Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samherji á nú aðild að fimmtungi heildarkvótans Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi á Samherji aðild að fimmtungi heildarveiðiheimilda í landinu sem er verulega yfir lögbundnum viðmiðum. Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi, tilfærslu veiðiheimilda og auðssöfnun fárra í greininni. 12.7.2022 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því að stjórnvöld ætla að taka upp veggjöld í öllum göngum landsins til að standa undir gerð nýrra gangna. Meðal annars umdeildra gangna undir Fjarðaheiði sem kosta 70 milljónir á hvern íbúa Seyðisfjarðar. 12.7.2022 18:16
Sex umferðarslys á Austurlandi í júní Alls voru sex umferðarslys, auk eins banaslyss, tilkynnt til lögreglunnar á Austurlandi í júnímánuði. Hlúa þurfti að alls níu einstaklingum vegna áverka sem þeir hlutu í slysunum. 12.7.2022 18:14
Fyrst íslenskra framhaldsskóla til að þróa „STEAM“ áfanga Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut styrk frá þróunarsjóði námsgagna nú á dögunum. Með styrknum mun skólinn þróa námsefni út frá nýrri kennslustefnu sem skólinn er í þann mund að taka, en MB mun verða fyrsti framhaldsskóli landsins til þess að bjóða upp á sérstaka „STEAM“ áfanga. 12.7.2022 17:30
Bjarni Sæmundsson í úthafsrækjuleiðangri Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er að hefja sautján daga leiðangur til að skoða útbreiðslu og magn rækju í úthafinu fyrir norðan og norðaustan landið. Um borð eru fjórir vísindamenn og tólf manna áhöfn en alls verða teknar 86 stöðvar í stofnmælingunni. 12.7.2022 15:39
35 þúsund nýjar íbúðir til að skapa jafnvægi á markaði Ríki og sveitarfélög ætla sér að byggja 35 þúsund nýjar íbúðir á næstu tíu árum og var ammasamningur um það markmið undirritaður í dag. Íbúðunum er ætlað að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf og skapa langþráð jafnvægi á húsnæðismarkaði. 12.7.2022 14:23
Kraumandi fordómar gegn hinsegin fólki komnir upp á yfirborðið Íris Ellenberger, dósent í samfélagsgreinum við Háskóla Íslands, segir ákveðið bakslag hafa orðið í réttindum hinsegin fólks. Fjandsamleg orðræða gagnvart hinsegin fólki sé orðin opinberlega viðurkennd. Hún segir að við þurfum sífellt að vera á varðbergi og halda samtalinu virku. 12.7.2022 13:58
„Þetta er grundvallarástæðan fyrir því að svo margir eru ósáttir við kvótakerfið“ Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi í ljósi kaupa Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík. Kaupin sýni hvernig gríðarlegur auður getur safnast á fárra manna hendur vegna kerfis sem var búið til fyrir tugum ára. Fjármálaráðherra segir að sameiningar í sjávarútvegi hafi reynst þjóðarbúinu vel. 12.7.2022 13:01
Segir sjónaukann marka nýtt upphaf í stjarnvísindum Fyrsta ljósmyndin úr James-Webb geimsjónaukanum birtist í gærkvöldi og eru fleiri myndir væntanlegar klukkan hálf þrjú í dag. Þetta eru skýrustu myndir sem mannkynið hefur tekið og séðaf sumum af daufustu og fjarlægustu vetrarbrautum til þessa. Stjörnu-Sævar segir þetta sögulegan dag og marka nýtt upphaf í stjarnvísindum. 12.7.2022 12:27
Skjálftahrina norðaustur af Reykjanestá Um þrjátíu jarðskjálfta skjálftahrina varð í morgun norðaustur af Reykjanestá. 12.7.2022 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi í ljósi kaupa Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík. Við ræðum við Katrínu Jakobsdóttur um málið í hádegisfréttum. 12.7.2022 11:37
Sveitarstjóri fái að fara suður aðra hverja viku Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri á Tálknafirði hefur leyfi sveitarstjórnar til að fara suður aðra hverja viku og vinna þaðan þegar verkefni sveitarfélagsins krefjast ekki staðsetningar hans á staðnum. Í ráðningarsamningi er ekkert kveðið á um þetta en oddviti sveitarfélagsins segir þetta hluta af stefnu um fjölskylduvæna atvinnustarfsemi. 12.7.2022 10:50
Atvinnuleysi hefur minnkað hratt en er mest á Suðurnesjum Samkvæmt Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans hefur atvinnuleysi minnkað hraðar en reiknað var með en Hagsjáin vitnar í tölur Vinnumálastofnunar. Ekki séu margar vísbendingar um að atvinnuleysi muni aukast mikið. 12.7.2022 09:06
Bíllyklum og farsímum stolið úr búningsklefa Tilkynnt var um þjófnaðarbrot hjá íþróttafélagi í Grafarholti síðdegis í gær. Þar var búið að fara í búningsklefa og stela verðmætum frá ungum knattspyrnuiðkendum. 12.7.2022 08:57
