Fréttir

Fréttamynd

Skorinn með flösku á hálsi

Ráðist var á mann á dansleik á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauðárkróki annan dag jóla, að því er fréttavefurinn Feykir greinir frá.

Innlent
Fréttamynd

Vaxtaálag ítalskra skuldabréfa lækkar

Ítölsk ríkisskuldabréf seldust fyrir rúma tíu milljarða evra í gær, á talsvert hagstæðari vöxtum en þeim hefur boðist undanfarið. Er um að ræða góðar fréttir fyrir Ítalíu sem hefur verið á mörkum greiðslufalls síðustu mánuði vegna vaxandi skulda og hækkandi lántökukostnaðar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Danir sáttir við kóngafólkið sitt

Mikill meirihluti Dana er hlynntur því að landið verði áfram konungsríki. Könnun sem sagt er frá í Politiken leiðir í ljós að 77 prósent segjast fylgjandi núverandi stjórnarfyrirkomulagi, en aðeins sextán prósent eru fylgjandi því að landið verði lýðveldi.

Erlent
Fréttamynd

Nær að hreyfa fætur og fingur

Vandasöm aðgerð sem Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir, landsliðskona á skíðum, þurfti á að halda í gærmorgun á Ullevål-sjúkrahúsinu í Ósló í Noregi þótti heppnast vel. Fanney, sem er 19 ára gömul, slasaðist alvarlega á aðfangadag þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi.

Innlent
Fréttamynd

Landsvirkjun endurnýjar veltulán

Landsvirkjun hefur skrifað undir samning um nýtt sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði, hið fyrsta sem opinbert íslenskt fyrirtæki gerir frá bankahruni.

Innlent
Fréttamynd

Hækka um tugi þúsunda á ári

Leikskólagjöld hjá öllum stærstu sveitarfélögum landsins hækka um tvö til þrjú þúsund krónur á mánuði um áramótin. Hækkunin nemur tugum þúsunda hjá foreldrum á ársgrundvelli.

Innlent
Fréttamynd

Gaskútar geta valdið slysahættu í frosti

"Ég skrúfa frá gasinu og þá skyndilega leggur eldsúlu upp úr gashellunni sem læsist í gluggatjöldin fyrir ofan. Ég heyri konuna mína strax æpa og skrúfa þá fyrir þar sem ég átta mig á því sem er að gerast. Þetta slapp því í rauninni mjög vel en ég rétt ímynda mér hvað hefði gerst ef ég hefði verið einn þarna og ekki áttað mig. Þá hefði þessi timburbústaður bara fuðrað upp,“ segir Hrafnkell Á.

Innlent
Fréttamynd

Ekki þörf á byssum fyrir löggur

LöggæslaÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki telja þörf á því að lögreglumenn hafi almennari aðgang að skotvopnum en nú er.

Innlent
Fréttamynd

Byggja félagsmiðstöð í Spönginni

Verja á 650 milljónum króna í byggingu nýrrar félagsmiðstöðvar í Spönginni í Grafarvogi. Þar munu þjóðkirkjan og hjúkrunarheimilið Eir meðal annarra hafa aðstöðu.

Innlent
Fréttamynd

Óásættanlegt að leyfi hafi verið veitt

Hópur fólks og félaga sem eru andvíg því að erfðabreytt bygg verði ræktað í gróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi skorar á sveitarstjórnir á svæðinu að beita sér fyrir því að leyfi til ræktunarinnar verði afturkallað.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarherinn farinn frá Homs

Sýrlandsstjórn kallaði herlið sitt frá borginni Homs í gær þegar fyrstu eftirlitssveitirnar frá Arababandalaginu voru komnar til landsins.

Erlent
Fréttamynd

Opið öllum en nýtist hernum

Kínversk stjórnvöld hafa gangsett staðsetningarnet sem gegna mun sama hlutverki og GPS-staðsetningarkerfið. Kerfið verður opið almenningi eins og GPS-kerfið en mun gera kínverska herinn óháðan bandarískum gervitunglum sem hægt er að loka fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Gæti reynst Pútín erfiður mótherji

Fremsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi þessa dagana er Alexei Navalní, sem hefur lagt meira fram en aðrir til þess að leggja grunn að mótmælahreyfingunni sem nú velgir Vladimír Pútín forsætisráðherra undir uggum.

Erlent
Fréttamynd

Baltasar þriðji í skíðakeppni í Frakklandi

Baltasar Kormákur hafnaði í þriðja sæti í skíðakeppni kvikmyndaframleiðenda, leikstjóra og annarra kvikmyndamógúla sem haldin var í tengslum við Les Arcs-kvikmyndahátíðina, en Baltasar var þar að kynna kvikmynd sína, Djúpið. Leikstjórinn þykir liðtækur skíðakappi en mátti lúta í lægra haldi fyrir sér reyndari köppum, þeim Denis Antoine og Grégory Faes.

