Fleiri fréttir

Svið á tónleikahátíð hrundi í miklu óveðri

Að minnsta kosti tveir ertu látnir og um fjörutíu eru slasaðir eftir að svið á Pukkelpop-tónlistarhátíðinni í Belgíu hrundi í miklu óveðri sem gekk yfir svæðið í dag. Fjölmiðlar í Belgíu segja þó að tala látinni kunni að hækka.

Ísraelar skutu flugskeyti á hryðjuverkamenn

Ísraelski herinn gerði loftárás á Gaza-svæðinu í morgun en hermt er að á meðal þeirra föllnu séu menn sem beri ábyrgð á hryðjuverkum í suðurhluta Ísrael í morgun og í dag.

Björgunaraðgerðin gekk vel

Núna klukkan sjö tókst að koma svissneska ferðamanninum sem slasaðist í Hveradölum í Kverkfjöllum í Norðanverðum Vatnajökli í þyrlu Norðurflugs.

Kvikmyndaskólinn ekki rekstrarhæfur

Kvikmyndaskóli Íslands hefur ekki sýnt fram á að hann geti uppfyllt skilyrði reglugerðar um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi að því er rekstrarhæfi varðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Mælir með því að makinn þekki lykilorðið á Facebook

Stór hluti vandamála í samskiptum fólks í sambúð sem rata inn á borð sálfræðinga tengist samskiptavefnum Facebook. Sálfræðingur segir að lausnin felist í að leyna ekki lykilorði fyrir makanum og hafa allt upp borðum.

Gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur

Fulltrúi í stjórn Orkuveitunnar gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur og segir það skjóta skökku við að á meðan niðurskurðahnífnum er beitt á Orkuveitu Reykjavíkur skuli hundruðum milljóna dælt í Gagnaveituna.

"Ég hugsaði það allra versta í upphafi“

Foreldrar ungabarns skildu það eftir á gangstéttinni fyrir utan húsið sitt á Seltjarnarnesi þegar þeir fóru að bera út blöð í morgun. Kona sem kom að barninu segir það hafa verið grátandi og illa haldið af kulda. Hún fékk aðstoð leigubílsstjóra og saman kölluðu þau í lögregluna.

Fundur í fyrramálið

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar klukkan tíu í fyrramálið í kjaradeilu leikskólakennara og samninganefndar sveitarfélaganna. Þetta staðfestir formaður félags leikskólakennara í samtali við fréttastofu.

Neitaði að segja til nafns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tuttugu og tveggja ára karlmann um klukkan hálf þrjú í dag en hann neitaði að segja til nafns. Lögreglumenn höfðu afskipti af manninum í Bankastræti í miðborginni eftir að hann var ekki í öryggisbelti.

Banna vændi unglinga

Svisslendingar ætla sér að loka fyrir smugu í kerfinu sem heimilar allt að 16 ára ungu fólki að stunda vændi án refsingar. Aðeins örfá lönd Evrópu leyfa slíkt athæfi. Með hinum fyrirhuguðu lögum er lögð þung refsing við því að heimsækja of ungar vændiskonur og enn þyngri refsing við því að hvetja börn til vændis.

Þyrla frá Norðurflugi sinnir björgunarflugi

Þyrla frá Norðurflugi sinnti björgunarflugi fyrir Landhelgisgæsluna í Kverkfjöllum í dag, en TF-LÍF, eina starfandi þyrla gæslunnar, bilaðÞyrla frá Norðurflugi sinnti björgunarflugi fyrir Landhelgisgæsluna í Kverkfjöllum í dag, en TF-LÍF, eina starfandi þyrla gæslunnar, bilaði í gær og var því engin þyrla tiltæk þegar óhappið varð.i í gær og var því engin þyrla tiltæk þegar óhappið varð.

Breivik hringdi til að gefa sig fram - samtölin í heild sinni

Norska lögreglan birti í dag símtal Anders Behring Breivik við neyðarlínuna í Noregi þann 22. júlí síðastliðinn. Breivik hringdi með það í huga að gefa sig fram, en rúmum hálftíma áður hafði lögreglan í Noregi fengið tilkynningu um skotárás í Útey. Breivik reyndi tíu sinnum að hringja en náði aðeins sambandi tvisvar.

