Sinéad O’Connor er látin Írska stórsöngkonan Sinéad O’Connor er látin, aðeins 56 ára að aldri. Lífið 26. júlí 2023 18:04
Fálkaorðuhafi setur sjarmerandi íbúð á sölu Tónlistarkennararnir Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir hafa sett afar sjarmerandi hæð sína í Norðurmýrinni í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 102,9 milljónir. Lífið 26. júlí 2023 12:29
Hjólar í eigin aðdáendur Tónlistarkonan Doja Cat hefur vakið töluverða athygli fyrir ummæli um aðdáendur sína sem hún lét falla á samfélagsmiðlum. Hún virðist ekki vera mjög hrifin af sínum hörðustu aðdáendum og segir þeim að hætta í símanum og byrja að vinna. Lífið 26. júlí 2023 11:48
Fjör með Bylgjulestinni í Hljómskálagarðinum Það var mikið um dýrðir í Hljómskálagarðinum í Reykjavík síðustu helgi þar sem hin árlega Götubitahátíð fór fram. Lífið samstarf 26. júlí 2023 08:31
Paul T. Goldman: Sá er talinn heimskur sem opnar sína sál Stöð 2 sýnir nú Peacock-framleiddu þáttaröðina Paul T. Goldman. Það er erfitt að henda reiður á hverslags þáttaröð þetta er, enda hef ég aldrei séð neitt henni líkt. Eru þetta heimildaþættir? Eru þetta leiknir þættir? Gagnrýni 26. júlí 2023 08:19
Sér tækifæri í Cher-útbúnum ísbíl Tónlistarkonan Cher hefur ákveðið að leita á nýjar slóðir og selja ís í eigin nafni, svokallaðan Cherlato. Hún segir að um sé að ræða verkefni sem sé búið að vera lengi í undirbúningi. Þá fullvissar hún aðdáendur sína um að þetta sé ekki grín. Lífið 25. júlí 2023 16:04
Góðan daginn, faggi á faraldsfæti: „Ögrandi að fara úr íslensku búbblunni“ Leiksýningin Góðan daginn faggi er á leið út fyrir landsteinana en hún verður sýnd á Fringe listahátíðinni í Edinborg 4. - 27. ágúst. Blaðamaður ræddi við Bjarna Snæbjörnsson en ásamt honum standa Gréta Kristín Ómarsdóttir og Axel Ingi að sýningunni og fara þau öll saman út. Menning 25. júlí 2023 14:21
Dánarorsök Sands úrskurðuð óákvörðuð Dánarorsök breska leikarans Julian Sands hefur verið úrskurðuð óákvörðuð. Lík Sands fannst nærri toppi fjallsins Mount Baldy í Kaliforníu í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þá hafði hans verið saknað í rúmlega fimm mánuði. Erlent 25. júlí 2023 00:11
Höddi Magg greip til epísks frasa úr eigin smiðju „Kalt er það Klara“ sagði Hörður Magnússon í lýsingu sinni á viðureign Þýskalands og Marokkó á HM kvenna í fótbolta. Um er að ræða frasa úr epískum þætti Steypustöðvarinnar á Stöð 2 fyrir fimm árum þar sem Hörður fór á kostum. Lífið 24. júlí 2023 12:40
Hildur Guðna og Sam giftu sig á ástarfleyi Tónlistarkonan og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir og bandaríska tónskáldið Sam Slater giftu sig í Þýskalandi um helgina. Brúðkaupið fór fram á bát í borginni Berlín, eða á ástarfleyi eins og móðir Hildar orðar það. Lífið 24. júlí 2023 10:51
Íslenskt Oppenheimer Castro-fíaskó: Skondin tengsl Íslands við Oppenheimer „Nú er ég Dauðinn, eyðingarafl heimsins.“ Þetta er það sem kom upp í huga Dr. Robert Oppenheimer föður kjarnorkusprengjunnar þegar hann áttaði sig á því að honum hafði tekist að útbúa hættulegasta vopn mannkynssögunnar. Skoðun 23. júlí 2023 16:00
„Stutt gúggl“ til að komast að því hver drap Tupac Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, segir lítið mál að komast að líklegri niðurstöðu um það hver hafi drepið rapparann Tupac Shakur. Nýjar vendingar í morðmáli rapparans hafa vakið mikla athygli. Lífið 23. júlí 2023 09:01
Íslensku lögin taka yfir topp tíu Emmsjé Gauti situr staðfastur í fyrsta sæti Íslenska listans á FM með Þjóðhátíðarlagið Þúsund hjörtu. Íslenski listinn var fluttur á FM957 fyrr í dag og eiga efstu fimm lög listans í þessari viku það sameiginlegt að vera öll íslensk. Tónlist 22. júlí 2023 18:01
„Hérna er allt þægilegt og kósí og mjúk teppi“ Hjón búsett í Úkraínu undirbúa nú listasýningu í Reykjavík, sem fjallar um innri ró þrátt fyrir yfirþyrmandi erfiðleika vegna innrásar Rússa. Verkin sem verða til sýnis voru unnin í Kænugarði, oft í niðamyrkri vegna rafmagnsleysis eftir árásir Rússa á borgina. Menning 21. júlí 2023 20:00
Tony Bennett látinn Bandaríski popp- og djasssöngvarinn Tony Bennett er látinn, 96 ára að aldri. Erlent 21. júlí 2023 13:05
Slagsmál á Kjarval vendipunkturinn: „Ég sá ekkert nema bara drauga“ Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason opnaði sig í útvarpsviðtali í gær og segir það hafa verið ömurlegt að vera í neyslu á sínum tíma. Í dag hefur hann sagt skilið við vímuefni og einbeitir sér að tónlistinni. Lagið Skína sem er eftir Patrik og tónlistarmanninn Luigi kom út í dag og markmiðin eru háleit. Lífið 21. júlí 2023 12:51