Lífið
Fréttamynd

Seldu fjarskiptabúnað ríkisins

Saksóknari í Þýskalandi hefur gefið út ákæru á hendur fimm mönnum fyrir peningaþvætti. Þeir eru sakaðir um að hafa þvætt um 150 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar um 18,4 milljörðum króna, fyrir rússneskan ráðherra. Þetta kemur fram í frétt á vef bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. Rannsókn málsins hefur staðið í sex ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Vildi fitna en gat það ekki

Leonardo DiCaprio óskaði þess að hann gæti fitnað hraðar þegar hann var við tökur á mynd um stofnanda FBI-leynilögreglunnar, J. Edgar Hoover.

Lífið
Fréttamynd

Leita stuðnings við afturköllun ákæru

Unnið er að því að afla stuðnings við tillögu Sjálfstæðismanna um að ákæra Alþingis á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka. Vonast er til að hægt verði að leggja tillöguna fram í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ung lögga fékk heiðurverðlaun

„Þetta kom skemmtilega á óvart. Það er nú ekki svo oft sem okkur er hrósað og sjálfur lít ég á aðstoð lögreglunnar við borgarana sem sjálfsagðan hlut,“ segir lögreglumaðurinn Jóhann Birkir Guðmundsson sem í fyrradag hlaut heiðursverðlaun Stúdentaráðs.

Innlent
Fréttamynd

Afnema má gjaldeyrishöftin hraðar

Viðskiptaráð Íslands kynnti í gær tillögur sérfræðingahóps úr viðskiptalífi og háskólunum um hvernig afnema megi gjaldeyrishöft á einu ári. Er það mat hópsins að það megi gera á svo skömmum tíma án þess að verulegur þrýstingur verði á gjaldeyrismarkaði og þannig að kostnaður verði ekki of mikill. Við sama tækifæri kynnti ráðið nýja skýrslu um gjaldeyrishöftin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eyddu hálfum milljarði á hátíðinni

Erlendir ferðamenn sem sóttu Iceland Airwaves-hátíðina heim eyddu 450 milljónum króna meðan á hátíðinni stóð. Þetta kemur fram í könnun á hagrænum áhrifum komu gesta hátíðarinnar hingað til lands, sem unnin er á vegum Útflutningsstofu íslenskrar tónlistar. Iceland Airwaves stóð yfir dagana 31. október til 4. nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Buðu Íslandi aðeins 6,5% makrílkvótans

Sameiginleg tillaga Evrópusambandsins (ESB) og Noregs, sem lögð var fram á fundi strandríkjanna í Clonakilty á Írlandi í síðustu viku, gerði aðeins ráð fyrir 6,5% hlutdeild Íslands í sameiginlegum makrílkvóta frá og með næsta ári, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Innlent
Fréttamynd

Glassúr og púðursykur reyndust of létt

Nettóþyngd Kötlu púðursykurs og glassúrs frá Kötlu eru undir leyfilegum mörkum sé miðað við merkingar á vörunum. Glassúrinn er að meðaltali um 30 prósentum undir nettóþyngd, vegur að meðaltali um 103 grömm, en samkvæmt pakkningu á varan að vega 150 grömm. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Neytendastofu á þyngd sex vörutegunda sem notaðar eru í bakstur.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæði Palestínu viðurkennt á Íslandi

„Þetta er mjög mikilvægt því þetta auðveldar öðrum ríkjum að fylgja í kjölfarið,“ sagði Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu, þegar hann tók við viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Palestínuríkis í gær.

Erlent
Fréttamynd

Par með hundruð gramma kókaíns

Par sem var að koma frá Spáni í byrjun vikunnar reyndist vera með kókaín falið innvortis. Parið var úrskurðað í gæsluvarðhald fram á mánudag, en jafnvel er gert ráð fyrir að fólkið verði látið laust í dag þar sem rannsókn málsins hefur miðað mjög vel.

Innlent
Fréttamynd

Ekki niðurlæging að fá mat í poka

Við viljum helst sjá bros á þeim sem fara frá okkur og reynum að miða við það,“ segir Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar í Reykjavík. Jólin eru annasamasti tíminn hjá hjálparsamtökum eins og Mæðrastyrksnefnd, og jólaúthlutunin er í undirbúningi allt árið um kring.

Innlent
Fréttamynd

Togari knúinn áfram með orku úr dýrafitu

Björgúlfur EA 312, ísfiskstogari Samherja, kom til heimahafnar á Dalvík í gær en í veiðiferðinni var nýttur innlendur orkugjafi, lífdísill, framleiddur hjá nýsköpunarfyrirtækinu Orkey á Akureyri. Þetta mun vera einsdæmi í heiminum að úrgangi sé breytt í orku sem nýtt er til að keyra fiskiskip.

Innlent