Á von á verkefnum upp á marga milljarða til landsins
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp þess efnis að hækka endurgreiðslu af framleiðslukostnaði til kvikmyndaframleiðenda upp í 35 prósent fyrir stærri verkefni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fagnar niðurstöðunni.