Fleiri fréttir

Pallíettukjóll Lopez

Jennifer Lopez, 42 ára, var klædd í svartan pallíettukjól á tökustað American Idol í gær. Það leikur enginn vafi á því að útlit Jennifer vekur verðskuldaða athygli í hverjum einasta þætti. Í gær var hún stórglæsileg með uppsett hárið eins og sjá má í myndasafni. American Idol er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 20:10. Sjá nánar Stöd2.is.

Aflýsir öllum tónleikum

Sinead O‘Connor hefur aflýst öllum tónleikum sínum á þessu ári. Samband hennar og eiginmanns hennar hefur verið stormasamt og sjálf hefur hún átt við þunglyndi að stríða.

Beyoncé fallegasta konan

Lesendur tímaritsins People hafa kosið tónlistarkonuna Beyonce fallegustu konu í heimi. Í öðru sæti var gamanleikkonan Sofia Vergara en Charlize Theron lenti í því þriðja.

Glæsilegar í galakjólum

Fyrirsætan Heidi Klum og leikkonan Dakota Fanning stilltu sér upp saman klæddar í glæsilega galakjóla skreytta steinum á góðgerðarsamkomu í gærkvöldi. Heidi var í ljósbláum kjól og Dakota í kampavínslituðum. Þá má einnig sjá Heidi með fallegan eldrauðan varalit í Empire State byggingunni í New York.

Björk þarf að hvíla raddböndin

Björk hefur aflýst tónleikum sem hún ætlaði að halda í Sao Paulo í Brasilíu 11. maí vegna hnúðs á raddböndunum.

Agent Fresco frumsýnir nýtt myndband

Nýtt tónlistarmyndband við lagið Tempo með hljómsveitinni Agent Fresco var frumsýnt núna klukkan tíu á þýsku síðunni motor.de. Myndbandið er kynning fyrir tónleikaferð hljómsveitarinnar um Evrópu í maí og júní. Myndbandið er unnið í samstarfi við Zetafilm.

Sambandið við Svein Andra fullreynt

Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir sem eignaðist frumburðinn Baltasar Börk í byrjun mars vissi ekki hver faðir drengsins var fyrr en í vikunni sem leið. Hún ræðir meðgönguna, samband sitt við Svein Andra Sveinsson, föður drengsins, og bjarta framtíðina.

Framhald á ævisögu

Tom Bower, sem skrifaði ævisögu Simons Cowell, segir að þeir Cowell séu enn þá vinir þrátt fyrir að ýmislegt vandræðalegt úr einkalífi Cowells hafi verið afhjúpað í sögunni, þar á meðal botox-notkun hans.

Myndir frá Eskimo/Next-fyrirsætukeppni

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Eskimo/Next-fyrirsætukeppninni sem fór fram í Hörpu á dögunum þar sem ellefu stúlkur tóku þátt. Það var átján ára menntaskólamær Gyða Katrín Guðnadóttir fór með sigur af hólmi. Í öðru sæti var Ólöf Ragna Árnadóttir og þriðja sætið hreppti Bríet Ólína Kristinsdóttir. Fyrirsætan Steinunn María Agnarsdóttir var valin Maybelline stúlkan. Stúlkurnar sýndu meðal annars föt frá Helicopter, Ýri, Zisku, Sævari, Kron by Kronkron, Rey og Spaksmannsspjörum og þóttu allar standa sig með prýði.

Spilar sem plötusnúður

Elijah Wood ætlar að spila í fyrsta sinn sem plötusnúður utan Bandaríkjanna á tónlistarhátíð í Norður-Írlandi í júní.

Frábær stemmning á Kexi

Ný EGF-húðnæring fyrir líkamann var kynnt með glæsibrag á Kexi Hosteli á dögunum.

