Kviknaði í fimm bílum í Engihjalla
Mikið eignatjón varð þegar eldur kviknaði í fimm bílum við íbúðablokk í Engihjalla í Kópavogi í nótt. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan hálf þrjú og voru tveir slökkviliðsbílar sendir á staðinn.