Óttast átök við verkfallsverði

Samningarnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vill forðast átök við verkfallsverði Félags leikskólakennara og beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga að starfsemi leikskólanna verði skipulögð á þann hátt að komast megi hjá slíkum átökum. Nefndin hyggst vísa málinu til félagsdóms, verði verkfallið að veruleika.

Sjö látnir í Ísrael

Árásirnar í Ísrael í morgun eru þær blóðugustu í yfir tvö ár þar í landi. Sjö Ísraelar létust og um tuttugu særðust. Árásirnar voru þríþættar. Fyrst var skotið á rútubifreið sem innihélt venjulegt fólk og hermenn. Þá var sprengju skotið á fólksbíl og loks sprakk sprengja í vegarkanti þegar hermenn á leið á árásarstaðina fóru hjá.

Leigubílstjórinn: "Mér fannst þetta hálfskrýtið“

Hilmar Kristensson, leigubílsstjórinn sem kom að ungabarni sem hafði verið skilið eftir einsamalt í barnabílstól úti á gangstétt í morgun, segist hafa heyrt og séð ýmislegt á sínum 15 ára ferli sem leigubílsstjóri en aldrei upplifað neitt á borð við atburði morgunsins.

Ís féll á fætur ferðamanns í Kverkfjöllum - engin þyrla til reiðu

Rétt fyrir klukkan tvö í dag voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðar út til aðstoðar við erlendan ferðamann í Kverkfjöllum. Maðurinn, sem er svissneskur, er á ferð með tveimur samlöndum sínum og höfðu þeir gengið upp í Kverkfjöll á Vatnajökli og voru þau að skoða þar íshella. Svo virðist sem ís hafi fallið á fætur mannsins og telja samferðamenn hann vera brotinn á báðum fótum. Það tekur björgunarmenn um sex til átta klukkustundir að komast á staðinn og þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar er frá er verið að skoða hvort hægt sé að fá aðrar þyrlur til að flytja björgunarmenn á staðinn og þá jafnvel hinn slasaða til byggða.

Skotland krefur Shell upplýsinga

Skoska ríkisstjórnin hefur krafist frekari upplýsinga um versta olíuleka síðasta áratugar í norðurhöfum. Eins og fréttastofa hefur áður greint fóru pípur í sundur á einum olíuborpalla Shell útaf ströndum Skotlands í síðustu viku. Fyrirtækið hefur enn ekki komist fyrir lekann, en hann er nú töluvert minni en hann var í upphafi. Þegar hafa 13.0000 tunnur af olíu, sem nemur um 200 þúsund lítrum, farið í sjóinn. Talið er að um 4000 tunnur séu enn eftir í pípunum, eða 62 þúsund lítrar.

Vetraráætlun Strætó tekur gildi á sunnudag

Vetraráætlun Strætó tekur gildi sunnudaginn 21. ágúst. Tíðni ferða eykst á flestum leiðum og verður svipuð og síðasta vetur. Leiðir 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6:30 til 18:00 á virkum dögum í stað 30 mínútna í sumar. Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 aka einnig á 15 mínútna fresti, en einungis á annatímum, frá klukkan 6:30 til 9:00 og 14:00 til 18:00 á virkum dögum. Tíðni ferða á virkum dögum verður aukin töluvert á leið 23 sem ekur um Sjálandshverfi í Garðabæ og Álftanes en ekki verður lengur ekið að Vífilsstöðum. Auk þess mun verða ekið á leið 23 á laugardögum. „Árstíðabundnar breytingar á akstri Strætó taka mið af eftirspurn farþega. Skólar starfa alla jafna ekki yfir sumartímann og því dregur almennt úr notkun strætó. Sumarleyfi á almennum vinnumarkaði hafa einnig áhrif. Eftirspurnin eykst vanalega í ágústmánuði og þess vegna er tíðnin þá aukin samkvæmt vetraráætlun. Þar fyrir utan hefur farþegafjöldinn hjá Strætó almennt verið að aukast," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Nánari upplýsingar um vetraráætlun Strætó er að finna á vefnum www.straeto.is <http://www.straeto.is> og í síma 540 2700. Ný leiðabók fæst á öllum sölustöðum og kostar 50 krónu

Ríki ESB taka undir

Forsætisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands taka undir kröfu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um að Bashar al-Assad segi af sér.