Gera grín að klaufalegum rasisma

Íslenski grínhópurinn, Icelandic Poniez, hefur birt nýtt myndband á hinum heimsfræga grínvef Funny or Die. Í hópnum er meðal annars Ragnhildur Magnúsdóttir sem starfaði sem útvarpskona hér á landi um árabil en nemur nú kvikmyndalistina í borg draumanna, Los Angeles.

Hertogaynjan falleg í blárri dragt

Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge og eiginmaður hennar, Vilhjálmur Bretaprins voru stórglæsileg þegar þau voru mynduð í gær...

Beach Boys með nýtt lag

Hljómsveitin The Beach Boys sendir á næstunni frá sér smáskífulagið That's Why God Made the Radio.

Hetjur snúa bökum saman

Stórmyndin The Avengers verður heimsfrumsýnd hér á landi annað kvöld. Myndin segir frá baráttu ofurhetja við illmennið Loka.

Verðlaunamynd um einelti

Myndin Bully, sem á íslensku er kölluð Grimmd: sögur af einelti, verður frumsýnd í Háskólabíói á föstudaginn. Um er að ræða verðlaunaða heimildarmynd sem á erindi við alla og tekst á við ofbeldið sem einelti er og vandamálin sem það skapar í nútímasamfélagi.

Góðir dómar hjá Rolling Stone

Of Monsters and Men fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum á vefsíðu bandaríska tímaritsins Rolling Stone fyrir plötuna My Head Is an Animal.

Hartwell með Boner

Ókeypis tónleikar verða haldnir með bandarísku tónlistarmönnunum Jason Boner og Roland Hartwell á Gauknum í kvöld. Boner kemur fram undir nafninu The Dharma Body. Hann spilar tilraunakennda órafmagnaða tónlist sem er bæði epísk og einföld.

Aftur í leikstjórastól

Ralph Fiennes reyndi fyrir sér sem leikstjóri í fyrsta sinn með myndinni Coriolanus, sem byggð er á samnefndu leikriti eftir William Shakespeare. Fiennes hyggst nú leikstýra myndinni The Invisible Woman og hefur undirbúningur fyrir hana þegar hafist.

Extreme Chill Festival í þriðja sinn

Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival – Undir Jökli 2012 verður haldin í þriðja sinn helgina 29. júní til 1. júlí á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Hátíðin fékk styrk frá tónlistarsjóði Kraums fyrr á árinu.

Hauskúpu stolið frá Hörpu

"Þetta er hauskúpa af meri sem pabbi minn átti og var mér mjög kær. Hún hékk uppi á vegg á vinnustofunni minni og nú er hún horfin og ég hef ekki hugmynd um hvar hún er niðurkomin,“ segir fatahönnuðurinn Harpa Einarsdóttir, sem varð fyrir því óláni í vikunni að hauskúpu í hennar eigu var stolið.

Glæsileg Gwyneth

Leikkonan Gwyneth Paltrow, 39 ára, er glæsileg í nánast hverju sem hún gengur í...

Björn Bragi nakinn á FM957 í dag

"Ég er búinn að tapa þó nokkrum veðmálum í vetur. Það var kominn tími á mig að vinna eitt og fá að refsa Birni Braga,“ segir sjónvarpsmaðurinn Nilli úr Týndu kynslóðinni.

Versta rekstrarár í sögu Nintendo

Japanski tölvuleikjaframleiðandinn Nintendo tapaði 533 milljónum dollara á síðasta ári eða um 67 milljörðum íslenskra króna.

Gyllt Lopez

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez var mynduð rétt fyrir tökustað American Idol í gærdag. Jennifer var glæsileg klædd í gylltan topp, gylltar buxur og skó. Randy Jackson og Steven Tyler voru einnig á staðnum eins og sjá má í myndasafni.

Innblástur frá uppreisninni

Hin bandaríska Santigold er að gefa út sína aðra sólóplötu. Fjögur ár eru liðin síðan hún steig fyrst fram á sjónarsviðið.

