Ge9n - ný heimildarmynd um níumenningana
Vísir frumsýnir hér nýtt sýnishorn úr Ge9n, kvikmynd um níumenningana svokölluðu. Þeir voru þátttakendur í pólitískri aðgerð á pöllum Alþingis 8. desember 2008. Ári seinna voru þessi níu ákærð fyrir „árás á Alþingi“. Í myndinni er grennslast fyrir um sýn þeirra á íslenskt samfélag og samtíma og hvað þeim gekk til sem gengu lengra en flestir 40 dögum fyrir búsáhaldabyltinguna svokölluðu. Leikstjóri er Haukur Már Helgason.