórnar Landsbankans á hendur Halldóri Jóni Kristjánssyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, var vísað frá dómi.

Fleiri olíufélög undirbjuggu tilboð í Drekasvæðið

Fleiri olíufélög, en þau tvö sem síðast buðu í Drekasvæðið, hafa lagt í mikla undirbúningsvinnu vegna olíuleitarútboðs Íslendinga. Þetta reyndu starfsmenn Orkustofnunar á kynningarfundi í Stafangri í síðustu viku.

Harðir bardagar milli Gaddafi og uppreisnarmanna

Harðir bardagar geisa milli herja Muammars Gaddafis og uppreisnarmanna sem eru smám saman að reyna að brjóta sér leið meðfram strönd Miðjarðarhafsins í átt að höfuðborginni Trípólí.

Aðeins 4% af áformaðri vegagerð ársins komin í útboð

Vegagerðin hefur frá áramótum aðeins boðið út fjögur smáverk fyrir liðlega tvöhundruð milljónir króna, sem eru aðeins um fjögur prósent af áformuðum framkvæmdum ársins. Sleifarlag ríkisstjórnar, segir stjórnarandstöðuþingmaður.

World Press Photo sýningin opnuð

Jón Gnarr, borgarstjóri, opnaði ljósmyndasýninguna World Press Photo í Kringlunni í dag. Þetta er í tuttugasta og fimmta skiptið sem sýningin er haldin hér á landi en sextíu og fjórar ljósmyndir eru til sýnis.

Sjá næstu 50 fréttir