Létu eldflaugum rigna yfir Ísrael
Íran skaut nú síðdegis skotflaugum að Ísrael. Neyðarástandi var lýst yfir í Ísrael og íbúar beðnir að leita skjóls. Viðvörunarlúðrar ómuðu víðsvegar um landið þegar fregnir bárust af loftárás Írana, sem Bandaríkjamenn höfðu varað við að væri yfirvofandi.