Kona á áttræðisaldri slasaðist við Rauðhóla

Kona á áttræðisaldri slasaðist við Rauðhóla um hádegisbilið. Hjálparsveitir skáta í Reykjavík og Kópavogi fóru á staðinn og komu henni í sjúkrabíl nú fyrir skömmu. Hún er nú komin undir læknishendur.

Gunnar hleypur fimmta og síðasta hlaupið

Gunnar Ármannsson hleypur á laugardaginn í Reykjavíkurmaraþoninu, fimmta hlaupið í áheitahlauparöðinni til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Í vor og sumar hefur Gunnar hlaupið fjögur hlaup til styrktar Krabbameinsfélaginu undir slagorðinu „Ég hleyp af því ég get það". Gunnar greindist með hvítblæði á Þorláksmessu árið 2005 og eru nú um 5 ár síðan hann lauk lyfjameðferð og ákvað hann því að hlaupa fimm áheitahlaup til styrktar félaginu. Áheitahlaupin sem búin eru hafa verið hvert með sínu sniði; Parísarmaraþonið, 100 km hlaupið, Laugavegurinn, Jökulsárhlaupið og nú loks Reykjavíkurmaraþonið. Hægt er að lesa um reynslu Gunnars og hugleiðingar hans á bloggsíðunni hanshttp://garmur.blog.is/blog/garmur/entry/1185313/. <http://garmur.blog.is/blog/garmur/entry/1185313/> Núþegar hafa margir lagt málefninu lið og styrkt átakið með því að leggja inná söfnunarreikning félagsins 0301-26-102005, kt. 700169-2789 og inn á <http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2136> .

Obama krefst afsagnar Assad

Bandaríkjaforseti kallar í dag opinberlega eftir því að Sýrlandsforseti, Bashar al-Assad, leggi niður völd. Þá hefur Obama einnig hótað auknum refsiaðgerðum sem ku vera mun harkalegri en hinar fyrri, verði Assad ekki við ósk Bandaríkjanna.

Íslensk barnaföt í Magasin Du Nord

Íslenska barnafatamerkið Ígló er komið í sölu hjá stórversluninni Magasin Du Nord. Nú er því hægt að kaupa fatnað úr haust og vetrarlínunni 2011 í Magasin du Nord á Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn. „Við erum ótrúlega stolt að hafa komist inn í jafn virta stórverslun og Magasin Du Nord, enda berjast fatamerkin um að komast þar inn. Þetta var því mikilvægt skref fyrir Ígló. Ekki síður er skemmtilegt til þess að vita að Íslendingar búsettir í Kaupmannahöfn geta nú keypt Ígló á krílin sín og annarra en þeir þurfa samt að drífa sig áður en allt selst upp," segir Helga Ólafsdóttir, stofnandi og yfirhönnuður Ígló. Samkvæmt tilkynningu frá Ígló samanstendur haustlínan af litríkum kjólum, blúsum, bolum, buxum skyrtum og peysum með pífum, slaufum og olnbogabótum fyrir stelpur og stráka frá nýfæddu til 12 ára.

Hundur drap unga stúlku

Fjögurra ára stelpa lést í dag í Ástralíu þegar pitbull hundur réðst á hana, þar sem hún sat og horfði á sjónvarp. Móðir stúlkunnar var viðstödd árásina en gat ekkert gert þegar hundur nágrannans ruddist inn í stofuna og réðist á barnið.

Leyft að fasta í 15 daga

Mótmælandinn Anna Hazare hefur loks fengið leyfi til að fasta opinberlega í miðri Delhi í Indlandi. Þegar fréttir bárust af leyfinu ærðust stuðningsmenn hans af fögnuði, sungu og öskruðu.

