Fara síður í skimun en konur á öðrum Norðurlöndum
Íslenskar konur skila sér verr í skimun fyrir leghálskrabbameini en aðrar konur á Norðurlöndunum. Yfirlæknir hjá Krabbameinsfélaginu hvetur konur til að mæta í skimun enda sé ávinningurinn ótvíræður.