Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Komu erlendum ferðamanni á fjallaskíðum til bjargar Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna erlends ferðamanns á fjallaskíðum í nágrenni Ólafsfjarðar. Tilkynnt hafði verið um skíðamanninn um hádegisbil en sá hafði farið upp frá Vermundarstöðum skammt frá Ólafsfirði og ekki skilað sér niður á áætluðum tíma. 16.3.2022 16:27
237 hafa sótt um vernd hér á landi frá því að átökin hófust Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir tæplega þremur vikum hafa 237 einstaklingar með úkraínskt ríkisfang komið til Íslands og sótt um vernd. Miðað við þann fjölda er áætlað að 280 sæki um vernd það sem eftir er mars. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu frá landamærasviði ríkislögreglustjóra. 16.3.2022 15:59
Diljá kveður borgarpólitíkina ósátt við kosningafyrirkomulag Diljá Ámundadóttir Zoëga hefur ákveðið að þiggja ekki fimmta sæti á lista Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. 16.3.2022 14:00
Lítil áhætta fólgin í breytingu á sölu Parkódíns en mikilvægt að hafa varann á Yfirlæknir á Vogi hefur litlar áhyggjur af því að sjúklingar sem greinst hafa með Covid-19 fái Parkódín án lyfseðils í litlu magni en segir þó mikilvægt að hafa varann á þar sem um ávanabindandi lyf er að ræða. Tímabundin heimild Lyfjastofnunar gildir í rúman mánuð en takmarkanir verða settar á hverjir geta fengið lyfið. 16.3.2022 13:31
Orðið óþolandi að taka slag um sýslumenn á tveggja ára fresti Dómsmálaráðherra vill fækka embættum sýslumanna sem nú eru níu og hafa einn sýslumann yfir landinu öllu. Bæjarstjóri Vestmannaeyja leggst eindregið gegn áformunum og efast um að landsbyggðarþingmenn hleypi málinu í gegn. Ráðherrann vill þó halda störfum á landsbyggðinni og telur breytinguna jákvæða fyrir byggðarlög landsins. 16.3.2022 13:31
Bein útsending: „Stríð, mannréttindi og lýðræði“ Félag stjórnmálafræðinga, Alþjóðamálastofnun HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála munu standa fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni „Stríð, mannréttindi og lýðræði: Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna?“ í dag klukkan 12 í Öskju 132 í Háskóla Íslands. 16.3.2022 11:30
Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig, VG dalar Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig mestu fylgi á milli mánaða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Vinstri græn er eini stjórnarflokkurinn sem tapar fylgi á milli skoðanakannana. 16.3.2022 11:28
Hádegisfréttir Bylgjunnar Efnahagshorfur hafa versnað vegna stríðsins í Úkraínu að mati fjármálastöðuleikanefndar Seðlabankans þótt heimili og fyrirtæki standi vel. 16.3.2022 11:20
Konan sem storkaði dauðanum með bros á vör Ljósmyndarar Vísis sáu sér til skelfingar þegar brimið náði taki á konu nokkurri, bandarískum ferðamanni, en betur fór en á horfðist. Myndirnar sem þeir náðu af atvikinu eru einhvers staðar mitt á milli þess að geta talist stórfenglegar og skelfilegar. 16.3.2022 11:05
Örnefnanefnd mælir með þremur nöfnum á sameinuðu sveitarfélagi Örnefnanefnd telur að þrjár af þeim tillögum sem bárust nefndinni til umsagnar um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, falla best að nafngiftahefð í landinu. Það eru nöfnin Suðurþing, Laxárþing og Goðaþing. 16.3.2022 10:54
Eldur kom upp í bíl á Miklubraut Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í bíl á Miklubraut, milli Háaleitisbrautar og Grensásvegar skömmu fyrir klukkan níu í morgun. 16.3.2022 09:08
Hæg umferð í höfuðborginni Mikil hálka er á höfuðborgarsvæðinu og það gengur á með dimmum éljum. Umferðin gæti orðið hæg í morgunsárið vegna lélegrar færðar. 16.3.2022 09:04
Covid-smitaðir geta fengið Parkódín án lyfseðils Sjúklingar með virkt Covid-19 smit munu nú geta keypt Parkódín (500 mg/10 mg) án lyfseðils með tímabundinni heimild Lyfjastofnunar frá og með deginum í dag. 16.3.2022 08:40
Gera sér vonir um að sjá fyrir enda rannsóknarinnar Andlát sem varð á geðdeild Landspítalans í ágúst síðastliðnum, þar sem hjúkrunarfræðingur er grunaður um að hafa orðið sjúklingi að bana, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 16.3.2022 08:12
Velti stolnum bíl Lögreglu barst tilkynning rétt fyrir miðnætti að bíl hefði verið stolið í Hafnarfirði eða Garðabæ. Sá sem tilkynnti um þjófnaðinn var sjálfur að veita þjófnum eftirför þegar hann hringdi á lögregluna. 16.3.2022 07:19