Sex létust hið minnsta í Ísrael

Að minnsta kosti sex liggja í valnum eftir hryðjuverkaárásirnar í Ísrael í morgun. Um þaulskipulagðar árásir virðist hafa verið að ræða en fyrst létu byssumenn til skarar skríða gegn langferðarbíl í suðurhluta landsins. Skömmu síðar var önnur árás gerð á bifreið á sama svæði.

Þyrlan í gagnið um kvöldmatarleytið á morgun

Gert er ráð fyrir að þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF komist í gagnið að nýju um kvöldmatarleytið á morgun. Eins og greint var frá í morgun bilaði þyrlan í gær og hin þyrlan TF-GNÁ er í reglubundnu viðhaldi. Því er engin þyrla til taks hjá Gæslunni eins og staðan er í dag. Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi Gæslunnar segir að varahlutur hafi verið pantaður frá Noregi og er hann á leið til landsins.

Ilmur Kristjáns styður UNICEF

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir hvetur fólk til að koma vannærðum börnum á þurrkasvæðunum í austurhluta Afríku til aðstoðar og styrkja hjálparstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Hún leggur sitt af mörkum með því að koma fram í meðfylgjandi myndbandi þar sem vakin er athygli á alvarlegri stöðu í þessum heimshluta. Rúnar Ingi Einarsson hafði veg og vanda af myndbandinu, starfsfólk Pegasus gaf vinnu sína og hljómsveitin Sigur Rós veitti góðfúslega leyfi til að lagi þeirra Ára Bátur væri notað. Hægt er að styrkja söfnunina með því að fara inn á www.unicef.is eða hringja í 908-1000, 908-3000 og 908-5000. Smellið á tengilinn hér að ofan til að horfa á myndbandið

Leigubílstjóri fann barnið í bílstólnum

Það var leigubílstjóri sem var að þrífa bíl sinn á Seltjarnarnesi sem fann ungabarnið sem gleymdist út á gangstétt í morgun. Foreldrarnir gleymdu barninu þegar þeir fóru að bera út blöð klukkan sex í morgun. Leigubílsstjórinn kallaði til lögregluna sem rannsakaði málið þar til foreldrarnir gáfu sig fram.

Jóni Bjarnasyni hótað embættismissi

Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var hótað embættismissi vegna ágreinings milli hans og Össur Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, en Jón hefur ekki viljað svara spurningum Evrópusambandsins um landbúnaðarmál.

ÞÍ lýsir yfir fullum stuðningi við leikskólakennara

Þroskaþjálfafélag Íslands sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem félagið lýsir yfir fullum stuðningi við leikskólakennara í kjarabaráttu sinni og hvetur sveitarfélögin til að virða starf leikskólakennara að verðleikum.

Verðlaunablaðamaður handtekinn vegna símahlerana

Blaðamaðurinn James Desborough var í morgun handtekinn í tengslum við símahleranirnar á fjölmiðlinum News of the World. Handtakan er merkileg fyrir þær sakir að Desborough starfaði hjá útgáfu blaðsins í Los Angeles í Bandaríkjunum frá því í apríl 2009. Það vekur upp spurningar hvort Desborough notaði símahleranir í Bandaríkjunum, og þá hvort hann var sá fyrsti og eini.

Nýr samningafundur hjá leikskólakennurum

Boðað hefur verið til nýs samningafundar hjá forsvarsmönnum leikskólakennara og samninganefndar sveitafélaganna. Óvíst er hvort fundurinn verður haldinn síðar í dag eða á morgun. Fundi sem hófst klukkan ellefu um framkvæmd mögulegs verkfalls, er lokið. Ekki hafa fengist upplýsingar um niðurstöðu hans.