Íslendingur ferðast um Bandaríkin með Metallica og Pantera Hinn 23 ára gamli Anton Kröyer Antonsson, hefur síðustu mánuði ferðast með þungarokkshljómsveitinni Pantera um Evrópu sem ljósamaður, nánar tiltekið ljósaforritari, á tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar. Nú liggur leið hópsins til Bandaríkjanna þar sem goðsagnasveitin Metallica verður með í för. Lífið 21. júlí 2023 09:01
Þegar ég fór með 49 öðrum gaurum í bíó Það heyrir almennt ekki til tíðinda þegar karlmenn á þrítugsaldri, svokallaðir „gaurar“, hópa sig saman og fara í bíó. Í bíóhúsum borgarinnar má oft sjá þó nokkra gaura sitja saman með popp og kók og njóta þess að horfa saman á misgóðar kvikmyndir. En, miðvikudaginn 19. júlí 2023 fóru 50 gaurar saman í bíó. Þetta er okkar saga. Lífið 21. júlí 2023 08:45
„Langar að minna þolendur á að þetta er aldrei ykkur að kenna“ „Í rauninni er boðskapurinn með þessu lagi að það skiptir engu máli hverju þú klæðist, hvernig þú hagar þér eða hvað þú ert að gera. Þetta er aldrei þér að kenna,“ segir söngkonan Þórunn Salka. Hún var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Freedom, þar sem hún tjáir sig um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í Los Angeles fyrir þremur árum. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá laginu og lífinu. Tónlist 21. júlí 2023 07:00
Lýsir sex klukkutíma bíóferð sem upplifun og hefur ekki fengið nóg Karlmaður lýsir sex klukkutíma bíóferð sinni í gærkvöldi sem stórkostlegri upplifun. Barbie, kjarnorkusprengjur, popp og kók. Og hann hefur ekki fengið nóg. Innlent 20. júlí 2023 21:00
Viaplay segir upp 25 prósents starfsfólks Sænska streymisveitan Viaplay hefur sagt upp 25 prósent af starfsfólki sínu. Er það gert til að bregðast við rekstrarörðugleikum en fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun í síðasta mánuði þar sem gert er ráð fyrir því að félagið verði rekið í tapi næstu árin. Viðskipti innlent 20. júlí 2023 18:15
Frumsýning á Vísi: Sjóðandi heitt tónlistarmyndband frá IceGuys Nýjasta strákasveit Íslands, IceGuys, frumsýna í dag á Vísi sitt fyrsta tónlistarmyndband. Sveitina skipa þeir Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason. Tónlist 20. júlí 2023 13:16
Birnir, GDRN og Sykur á ríkulegri dagskrá Innipúkans Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tuttugasta og fyrsta skiptið í Reykjavík um Verslunarmannahelgina. Að vana er hátíðin haldin innandyra og í annað skiptið er hún haldin í Gamla Bíó og á Röntgen. Lífið 20. júlí 2023 11:43
Undirgefnir aðdáendur og linnulaus markaðsherferð knýi „Barbenheimer“ áfram Einn stærsti bíóviðburður ársins er nú runninn upp en stórmyndin Barbie verður frumsýnd á Íslandi í dag og frumsýning bíómyndarinnar Oppenheimer var í gær. Álitsgjafi segir bíóviðburðinn „Barbenheimer“ lykta af örvæntingu þar sem bíóbransinn eigi enn í erfiðleikum með að koma sér aftur á réttan kjöl eftir heimsfaraldur. Menning 20. júlí 2023 07:01
Creed snúa loksins aftur Hin rómaða rokkhljómsveit Creed hefur tilkynnt nýja tónleikaröð, hina fyrstu í áratug. En sveitin hefur legið í dvala, fjölmörgum aðdáendum sínum til ama, frá árinu 2012. Tónlist 20. júlí 2023 00:00
Sérfræðingur gáttaður á „Barbenheimer“ Paul Dergarabedian, sérfræðingur á sviði miðlagreiningar, sem sérhæft hefur sig í að greina miðasölutekjur kvikmyndahúsa vestanhafs, segist vera hvumsa yfir eftirvæntingunni sem ríkir fyrir „Barbenheimer,“ sameiginlegum frumsýningardegi stórmyndanna Barbie og Oppenheimer. Bíó og sjónvarp 19. júlí 2023 11:28
Húsleit vegna morðsins á Tupac Shakur Lögreglan í Las Vegas fór fram á og fékk leitarheimild vegna rannsóknar á morðinu á rapparanum Tupac Shakur. 26 ár eru síðan rapparinn var myrtur þann 7. september árið 1996 í Las Vegas og hefur morðinginn aldrei fundist. Erlent 18. júlí 2023 23:28
Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi. Tónlist 18. júlí 2023 11:06
ISSI á toppi Langjökuls: „Þeir segja að það sé kalt á toppnum svo ég klæddi mig vel“ Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum. Lífið 17. júlí 2023 15:31
Var við það að missa vitið en fann sig svo í tónlistinni „Ég var í voða fínni inni vinnu og kominn á miðjan aldur en leiður á henni og ýmsu öðru. Ég var eiginlega bara að missa vitið af leiðindum og mig langaði að prófa eitthvað annað áður en af því yrði endanlega. Á svipuðum tíma áttaði ég mig líka á því að ekki bara einn heldur tveir jafnaldrar mínir og fyrrum hljómsveitafélagar höfðu dáið tiltölulega nýlega,“ segir tónlistarmaðurinn Klemens Ólafur Þrastarson, sem notast við listamannsnafnið Klói og var að senda frá sér tveggja laga smáskífu. Tónlist 17. júlí 2023 15:02