Tökulið Game of Thrones væntanlegt hingað í vetur Tökur á einum umtalaðasta þætti Bandaríkjanna um þessar mundir, Game of Thrones, munu fara fram að hluta til hér á Íslandi í lok þessa árs. Þetta kom fram í máli eins aðalleikara þáttanna, Kit Harrington. Harrington sat fyrir svörum á myndasöguhátíðinni ComicCon í lok júlí og upplýsti þar að hann fengi að kynnast alvörukulda á Íslandi. „Það var kalt síðast en nú förum við til Íslands. Og það verður sko kalt,“ hefur vefsíðan Access Hollywood eftir honum. Lífið 16. ágúst 2011 17:00
Game of Thrones hefst 21. ágúst Sýningar á þáttunum Game of Thrones hefjast sunnudagskvöldið 21. ágúst á Stöð 2. Þetta eru magnaðir þættir sem hófu göngu sína vestanhafs í vor og slógu í gegn. Einhvers staðar er þeim lýst sem blöndu af Sopranos og Hringadróttinssögu. Kíkið á sýnishornið fyrir þættina hér fyrir ofan. Bíó og sjónvarp 11. ágúst 2011 12:08
Lars Von Trier rekinn af Cannes hátíðinni Danski leikstjórinn Lars Von Trier hefur verið rekinn af Cannes hátíðinni í Frakklandi eftir að hann lét þau ummæli falla í gær að hann hefði ákveðinn skilning á nasisma og að auki hefði hann samúð með Adolf Hitler. Bíó og sjónvarp 19. maí 2011 12:03
Vikulöng trailer-keppni milli Audda og Sveppa á Vísi Félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson voru með metnaðarfullan þátt af Audda & Sveppa á Stöð 2 í kvöld þar sem þemað var kvikmyndir. Hápunktar þáttarins voru án efa frumsýning tveggja sýnishorna úr ímynduðum kvikmyndum. Sveppi gerði sýnishorn úr margslungnum sálfræðitrylli, Chroma Key, og Auddi bauð upp á harðsoðinn spennutrylli, Leynilögga. Bíó og sjónvarp 18. mars 2011 21:38
Danskur stórleikari er höfuðpaur Banditos í Pressu „Hann er pottþéttur og hefur alveg gríðarlega sterka nærveru,“ segir Óskar Jónasson, leikstjóri sjónvarpsþáttaraðarinnar Pressu 2. Bíó og sjónvarp 22. janúar 2011 09:00
Stór nöfn í stuttmynd Barkar Börkur Sigþórsson gerir áhugaverða stuttmynd eftir handriti Stuart Beattie. Í aðalhlutverki er Björn Thors sem leikstjórinn segir að sé besti leikari sinnar kynslóðar. Bíó og sjónvarp 8. desember 2010 09:30
Morðið á Gunnari leigubílstjóra verður að kvikmynd "Ég nefndi þetta einhvern tímann við Júlíus [Kemp] að við þyrftum ekki að leita langt yfir skammt til að finna glæp, við erum nefnilega báðir úr Laugarnesinu,“ segir Lars Emil Árnason handritshöfundur. Bíó og sjónvarp 28. september 2010 08:30
Logi á Nordisk Panorma „Þetta er fyrsta stuttmyndin sem mér fannst nógu góð til að ég þyrði að senda hana frá mér,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Logi Hilmarsson. Stuttmynd hans, Þyngdarafl, keppir í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama sem fram fer í Bergen í Noregi dagana 24. til 29. september. Bíó og sjónvarp 27. ágúst 2010 08:00
Öflugustu tvíeykin í Hollywood Margir af fremstu leikstjórum heims hafa bundist miklum tryggðarböndum við einn ákveðinn leikara. Þekktasta parið er eflaust Robert De Niro og Martin Scorsese en slík sambönd eru alls ekki óalgeng. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 20:00
Forseti Írans bregst við íslenskri fálkamynd „Já, við bjuggumst svo sem alveg við viðbrögðum úr þessari átt og það sem okkur finnst eiginlega merkilegast er að hann svarar aldrei spurningunni,“ segir Þorkell Harðarson, kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri heimildarmyndarinnar Feathered Cocaine. M Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 08:00
J.J. Abrams sýnir leynistiklu á undan Iron Man Kvikmyndagerðarmaðurinn J.J. Abrams er snillingur í því að búa til dulúð í kringum sínar kvikmyndir. Skemmst er að minnast Cloverfield en stikla úr myndinni birtist, öllum að óvörum, á Netinu án þess að nokkur vissi að hún væri einu sinni til. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 06:00
Cate Blanchett ræður stjörnufarðarann Hebu Þórisdóttur Íslandsvinurinn Cate Blanchett og Heba Þórisdóttir spjalla eflaust saman um Ísland í förðunarstólnum í myndinni Hannah. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 06:00
Unnur Andrea í hollenskri bíómynd Hinn íslenski/hollenski kvikmyndagerðarmaður, Kris Kristinsson, mun frumsýna tvær myndir í Norræna húsinu í kvöld kl. 19.30. Þetta eru myndirnar Ruta del Jaca (73 mín.) og fyrstu tveir kaflar myndarinnar Hjörtu vita (32 mín.) sem er enn í vinnslu. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 05:45
Ógeðið Freddy Krueger slær aftur í gegn Svo virðist sem bandarískir kvikmyndaáhugamenn hafi saknað Freddie Krugers því myndin slátrar allri samkeppni þessa dagana. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 05:30
