Hegningarlagabrotum fjölgaði um 6 prósent
Hegningarlagabrotum fjölgaði um sex prósent milli ára á síðasta ári og voru tilraunir til manndráps átta sem eru fleiri slík brot en síðastliðinn sextán ár. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri afbrotatölfræði sem ríkislögreglustjórinn hefur tekið saman.