Borðar holla fæðu og hreyfir sig reglulega

Leikkonan Eva Mendes, 38 ára, var klædd í rauða peysu með hárið tekið í tagl þegar hún verslaði í Beverly Hills í Kaliforníu í gær. Ég æfi reglulega, ég borða holla fæðu og ég drekk þrjá lítra af vatni á dag. Ég borða fisk í miklu magni, sagði Eva spurð hvernig hún hugar að heilsunni. Skoða má Evu í myndasafni.

Nýtt blóð með Skuggabarnum

"Þetta verður alvöru. Það verður allt gefið í þetta,“ segir Ágúst Guðmundsson, rekstrarstjóri Skuggabarsins.

Semur fyrir Lone Ranger

Jack White mun semja tónlistina við kvikmyndina The Lone Ranger sem Disney framleiðir. Þetta verður í fyrsta sinn sem White semur tónlist við heila kvikmynd. Hann hefur áður samið nokkur lög við myndina Cold Mountain, auk þess sem hann samdi ásamt Aliciu Keys lagið Another Way to Die fyrir Bond-myndina Quantum of Solace. White sendi nýlega frá sér sína fyrstu sólóplötu, Blunderbluss.

Vandað vel til verka

Útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands var haldin á sumardaginn fyrsta og þar kenndi ýmissa grasa. Ellefu fatahönnuðir útskrifuðust í ár og sýndu meðal annars vel sniðnar buxnadragtir á konur og risavaxin glimmervesti.

Kristrún Ösp einlæg um faðerni drengsins

"Ég hafði tilfinningu fyrir því. Ég var alltaf að sjá svipi hjá honum sem minntu mig á Svein Andra, hinsvegar var ég ekki alveg viss en núna þegar það er komið í ljós fer það ekki milli mála," segir fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir sem prýðir forsíðu Lífsins, fylgiblað Fréttablaðsins, á morgun ásamt syni sínum, Baltasar...

Hertogaynjan sæl með prinsinum sínum

Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge, 30 ára, var mynduð ásamt eiginmanni sínum, Vilhjálmi Bretaprins klædd í glæsilegan Matthew Williamson kjól...

Angelina og Brad njóta lífsins í sólinni

Nýtrúlofaða parið Angelina Jolie og Brad Pitt var myndað um borð í bát ásamt tvíburunum, Knox og Vivienne, og Maddox, Pax, Zahara og Shiloh á Galapagos eyju sem er ein af mörgum undan ströndum Ekvadors í fyrradag. Angelina Jolie er góðgjörðasendiherra Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og skoðaði aðstæður íbúa í Ekvador um helgina. Eins og sjá má naut fjölskyldan lífsins.

Tvær forsíður á Nýju lífi í tilefni afmælis

Tímaritið Nýtt líf fagnar því um þessar mundir að þrjátíu og fimm ár eru liðin frá útkomu fyrsta tölublaðsins. Af því tilefni hefur verið ákveðið að hafa tvær forsíður á blaðinu sem kemur út á morgun, þótt innihaldið sé það sama í báðum útgáfunum. Á annarri forsíðunni er Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi ásamt fjölskyldu sinni en á hinni er Gulla Jónsdóttir arkítekt.

Justin í London og Selena í LA

Poppstjarnan Justin Bieber þurfti aðstoð þegar hann yfirgaf útvarpsstöðina Kiss 100 í London í gærdag í London í Englandi. Eins og sjá má aðstoðuðu lífverðir Justin. Sama dag fékk kæprastan hans Selena Gomez sér hamborgara á McDonalds í Los Angeles óáreitt.

Jean Paul Gaultier hannar fyrir Diet Coke

Listamaðurinn Carolyn Roper málaði tvær breskar fyrirsætur sem sátu fyrir í glugga versluninni Harvey Nichols í London fyrir herferð drykkjarins Diet Coke. Líkamar stúlknanna áttu að tákna flöskur framleiðandans...

Sjá næstu 50 fréttir