Patrick Dempsey í Transformers 3 Patrick Dempsey, þekktastur fyrir leik sinn í Grey‘s Anatomy og rómantískum kvikmyndum, hyggst skipta aðeins um gír ef marka má orð hans í brasilískum blöðum. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 05:15
Húmoristinn og harðjaxlinn sameinast Gamanmyndin Cop Out skartar Bruce Willis og Tracy Morgan en hinn mistæki Kevin Smith leikstýrir myndinni. Bíó og sjónvarp 6. maí 2010 04:15
Baltasar forsýnir Inhale í Berkeley Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, er önnur tveggja mynda sem sýndar verða á ráðstefnu Berkeley-háskólans um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki. Hin myndin er margverðlaunuð heimildarmynd að nafni H.O.T, Human Organ Trafficking. Bíó og sjónvarp 5. maí 2010 07:30
Sigurjón að landa stórlaxinum Nicolas Cage „Við erum að klára viðræðurnar og vonandi náum við að landa samingnum innan skamms,“ segir kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson sem vinnur að því að semja við stórleikarann Nicolas Cage fyrir væntanlega kvikmynd sem hann framleiðir. Myndin heitir Dark Highway og gerist á þjóðvegi frá sólarupprás til sólarlags. Bíó og sjónvarp 4. maí 2010 06:00
LA Times hrifið af Degi Kára Gagnrýnandi Los Angeles Times er hrifin af kvikmyndinni The Good Heart eftir Dag Kára. Myndin var frumsýnd í New York í síðust viku eins og Fréttablaðið greindi frá. LA Times segir að Degi Kára takist ágætlega upp með að blanda saman dramatík og húmor og gefur myndinni þrjár stjörnur af fimm mögulegum. Bíó og sjónvarp 3. maí 2010 08:00
Downey og Rourke: Ólátabelgir mætast Robert Downey Jr. og Mickey Rourke eiga eitt sameiginlegt. Þeir reyndu báðir að rústa eigin feril á sínum tíma en tókst það aldrei til fulls. Þeir eru því aftur komnir á lista meðal skærustu stjarna kvikmyndaborgarinnar. Bíó og sjónvarp 29. apríl 2010 08:30
Balti og Óttar leigðu sér þyrlu Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur var fljótur að hugsa þegar eldgosið hófst á Fimmvörðuhálsi á dögunum. Bíó og sjónvarp 28. apríl 2010 13:20
Frank í Klovn ánægður með Frímann Gunnarsson „Þeir eru ótrúlega klárir, Hansson-bræðurnir, alveg á pari við það sem ég hef kynnst í dönsku sjónvarpi," segir gamanleikarinn Frank Hvam um tökurnar á nýrri gamanþáttaröð með Frímanni Gunnarssyni. Bíó og sjónvarp 28. apríl 2010 10:30
Nýr dagskrárstjóri tjáir sig ekki um Spaugstofuna „Þetta snýst auðvitað allt um það hverju við höfum efni á,“ segir Erna Kettler, nýráðinn dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins. Bíó og sjónvarp 28. apríl 2010 09:30
Guinness-auglýsing á Skálafellsjökli Írski bjórframleiðandinn Guinness valdi Skálafellsjökul til að taka upp sjónvarpsauglýsingu á dögunum. Kvikmyndagerðarmenn náðu rétt svo að forða sér undan eldgosinu. Bíó og sjónvarp 28. apríl 2010 09:00
Dagur Kári margfalt fórnarlamb öskunnar Dagur Kári missti einn aðalleikarann af frumsýningu, er fastur í New York og gat ekki tekið á móti verðlaunum í Póllandi - allt vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Bíó og sjónvarp 28. apríl 2010 08:00
Dagur Kári vinnur rúma milljón í verðlaun The Good Heart, kvikmynd Dags Kára Péturssonar, fékk áhorfendaverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Kraká. Bíó og sjónvarp 27. apríl 2010 11:00
Ólafur Darri í sjósund og köfun fyrir Djúpið „Ég hef ekki stundað sjósund sem sport en hef þurft að synda ansi mikið í sjónum að undanförnu,“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari sem er byrjaður að undirbúa sig fyrir aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið. Bíó og sjónvarp 24. apríl 2010 10:45
Airbender í þrívídd Ákveðið hefur verið að breyta nýjustu kvikmynd M. Night Shyamalan, The Last Airbender, í þrívíddarmynd. Tæknilið vinnur nú hörðum höndum við að breyta myndinni fyrir frumsýningu hennar 2. júlí. Þessi ákvörðun kemur ekki á óvart því nánast önnur hver mynd í Hollywood er gefin út í þrívídd eftir velgengni Avatar. Bíó og sjónvarp 24. apríl 2010 03:30
Avatar II gerist úti á hafi DVD-útgáfan af Avatar kemur út á morgun og menn eru þegar farnir að spá sölumetum í unnvörpum. Mestu athyglina vekur þó viðtal við leikstjóra Bíó og sjónvarp 22. apríl 2010 06:00
Downey til Oz Eins og kemur fram hér annars staðar á síðunni hefur Bond 23 verið frestað um óákveðinn tíma. Það þýðir að leikstjóri myndarinnar, Sam Mendes, verður að finna sér eitthvað annað að gera. Mendes var auðvitað ekki lengi að finna nýtt verkefni því hann er orðaður við endurgerð á hinni sígildu kvikmynd Galdrakarlinn í Oz eða The Wizard of Oz. Bíó og sjónvarp 22. apríl 2010 06:00