Fréttir

Fréttamynd

54 fyrirtæki fengið milljarð afskrifaðan

Alls 45 fyrirtæki hafa fengið skuldir niðurfelldar fyrir milljarð króna eða meira í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu. Níu fyrirtæki hafa að auki fengið felldar niður skuldir fyrir milljarð eða meira, eða svo háum skuldum breytt í hlutafé, í tengslum við nauðasamninga. Alls hafa því 54 fyrirtæki fengið skuldir felldar niður fyrir milljarð eða meira.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Safna svo fáist augnlæknir

Augnlæknir fæst ekki lengur til starfa á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi vegna tækjaskorts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollvinasamtökum HSB um söfnunarátak fyrir nýjum búnaði fyrir HSB.

Innlent
Fréttamynd

Bestu opinberu vefirnir valdir

Tryggingastofnun er með besta opinbera vefinn og Akureyrarbær með besta sveitarfélagsvefinn. Þetta er mat dómnefndar sem var fengin til að meta 267 opinbera vefi.

Innlent
Fréttamynd

Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára

Á árinu 2011 bárust umboðsmanni Alþingis alls 519 kvartanir. Á sama tíma tók hann til athugunar níu mál að eigin frumkvæði. Skráð mál á árinu voru því alls 528 talsins, en það er 40 prósenta fjölgun frá árinu áður.

Innlent
Fréttamynd

Vill selja hlut í Faxaflóahöfnum

Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað á aukafundi á sunnudagskvöld að reyna að selja hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. Tilgangurinn er að fjármagna hluta Borgarbyggðar í átta milljarða króna lánveitingu eigenda til Orkuveitu Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Hækkanir verði dregnar til baka

Hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við aldraða koma mjög illa við eldri borgara. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir hækkununum í ályktun og skorar á borgina að draga þær til baka.

Innlent
Fréttamynd

Niinistö mætir Haavisto

Sauli Niinistö, fyrrum fjármálaráðherra úr flokki íhaldsmanna, og Pekka Haavisto, þingmaður úr flokki græningja, munu mætast í annarri umferð finnsku forsetakosninganna.

Erlent
Fréttamynd

Fimmtán hafa fundist látnir

Talið er að laumufarþegar hafi verið um borð í ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem strandaði við strendur Toscana-héraðs á Ítalíu 13. janúar. Því má gera ráð fyrir að tala týndra sé hærri en greint var frá í fyrstu.

Erlent
Fréttamynd

Hafna hugmyndum Arababandalagsins

Stjórnvöld í Sýrlandi höfnuðu í gær hugmyndum Arababandalagsins um að koma á friði í landinu. Þær fólu meðal annars í sér að Bashar a-Assad forseti færi frá völdum, þjóðstjórn yrði mynduð innan tveggja mánaða og lýðræðislegar kosningar færu fram undir alþjóðlegu eftirliti.

Erlent
Fréttamynd

Evrópusambandið í hart gegn Írönum

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í gær að öll olíuviðskipti við Íran verði bönnuð. Jafnframt verða eignir íranska seðlabankans í aðildarríkjum ESB frystar.

Erlent
Fréttamynd

Isavia leyft að svara til um fangaflug CIA

Isavia hefur fengið heimild til að svara fyrirspurn um flug sem talið var á vegum CIA með fanga. Tvenn mannréttindasamtök birtu nýverið áfangaskýrslu þar sem Evrópulönd eru sökuð um að hylma yfir með pyntingum.

Innlent
Fréttamynd

Eyjalögreglan rannsakar banvæna árás á á

"Ég kom að fjárhúsinu upp úr hádegi og þar lá hún ein með opið sár á hálsi. Hún var á lífi en var að blæða út," segir Ólafur Týr Guðjónsson, bóndi í Vestmannaeyjum, sem var að gefa kindum kunningja síns á bænum Látrum í gær þegar hann kom að helsærðri á. Hann kallaði á lögregluna, sem kom á staðinn og aflífaði hana. "Ég get auðvitað ekki fullyrt að þetta hafi verið dýrbítur, því það fennir í öll spor," segir Ólafur. Hann lýsir sárinu sem stórri holu vinstra megin á hálsi ærinnar, sem náði alveg inn í öndunarveg. Ekkert hafi verið rifið í kringum sárið. "Þegar ég tók í hana fann ég að það var allt laust inni í hálsinum, eins og holrúm," segir Ólafur.

Innlent
Fréttamynd

Stefnt að nauðasamningum Kaupþings á vormánuðum

Slitastjórn Kaupþings stefnir að því að hefja formlegt nauðasamningaferli bankans á öðrum ársfjórðungi ársins 2012. Nauðasamningarnir miða að því að gera bankann að eignarhaldsfélagi í eigu kröfuhafa hans. Þetta kemur fram í kynningu sem slitastjórn bankans hélt fyrir kröfuhafa hans 14. desember.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kvartar til Persónuverndar vegna dagbókar

Móðir unglingsstúlku hefur lagt fram kvörtun til Persónuverndar vegna birtingar dagbókar stúlkunnar í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Dóttir konunnar kærði lögreglumann á Blönduósi fyrir að hafa káfað á sér innanklæða í fyrra, þegar hún var 15 ára.

Innlent
Fréttamynd

Snjóamet slegið í höfuðborginni

Snjór hefur nú legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess samfleytt frá 26. nóvember. Aldrei áður frá upphafi mælinga hefur snjór verið samfleytt svo lengi á fyrri hluta vetrar, segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskur arkitekt þéttir danska byggð

Íslensk-danskt framlag fór með sigur úr býtum í samkeppni um endurskipulag 50 hektara svæðis í sveitarfélaginu Allerød í Danmörku, skammt norður af Kaupmannahöfn. Keppnin er haldin annað hvert ár undir merkjum Europan, en að henni standa 20 Evrópulönd. Þátt geta tekið arkitektar undir 40 ára aldri. Löndin leggja fram svæði sem þarfnast endurskipulagningar og leggja ungir arkitektar fram tillögur um úrvinnslu þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Sérstaða NBA-deildarinnar

Ólíkt mörgum af stærstu deildarkeppnum heimsins í knattspyrnunni eru peningarnir í NBA-deildinni ekki mestir í viðskiptum með leikmenn. Reglur deildarinnar gera ráð fyrir að leikmenn gangi ekki kaupum og sölum fyrir hærri fjárhæðir en 1 milljón dollara, eða sem nemur 115 milljónum króna. Algengast er því að leikmenn fari á milli liða í skiptum fyrir aðra leikmenn. Deildarkeppnin er löng og ströng. Hvert lið spilar yfir 80 leiki á tímabili, og um 100 leiki fari það alla leið í úrslit.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bernhöftsbakarí verður opið enn um sinn

"Ég held bara áfram að vera hérna í rólegheitunum,“ segir Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari í Bernhöftsbakaríi, sem ætlar ekki að flytja starfsemina úr Bergstaðastræti 13 þótt leigusamningurinn renni út um áramótin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Blaðakassar teknir niður

Fréttablaðskassar verða teknir niður fyrir áramót og settir upp aftur á nýju ári. Þetta er gert til að koma í veg fyrir skemmdarverk, en undanfarin ár hefur borið á því að kassar séu sprengdir upp.

Innlent
Fréttamynd

Fæstar friðlýsingar eru á náttúruverndaráætlun

Sjö svæði voru friðlýst á árinu 2011. Aðeins tvö þeirra voru á náttúruverndaráætlun sem samþykkt er af Alþingi. Sveitarfélög og landeigendur eiga frumkvæði að öðrum friðlýsingum. Til skoðunar er að breyta ferli friðlýsinga.

Innlent
Fréttamynd

Viðskipti FSÍ með Vestia og Icelandair

Framtakssjóður Íslands (FSÍ), sem er í eigu Landsbankans, flestra lífeyrissjóða landsins og Vátryggingafélags Íslands, hefur verið stórtækasti fjárfestir landsins eftir bankahrun. Dómnefnd Markaðarins taldi kaup hans á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum, og viðskipti hans með bréf í Icelandair, vera næstbestu viðskipti ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Veiðar skila um 25 milljörðum

Makrílveiðar skiluðu þjóðarbúinu ríflega 25 milljörðum króna á síðasta ári, sem er um fimm prósent af útflutningstekjum Íslands. Meira en 1.000 ársverk urðu til vegna veiðanna, samkvæmt samantekt sjávarútvegsráðuneytisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Suðurstrandarvegur ruddur tvisvar í viku

Nýr Suðurstrandarvegur hefur í nokkur skipti verið ófær síðan hann var opnaður í haust. Að sögn Vegagerðarinnar er það að hluta til vegna þess að menn voru ekki undir það búnir að þörf væri á mikilli vetrarþjónustu. Vegurinn hefur ekki verið inni á vetrarþjónustuáætlun Vegagerðarinnar til þessa en nú hefur verið bætt þar úr.

Innlent
Fréttamynd

Borga tæknifrjóvgun fullu verði

Hætt verður að niðurgreiða fyrstu tæknifrjóvgun barnlausra para og einhleypra kvenna um áramót. Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum hefur verið 15 prósent af kostnaði.

Innlent