Vill fækka sýslumönnum úr níu í einn Ef frumvarp sem Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra er með í pípunum verður samþykkt mun sýslumannsembættum á landinu fækka um átta og aðeins einn mun standa eftir. 16.3.2022 07:14
Forsetafrúin fundaði með Joe og Jill Biden Eliza Reid forsetafrú fundaði með Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna um jafnréttismál í Hvíta húsinu í Washington í dag. Eiginmaður Jill, sjálfur Bandaríkjaforseti, kom einnig til fundarins og ræddi við Elizu. 15.3.2022 23:36
Segir Agnieszku enn reyna að grafa upp hluti til að nýta í árásir Í dag samþykkti stjórn Eflingar að láta lögfræðing framkvæma sérstaka lögfræðiúttekt á samningum stéttarfélagsins. Frá þessu greinir Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, og segir úttektina hluta af áframhaldandi tilraun Agnieszku Ewa Ziólkowska, fráfarandi formanns, til að reyna að „grafa upp eitthvað sem gagnast gæti í árásum hennar“ á sig. 15.3.2022 22:53
Umhleypingar koma ferðamönnum á óvart Björgunarsveitir hafa í tvígang þurft að sækja erlenda ferðamenn á hálendið við erfiðar aðstæður á rúmri viku. Björgunarsveitarmaður segir langt síðan að björgunarsveitir hafi upplifað jafn annasama tíð og undanfarið. 15.3.2022 21:02
Þyngdi dóm vegna nauðgunar sem heyrðist í símtali Fangelsisdómur Ali Conteh, tæplega fertugs karlmanns, var í dag þyngdur um hálft ár í Landsrétti og verður honum gert að sæta fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun sem hann framdi árið 2018. 15.3.2022 19:35
Þriggja bíla árekstur í fljúgandi hálku á Reykjanesbraut Þrír bílar skullu saman á Reykjanesbraut rétt í þessu. Sjúkraflutningalið er enn á vettvangi og gera má ráð fyrir töfum á umferð. 15.3.2022 18:38
„Einhvern veginn hefur okkur tekist að krafla okkur í gegnum þetta“ Þeim hefur fækkað nokkuð síðustu daga sem greinst hafa með kórónuveiruna. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, vonast til að það sé til marks um að faraldurinn sé loksins á niðurleið. 15.3.2022 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðastliðna nótt. 15.3.2022 18:00
Engin mál hjá lögreglu vegna grunsamlegs blás sendibíls Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur engin mál á borði sínu vegna karlmanns sem ekur um á bláum sendibíl í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan veit þó um hvern ræðir og segir hann einn af stórum hópi skutlara sem vaði uppi vegna ástandsins á leigubílamarkaðnum. 15.3.2022 17:17
Katrín segir það hafa verið mjög áhrifamikið að heyra beint í Selenskí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í Lundúnum í dag með leiðtogum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Bretlands og Hollands sem mynda Sameiginlegu viðbragðssveitina (e. Joint Expeditionary Force) um stöðuna í Úkraínu. 15.3.2022 17:00
Áminntur fyrir að kalla þingmenn Samfylkingarinnar krónprinsessu og jóker Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, áminnti Friðjón R. Friðjónsson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins fyrir að kalla tvo þingmenn Samfylkingarinnar krónprinsessu og jóker í spilastokk Samfylkingarinnar. 15.3.2022 15:49
Ótrúlegt að risastór alda hafi ekki valdið skemmdum á Granda Telja má magnað að glerið hafi ekki brotnað og engar skemmdir orðið þegar afar stór alda skall á framhlið húsnæðis framleiðslufyrirtækisins Snark á Granda í nótt. Tveir bílar sluppu líka við skemmdir þó annar hafi færst til á bílastæðinu. 15.3.2022 15:29
Ekki gert ráð fyrir sveitarstjóra í nýju sveitarfélagi Ekki er gert ráð fyrir að sveitarstjóri verði ráðinn þegar sameining Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar tekur gildi. Þrír sviðsstjórar og einn kjörinn fulltrúi munu þess í stað mynda framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, sem verður víðfeðmasta sveitarfélag landsins. 15.3.2022 14:11
Mikið inngrip að svipta trúfélag sóknargjöldum Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis segir útskúfunarmál í söfnuði Votta Jehóva, sem gerð voru skil í Kompás í gær, vekja þingheim til umhugsunar. 15.3.2022 13:30