Yfir 20 þúsund krefjast afnáms verðtryggingar

Meira en 20.000 undirskriftir hafa nú safnst í undirskriftasöfnun heimilanna fyrir áfnámi verðtryggingar og almennum lánaleiðréttingum Þátttakendum fer samkvæmt teljara vefsíðunnar stöðugt fjölgandi og má því gera ráð fyrir að söfnunin nái innan skamms helmingnum af þeim 50.000 undirskriftum sem Hagsmunasamtök heimilanna stefna að fyrir 1. október. Þá hefur samtökunum borist liðsauki frá hópi listamanna, sem koma mun fram undir merkjum undirskriftasöfnunarinnar á Menningarnótt. Dagskráin fer fram neðarlega á Skólavörðustígnum en þar verða einnig sjálfboðaliðar samtakanna með nettengdar tölvur fyrir þá sem vilja skrá nafn sitt á listann, auk þess sem hægt verður að skrifa á lista sem liggja fyrir á staðnum. Alþingismönnum hefur verið boðið að gerast sjálfboðaliðar og taka við undirskriftum en samkvæmt tilkynningu frá hagsmunasamtökunum liggur ekki fyrir hversu margir taka þátt, ef einhverjir. Undirskriftasöfninin fer fram á síðunni undirskrift.heimilin.is <http://undirskrift.heimilin.is>

Vilja borga stjörnunum fyrir að ganga ekki í A&F

Bandaríska fatamerkið Abercrombie and Fitch hefur boðist til þess að greiða umtalsverðar upphæðir til leikara og framleiðanda þáttanna vinsælu Jersey Shore á MTV sjónvarpsstöðinni, fyrir að ganga ekki í fötum frá fyrirtækinu. Yfirleitt er þessu öfugt farið og greiða fyrirtæki oft fúlgur fjár til þess að vörumerki þeirra sjáist í vinsælum þáttum.

Ólykt í borginni - olíutankur opnaður í rangri vindátt

Ólyktin sem sumir borgarbúar hafa fundið í dag er til komin vegna þess að verið er að þrífa olíutank í Örfirisey. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stafar fólki ekki hætta af þessu, aðeins óþægindi vegna lyktarinnar. Ákveðnar reglur eru um í hvaða vindátt má opna tankana en í dag virðist það hafa verið gert í rangri vindátt, og er það ástæða þess að lyktin finnst í borginni.

Strokleður með fígúrum líklegust til að innihalda þalöt

Umhverfisstofnun hefur tekið saman nokkur ráð sem vert er að hafa í huga við kaup á skólavörum. Flestir bera saman verð og gæði við val á skólavörum en vert er að hafa í huga að stundum geta skólavörur innihaldið efni sem eru skaðleg börnum undir vissum kringumstæðum. Dæmi um slík efni eru þalöt í mjúku plasti og gúmmíi. Þau er að finna í fjölda skólavara, svo sem í drykkjarílátum, pennaveskjum, skólatöskum, nestisílátum, endurskinsmerkjum og strokleðri. Þá geta vörur með sterka efnalykt, til dæmis tússlitir og stroklegur, verið skaðleg. Umhverfisstofnun vekur athygli á því að þalöt raska hormónastarfsemi líkamans sem getur leitt til skertrar frjósemi og þótt búið sé að banna notkun algengustu þalata í leikföngum og ungbarnavörum nær bannið ekki til skólavara fyrir grunnskólabörn. Framleiðendur, innflytjendur og söluaðilar skólavara bera ábyrgð á að vörur þeirra uppfylli settar reglur. Nokkur ráð við heilsu- og umhverfismeðvituð kaup á skólavörum Veljið CE merktar vörur en CE merkið þýðir að varan er framleidd í samræmi við evrópska staðla og reglur Verið vandlát á gæði: Vandaðar vörur endast betur og skila umhverfislegum ávinningi í minna sorpi Forðist drykkjarílát úr mjúku plasti með endurvinnslumerkið PVC 3 og hörðu glæru plasti með endurvinnslumerkið 7 Ekki naga strokleður og plast „Algengt er að mjúkt plast og strokleður séu úr PVC-plasti (pólývinýlklóríð) sem inniheldur þalöt. Talið er líklegt að börn komist í mesta snertingu við þalöt við notkun á drykkjarflöskum úr plasti. Auk þess eru sumir plasthlutir þannig gerðir að börn freistast til að naga þá og eru þá útsett fyrir skaðlegum efnum á borð við þalöt í plastinu. Strokleður með fígúrum eða sem taka á sig hin ýmsu form eru líklegust til að innihalda þalöt en hægt er að kaupa strokleður án PVC. Þalöt geta losnað út í umhverfið í örlitlum mæli frá hlutum, loðað við ryk og verið langtímum saman í andrúmslofti innanhúss," segir á vef Umhverfisstofnunar.