„Fasteignamarkaðurinn er líkast til að taka stakkaskiptum“ Óverðtryggð lán eru mun hægkvæmari en verðtryggð um þessar mundir, segir í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS fyrir júlímánuð. Hlutfall íbúða sem seldist yfir ásettu verði dróst saman í maí og þá fór meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu úr 35 dögum í 46 daga. 12.7.2022 07:48
Gul viðvörun í gildi fyrir Austfirði Skammt suðaustur af Hornafirði er allkröpp lægð á norðurleið. Í hugleiðingum Veðurfræðings hjá Veðurstofunni segir að sökum hennar sé nú norðanáttin ríkjandi á landinu. 12.7.2022 07:30
Ekkert barn veiktist alvarlega af Covid-19 fyrir haustið 2021 Ekkert þeirra barna sem greindust með Covid-19 fyrir haustið 2021 varð alvarlega veikt, þrátt fyrir að börnin hefðu ekki verið bólusett. Tæpur fjórðungur var einkennalaus en þrjú af hverjum fjórum sýndu meðalmikil einkenni. 12.7.2022 06:40
Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni. 11.7.2022 22:10
Blendnar tilfinningar og gríðarlegir hagsmunir í húfi Forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar segist hafa blendnar tilfinningar um kaup Síldarvinnslunnar á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísir. Alls starfa 230 íbúar Grindavíkur hjá fyrirtækinu. 11.7.2022 21:42
„Hann var viðkunnanlegur maður og vel þekktur fyrir stjórnvisku sína“ Sendiherra Japans á Íslandi segir að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans sem var myrtur fyrir helgi, hafi verið einstaklega góður maður og segist í áfalli vegna voðaverksins. 11.7.2022 20:30
Spriklandi hressir og kátir Grundfirðingar Eldri borgarar í Grundarfirði slá ekki slöku við því þeir koma saman nokkrum sinnum í viku í íþróttahúsinu á staðnum til að hreyfa sig og gera fjölbreyttar leikfimisæfingar í þeim tilgangi að styrkja sál og líkama. 11.7.2022 20:04
Sveitarstjóri Dalabyggðar með tæplega 1,7 milljón króna í mánaðarlaun Björn Bjarki Þorsteinsson var í dag ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar en hann fær 1,675 milljón króna í mánaðarlaun auk ökutækjastyrks sem nemur 127 þúsundum króna. Ellefu umsóknir um stöðuna bárust en þeim var öllum hafnað og var Björn Bjarki ráðinn í staðinn. 11.7.2022 19:28
Konur með um 86 prósent af heildarlaunum karla Konur sem vinna fulla vinnu eru með um 86 prósent af heildarlaunum karla, en launamunurinn er mestur hjá ríkinu. Grunntímakaup hefur hækkað töluvert á þremur árum, eða um tæp 23 prósent. 11.7.2022 19:00
Bandaríkjamenn bera af í brottförum Alls voru brottfarir erlendra farþega frá landinu í gegnum Keflavíkurflugvöll 176 þúsund talsins í júní. Aðeins fjórum sinnum hefur meiri fjöldi ferðamanna farið í gegnum flugvöllinn í júnímánuði síðan mælingar hófust. 11.7.2022 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Síldarvinnslan hefur keypt útgerðarfyrirtækið Vísi í Grindavík. Það getur þýtt að Síldarvinnslan fari upp fyrir leyfilegan hámarkskvóta. Við ræðum við forseta bæjarstjórnar Grindavíkur um kaupin í beinni útsendingu í kvöldfréttatíma okkar klukkan 18:30. Við ræðum einnig við forstjóra Síldarvinnslunnar og framkvæmdastjóra Vísis um kaupin svo og íbúa í bænum. 11.7.2022 18:18
Hafnar því að verið sé að koma kvóta milli kynslóða Forstjóri Síldarvinnslunnar er ánægður með kaup félagsins á Vísi. Fyrirtækið dansi á línunni í kvótaviðmiðum en þau muni aðlaga heimildir eftir þeim ramma sem þeim er sniðinn. Framkvæmdastjóri Vísis segir sameiningu fyrirtækjanna fela í sér eflingu starfseminnar og hafnar því að með sölunni sé verið að koma kvóta til næstu kynslóða. 11.7.2022 17:22
Launaviðtalið varð að líkamsárás Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast á höfuðborgarsvæðinu í dag. Útköllin voru af mörgum toga í dag og má þar nefna að maður gekk berserksgang í verslun, menn slógust í miðbænum og var stolnum bíl ekið aftan á strætó. 11.7.2022 16:48
Ein og hálf milljón króna á mánuði fyrir að stýra 255 manna hreppi Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðar, fær 1,55 milljón króna í mánaðarlaun samkvæmt nýgerðum ráðningarsamningi. Hann fær einnig 400 kílómetra akstursstyrk og sveitarfélagið greiðir fyrir hann bæði síma og net. 11.7.2022 15:03