Íslendingur í Kænugarði segir Rússa orðna örvæntingarfulla Forsætisráðherrar þriggja austurevrópulanda funda með forseta Úkraínu í Kænugarði í dag. Höfuðborgin varð fyrir einum mestu loftárásum stríðsins síðast liðna nótt. Óskar Hallgrímsson sem býr í borginni segir Rússa orðna örvæntingarfulla því Úkraínumönnum hafi gengið vel að rjúfa birgðaleiðir þeirra. 15.3.2022 12:50
Átta vilja stýra úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Átta umsækjendur sóttu um embætti forstöðumanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem auglýst var laus til umsóknar í síðasta mánuði. 15.3.2022 12:44
Ráðherra skipar starfshóp um réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks „Ég tel nauðsynlegt að taka þessi mál upp að nýju og nýta þá vinnu sem fyrir liggur í þessum efnum,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, sem hefur ákveðið að taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við tilkynningar og rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu. 15.3.2022 12:27
„Ég er ekki hálfviti – við ættum að ganga í Evrópusambandið“ Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens, holdgervingur íslensku þjóðarsálarinnar, er kominn á þá skoðun að réttast sé fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. 15.3.2022 12:20
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um ástandið í Úkraínu og rætt við Óskar Hallgrímsson íbúa í Kænugarði sem varð harkalega var við sprengjuregnið í nótt. 15.3.2022 11:39
Burðardýr í hálfs árs fangelsi fyrir kókaíninnflutning Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu á fertugsaldri í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega 300 grömmum af kókaíni í flugi frá París til Íslands í mars 2020. Konan flutti efnin í sjö pakkningum sem hún faldi innvortis. 15.3.2022 11:24
Íslenska ríkið braut gegn mannréttindum Bjarka Íslenska ríkið braut gegn sjöttu grein Mannréttindasáttmála Evrópu þegar Bjarka Diego, sem starfaði sem framkvæmdastjóri útlana hjá Kaupþingi, var kallaður inn sem vitni í maí 2010, við rannsókn sérstaks saksóknara, í stað þess að fá réttarstöðu grunaðs. 15.3.2022 11:15
Eliza til fundar við Jill Biden í Hvíta húsinu Eliza Reid forsetafrú er nú stödd í bandarísku höfuðborginni Washington DC þar sem hún mun í dag eiga einkafund með Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu. 15.3.2022 09:56
Alvarleg bilun hjá Vatnsveitu Kópavogs Alvarleg bilun kom upp í dælustöð vatnsveitu Kópavogs í nótt líklega í tengslum við veðrið sem gekk yfir. Unnið er að viðgerð. 15.3.2022 08:31
Vöknuðu við mestu sprengingarnar í rúma viku Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði og eiginkona hans Mariika vöknuðu við miklar sprengingar og læti klukkan fimm í nótt. Hann segir þetta mestu sprengingarnar í borginni í heila viku. 15.3.2022 08:18
Slökkvilið ítrekað kallað út vegna vatnsleka Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast síðasta sólarhringinn þegar vatnsveður gekk yfir borgina. Mikið var um vatnsleka og samtals voru dælubílar slökkviliðsins kallaðir tólf sinnum út til að sinna slíkum verkefnum. 15.3.2022 07:19
Vill skoða betur vaktafyrirkomulag og frítökurétt hjá HSS Heilbrigðisráðherra segir úrbætur í heilbrigðisþjónustu Suðurnesja komnar í farveg. Hann vill skoða betur hvort vaktafyrirkomulag Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) skapi furðumikinn frítökurétt lækna, sem geri það að verkum að þeir starfi mikið á öðrum heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. 15.3.2022 07:01
Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi Ferðamaðurinn sem leitað var á Mælifellssandi við Fjallabak er fundinn heill á húfi. Að sögn Landsbjargar var hann orðinn nokkuð kaldur og hrakinn en heilsast að öðru leyti vel. 15.3.2022 00:03
Reykvíkingar fara sjálfir með ruslið í aftakaveðri Sorphirða í Reykjavík er í sögulegum ólestri - pappír og plasttunnur hafa flestar ekki verið tæmdar í tæpar sjö vikur. Skýringin: Röð óheppilegra atvika. 14.3.2022 23:08
Vaka kynnir framboðslistana Framboðslistar Vöku - hagsmunafélags stúdenta við Háskóla Íslands vegna kosninga til Stúdentaráðs Háskóla Íslands voru kynntir í kvöld. Kosningarnar fara fram 23. og 24. mars næstkomandi. 14.3.2022 22:50
Ullarbændur í Öxarfirði selja lopa beint frá býli Ung hjón sem áttu sér þann draum að setjast að í sveit ásamt börnum sínum þremur ákváðu að gerast ullarbændur í Öxarfirði og selja lopaband beint frá býli. Svo vel hefur gengið að þau hafa vart undan við framleiðsluna. 14.3.2022 22:44