Fleiri fréttir

Bjarni ræddi við Guðna í dag

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræddi við Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands í síma í dag en ekki fást upplýsingar um hvað þeir ræddu.

Úrræði vantar fyrir vegalaus börn

Tveir hælisleitendur á barnsaldri, sem smygluðu sér einsamlir hingað til lands með Norrænu í september, fundust illa til reika í yfirgefnum bíl á Breiðdalsvík skömmu eftir komuna til landsins. Þeir eru nú í umsjá félagsmálayfirvalda á Reyðarfirði.

Vöðvasullur dúkkar upp

Ekki hættulegur mönnum en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti og hugsanlega óþægindum fyrir féð.

Ingunn Einarsdóttir er látin

Ein fyrsta afrekskona Íslendinga í frjálsíþróttum er látin eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri. Hún var um tíma í sérflokki og ósigrandi í spretthlaupum hér á landi.

Eigum ennþá met í notkun ADHD-lyfja og neyslan vex

Íslendingar eiga ennþá Norðurlandametið í notkun á ADHD-lyfjum. Átta þúsund manns fá á ári hverju ávísað lyfjum eins og rítalíni og concerta. Skýrar vísbendingar eru um misnotkun þessara lyfja og þau eru vinsæl hjá sprautufíklum. Íslendingar eiga líka met í ávísunum á amfetamín.

Tengja ferðamenn við íslenska náttúru með nútímalegum hjólhýsum

Íslenskir frumkvöðlar vinna nú að því að setja hjólhýsi sem eru sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður á markað. Þó að hýsin séu gædd nýjustu tækni á borð við þráðlaust internet og hátalarakerfi er tilgangurinn að tengja ferðamenn betur við náttúruna á Íslandi.

Útilokar fjögurra flokka stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar útilokar þátttöku í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum jafnvel þótt Björt framtíð yrði líka með í fjögurra flokka stjórn. Fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins telur besta kostinn fyrir þjóðina vera ríksstjórn sem felur í sér samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins.

Bæjarstjórinn í Garðabæ fær afsökunarbeiðni frá Rauða Krossinum

Haft var eftir ónafngreindum viðmælanda í skýrslu Rauða krossinns um um aðstæður aðþrengds fólks í Reykjavík að Garðabær eigi íbúðir í Reykjavík sem séu lánaðar fólki svo það fái heimilisfesti í Reykjavík fremur en í Garðabæ. Rauði krossinn hefur nú leiðrétt þessa staðhæfingu.

Kjararáð kyndir undir gremju meðal kennara

Grunnskólakennarar ræddu í vikunni að leggja niður störf. Úrskurður kjararáðs um laun þingmanna ýfir upp óánægju með kjörin. Hafa tvisvar fellt kjarasamninga. Launin eru það sem helst steytir á en einnig vinnutími og vinnuumhverfi.

Vilja "aftengja tímasprengju“

„Þetta er sprengja og á meðan hún er þarna inni þá tifar hún. Það eru að verða lausir samningar hjá ýmsum stéttum, kennurum og sjómönnum og svo eru allir samningar lausir í vor,“ segir Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.

Milljarðatjón hefur lítil áhrif

Nýtt áhættumat um jarðskjálftahættu á Íslandi er komið út. Þar segir að líkurnar séu um 1 á móti 400 að á hverju ári gæti orðið tjón upp á yfir 45 milljarða króna. Viðlagatrygging Íslands sögð standa traustum fótum.

Tóku boði í Fell við Jökulsárlón

Sýslumaðurinn á Suðurlandi hefur tekið 1.520 milljóna króna tilboði Fögrusala ehf. í jörðina Fell við Jökulsárlón. Þrjú tilboð lágu fyrir í eignina en Fögrusalir buðu hæst.

Lögregla sögð hunsa Fellahverfi

Erlendur verslunareigandi í Fellahverfi segir lögregluna sinna símtölum þaðan illa. Íbúar telja að þótt unnið sé öflugt starf vegna félagslegra vandamála sem hafa einkennt hverfið lengi þurfi meira fé og betri úrræði.

Benedikt segir Bjarna stýra dagskránni í bili

Bjarni Benediktsson fundaði með þingflokki sínum í gær. Hlé verður á viðræðum um helgina á meðan Bjarni hugsar um framhaldið. Hvorki Óttarr Proppé né Benedikt Jóhannesson funduðu með Bjarna í gær og eru ekki boðaðir á fund.

Hafna hótelstækkun á Mývatni

Umhverfisstofnun leyfir ekki stækkun Hótels Reykjahlíðar, samkvæmt hugmyndum Icelandair Hotels. Heimilar ekki viðamikla uppbyggingu aðeins 50 metra frá Mývatni – langt innan verndarlínu sérlaga.

Símanum svarað sjaldnar en áður

Gríðarleg óánægja er meðal farþega ferðaþjónustu fatlaðra hjá Strætó. Sumir notendur hafa hreinlega gefist upp á því að reyna ná inn í símaverið.

Skemmtiferðaskip streyma á Siglufjörð

„Þetta er allt á mikilli uppleið,“ segir Ólafur Haukur Kárason, formaður hafnarstjórnar Fjallabyggðar, sem fagnaði á síðasta fundi sínum mikilli fjölgun skemmtiferðaskipa sem koma til Siglufjarðar.

„Þetta eru vandamál sem enginn hefur þorað að tala um“

"Þetta eru vandamál sem eru búin að vera til staðar en enginn hefur þorað að tala um,“ segir formaður ungmennaráðs Breiðholts um skýrslu Rauða Krossins um slæma stöðu fátækra barna í hverfinu. Formaður íbúasamtakanna Betra Breiðholt segir niðurstöðurnar sláandi, en að þær komi þó ekki á óvart.

Stór hópur fær amfetamín ávísað með lyfseðli

Sjötíu og tveir einstaklingar fengu ávísað amfetamíni með lyfseðli á síðasta ári samkvæmt gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands. Þetta er hlutfallslega mun meira en þekkist á hinum Norðurlöndunum.

Kennarar farnir að segja upp

Uppsagnir grunnskólakennara vegna kjaradeilu þeirra og sveitarfélaganna hafa þegar borist Reykjavíkurborg. Í einum skóla hafa þrír kennarar sagt upp. Formaður Félags grunnskólakennara segir kennurum raunverulega nóg boðið og næga vinnu að fá annars staðar.

Sjá næstu 50 fréttir