Grunaður um ölvunarakstur vegna banaslyssins á Meðallandsvegi Ökumaðurinn sem slapp ómeiddur frá banaslysi á Meðallandsvegi aðfaranótt föstudags er grunaður um ölvun við akstur bifreiðarinnar. 11.7.2022 14:37
Vildi vera krúttlegur teppalistamaður en endaði sem stríðsljósmyndari Óskar Hallgrímsson segist lifa tvöföldu lífi, annars vegar búi hann til krúttleg teppalistaverk ásamt eiginkonu sinni og hins vegar sé hann ljósmyndari á stríðshrjáðu svæði. 11.7.2022 14:31
Takmarka eigi lausagöngu katta til að hlífa fuglum Varptími smáfugla stendur yfir þessa dagana og bendir Fuglavernd kattaeigendum því á að halda köttum sínum inni á næturnar. Undanfarin ár hefur dýravinur í Vesturbæ vakið athygli á fuglaveiðum katta í nær árlegri færslu á Facebook. Hún segir kattaeigendur í nágrenninu orðna meðvitaðri um ábyrgðarhlutverk sitt af því í ár hafi ungar komist á legg í fyrsta skipti í hverfinu. 11.7.2022 13:31
Hvert barn fær um 3,3 milljarða í sinn hlut fyrir Vísi Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur keypt allt hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík. Kaupverðið er tuttugu milljarðar króna og yfirtekin lán ellefu milljarðar króna. Eigendur Vísis fá sex milljarða greitt í reiðufé og eignast átta prósenta hlut í Síldarvinnslunni 11.7.2022 13:17
Sektaður um 323 milljónir króna vegna skattalagabrots Karlmaður á sextugsaldri var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot. Að auki var honum gert að greiða 323 milljóna króna sekt vegna brotsins. 11.7.2022 13:15
Tveir sóttir með þyrlu á Snæfellsnes eftir bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna bílslyss austan við Grundarfjörð. 11.7.2022 13:07
Fjárhagsstaða heimilanna óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði Fjárhagsstaða heimilanna er óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði, en grunntímakaup hefur hækkað um tæp 23 prósent á vinnumarkaði. 11.7.2022 12:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um kaup Síldarvinnslunnar á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík. 11.7.2022 11:36
Hlutfall skráðra í Þjóðkirkjuna undir sextíu prósent í fyrsta sinn Rúmlega 228 þúsund manns eru skráð í þjóðkirkjuna og er hlutfall skráðra 59,9 prósent. Mun það vera í fyrsta sinn sem hlutfall skráðra fer undir 60 prósent. 11.7.2022 11:31
Lægð yfir landinu þessa vikuna Útlit er fyrir rigningu og norðanátt þessa vikuna. Skýjað og víða lítilsháttar væta verður í dag, en seinnipartinn má búast við meiri vætu fyrir austan með vaxandi norðanátt, samkvæmt vef Veðurstofunnar. 11.7.2022 11:18
Fjórfalt fleiri flugferðum aflýst Fjórfalt fleiri flugferðum frá Keflavíkurflugvelli var aflýst í júní en á sama tíma árið 2019. 11.7.2022 11:07
Regína verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Hún mun gegna starfinu til 2026 en hún er fyrir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur unnið þar í fimm ár. Fyrir það var hún bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. 11.7.2022 10:26
Gestabók á afgreiðsluhúsi hellanna á Hellu Ein stærsta gestabók landsins, ef ekki sú stærsta er utan á húsi á Hellu. 11.7.2022 08:00
Lögregla kölluð til vegna óstýrlátra viðskiptavina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út um kvöldmatarleytið í gær vegna þriggja einstaklinga sem voru til vandræða á veitingastað í póstnúmerinu 111. Var einstaklingunum vísað á brott. 11.7.2022 06:22
Hægt að stórauka útflutning á íslensku grænmeti Forsvarsmenn Pure Arctic segja mikla möguleika á útflutningi á íslensku grænmeti ef tryggt verði að grænmetisræktendur fái raforkuna á sama verði og stóriðjan. Nú þegar er töluvert flutt út af gúrkum og öðru grænmeti til Danmerkur, Grænlands og Færeyja. 10.7.2022 20:05
Foreldrar hlýddu forsetanum og höguðu sér vel að mestu Forseti Íslands var á Símamótinu í Kópavogi í dag og hvatti áfram ungar knattspyrnustelpur. Hann segir mikilvægt að leyfa börnum að leika og leika sér á knattspyrnumótum. Enginn komist í landsliðið vegna æstra foreldra á hliðarlínunni. Mótinu lauk í dag og að sögn eins skipuleggjenda þess virðast foreldrar hafa hlýtt forsetanum. 10.7.2022 20:01
Festu bíl úti í miðri Steinsholtsá Björgunarsveitir og skálaverðir í Langadal í Þórsmörk voru kallaðir út rétt fyrir klukkan sex í kvöld þegar tilkynnt var um fastan bíl úti í miðri Steinsholtsá. Tveir menn voru inni í bílnum og þurfti að sækja þá á dráttarvél. 10.7.2022 19:21