Kraftmesti gervihnöttur Rússlands tapast

Rússneska geimferðastofnunin missti samband við gervihnött stuttu eftir flugtak. Nú standa yfir tilraunir til að ná aftur sambandi við hnöttinn, sem hefur verið lýst sem „kraftmesta fjarskiptahnetti Rússlands".

Rúta varð fyrir skotárás

Ísraelskur langferðabíll varð fyrir skothríð við landamærin milli Egyptalands og Ísrael nú fyrr í dag. „Þetta var hryðjuverkaárás," sagði á ísraelskri útvarpsstöð. Skothríðin virtist koma frá Egypsku hlið landamæranna, en minnst fjórir menn urðu fyrir meiðslum. Fréttir herma að ísraelskar öryggissveitir hafi elt árásarmennina uppi og þeir eigi nú í vopnuðum átökum.

Í fangelsi í Tælandi - vita ekki hvenær réttað verður yfir Brynjari

Borghildur Antonsdóttir, móðir Brynjars Mettinissonar sem handtekinn var fyrir fíkniefnamisferli í Bangkok í Tælandi fyrir um tveimur og hálfum mánuði, segist ekki vita hvenær réttað verði yfir syni sínum. Upphaflega var áætlað að réttarhöldin hefðust nú í ágúst.

Cameron mun ná fram félagslegum endurbótum

Breski þingmaðurinn, Iain Duncan Smith, telur óeirðirnar í síðustu viku marka vendipunkt í stjórnartíð David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Cameron muni nota eftirmála óeirðanna til að ná fram félagslegum endurbótum

Deila enn um fyrirkomulag verkfalls

Boðað hefur verið til nýs fundar um framkvæmd yfirvofandi verkfalls leikskólakennara, klukkan ellefu í dag. Forsvarsmenn Kennarasambands Íslands óskuðu eftir fundi í gær með fulltrúum sveitarfélaganna vegna málsins en þessir aðilar túlka verkfallsreglur á gjörólíkan hátt. Fundað var stíft í gær fram til klukkan hálf sjö um kvöldið, en þá var fundi slitið án niðurstöðu. Enn er því uppi ágreiningur um hvort deildir sem deildarstjórar í verkfalli stýra geti starfað áfram eða hvort þeim þurfi að loka. Forsvarsmenn sveitarfélaganna vilja manna stöður þeirra sem taka þátt í verkfallinu með starfsmönnum sem standa utan Félags leikskólakennara, en lögmaður Kennarasambandsins segir slíka tilhögun vera verkfallsbrot. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í kjaradeilu leikskólakennara, en þeir krefjast ellefu prósenta launahækkunar til viðbótar við sambærilegar hækkanir og aðrir launamenn hafa samið um.

Þrír efstu fá hrútasæði í verðlaun

Íslandsmeistaramótið í Hrútadómum, sem venjulega kallast einfaldlega hrútaþukl, verður haldið á laugardaginn í Sauðfjársetrinu á Ströndum. Þetta er í níunda sinn sem mótið er haldið. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík. „Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja," segir í tilkynningu frá Sauðfjársetrinu. Veglegir vinningar eru í boði og til að mynda fá þrír efstu í flokkri reyndra þuklara nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands.

Fleiri vilja í heimilislækningar

Ellefu læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heilsugæslulækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þeim gæti fjölgað enn frekar áður en námið hefst í lok mánaðarins því fleiri hafa sýnt því áhuga. Fyrir stunda tólf læknar sérnámið hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir