
Kosningar í Bretlandi

Flokkur Farage fast á hæla Verkamannaflokksins
Umbótaflokkur Nigels Farage, eins helsta hvatamanns Brexit, mælist næststærsti stjórnmálaflokkur Bretlands, og fast á hæla Verkamannaflokksins í nýrri skoðanakönnun. Aðeins rétt rúmur helmingur kjósenda Verkamannaflokksins segist myndu kjósa flokkinn aftur ef kosið yrði nú.

Tilkynnti of seint um fatastyrki til konunnar sinnar
Þingmenn Íhaldsflokksins í Bretlandi vilja að framkvæmd verði rannsókn á tengslum Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og fjölmiðlamannsins Waheed Alli. Samkvæmt reglum þingsins á að tilkynna um allar gjafir innan 28 daga frá kosningum en Starmer tilkynnti ekki fyrr en á þriðjudag um ýmsar gjafir frá Alli til konunnar sinnar.

Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs
Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum.

Vill slá vopnin úr höndum popúlista með því að taka á áhyggjum fólks
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hvetur Keir Starmer, núverandi forsætisráðherra, til að taka útlendingamálin föstum tökum í því skyni að slá vopnin úr höndum popúlista á hægri væng stjórnmálanna.

Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna
Breska stjórnmálakonan Rachel Reeves var í dag skipuð fjármálaráðherra Bretlands fyrst kvenna eftir stórsigur Verkamannaflokksins í núliðnum þingkosningum.

Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fagnaði kosningasigri Verkamannaflokksins í Bretlandi með formanni flokksins, Keir Starmer. Kristrún segir Starmer meðvitaðan um uppgang Samfylkingarinnar á Íslandi.

Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi
Rishi Sunak fór í morgun ásamt eiginkonu sinni Akshata Murty á fund Karls Bretakonungs þar sem hann sagði af sér embætti forsætisráðherra en íhaldsflokkurinn beið afhroð í kosningunum sem fram fóru í gær.

Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins
Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í bresku þingkosningunum sem fram fóru í gær og Íhaldsflokkurinn, sem verið hefur við stjórnvölinn í fjórtán ár, beið afhroð.

Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn
Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag. Rishi Sunak, forsætisráðherra og leiðtogi Íhaldsflokksins, og Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins greiddu báðir atkvæði í morgun með eiginkonur sínar sér við hlið.

Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám
Verkamannaflokknum er spáð stórsigri í bresku þingkosningunum sem fóru fram í dag samkvæmt útgönguspá. Flokknum er spáð 410 þingsætum. Þá er íhaldsflokkurinn með næstmest fylgi, eða 131 sæti.

Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn
Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag en Íhaldsflokkurinn stendur ákaflega illa; ekki einu sinni forsætisráðherrann er öruggur um þingsæti. Formaður Samfylkingarinnar, sem er stödd úti í Bretlandi til að fylgjast með kosningum, segir greinilegt að Bretar vilji breytingar.

Bretar ganga að kjörborðinu
Kjörstaðir hafa opnað í Bretlandi þar sem almenningur kýs í þingkosningum sem Rishi Sunak forsætisráðherra blés til með skömmum fyrirvara á dögunum.

Fjórir handteknir við heimili Rishi Sunak
Fjórir menn voru handteknir í Norður Jórvíkursýslu á Englandi í dag, nánar tiltekið á lóð Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands. Mennirnir eru grunaðir um að hafa farið á lóðina í leyfisleysi.

Lífvörður Sunaks veðjaði á hvenær yrði kosið
Lögreglumaður sem gætir öryggis Rishis Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið handtekinn vegna gruns um veðmálasvindl. Honum er gefið að sök að hafa veðjað á það hvenær Bretar myndi ganga til kosninga.

Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB
Nú átta árum eftir að meirihluti Breta greiddi atkvæði með því að ganga úr Evrópusambandinu segist aðeins fjórðungur telja að Bretland eigi að standa utan sambandsins. Hlutfallið hefur ekki verið lægra frá þjóðatkvæðagreiðslunni.

Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí
Rishi Sunak segir það hafa verið mistök að yfirgefa minningarathöfn um innrásina í Normandí í gær. Það gerði hann til þess að gefa sjónvarpsviðtal heimafyrir, þar sem hann stendur í harðri kosningabaráttu.

Dorrit hvetur Nigel Farage til dáða
Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, birti mynd af sér í dag á Instagram með breska stjórnmálamanninum Nigel Farage, og hvatti hann til dáða.

Sunak og Starmer tókust á um skatta, útlendingamál og NHS
Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands og formaður Íhaldsflokksins, og Keir Starmer, formaður Verkamannaflokksins, mættust í gær í fyrstu kappræðum sínum fyrir þingkosningarnar í Bretlandi sem fara fram 4. júlí næstkomandi.

Fékk mjólkurhristing í andlitið við upphaf kosningabaráttunnar
Ung kona kastaði mjólkurhristingi í andlitið á Nigel Farage þegar hann hóf kosningabaráttu sína fyrir þingkosningar í Bretlandi í dag. Farage sagði skóla landsins „eitra“ hugi ungs fólks í heimsókn sinni í Essex.

Farage snýst hugur og býður sig fram til þings
Nigel Farage, einn helsti hvatamaðurinn að útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, ætlar að bjóða sig fram til þingsetu í kosningunum sem fara fram í næsta mánuði. Upphaflega ætlaði Farage að sitja hjá og hjálpa Donald Trump vini sínum að ná kjöri í Bandaríkjunum.

Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn
Diane Abbott, fyrsta svarta þingkona Bretlands, hefur greint frá því að hún muni ekki fá að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn í komandi þingkosningum.

Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára
Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hefur sætt harðri gagnrýni fyrir hugmyndir sem hann varpaði fram á dögunum um að taka upp herþjónustu fyrir 18 ára.

Munu kosningar bjarga Bretlandi?
„1000 klukkustundir til að bjarga Bretlandi“ skrifaði Allister Heath, ritstjóri sunnudagsútgáfu íhaldsblaðsins Telegraph á vefsíðu útgáfunnar, þegar Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að kosningar yrðu haldnar 4. júlí.

Senda atkvæði sín með pósti frá EM í Þýskalandi
Enska knattspyrnusambandið mun sjá til þess að landsliðsmenn Englands á Evrópumótinu í sumar geti greitt atkvæði í þingkosningum Bretlands.

Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar
Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 4. júlí næstkomandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi hans fyrir utan Downing stræti nú á fjórða tímanum.

Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum
Niðurstöður liggja fyrir í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum í Englandi og Wales í öllu nema einu kjördæmi og vann Verkamannaflokkurinn mikinn sigur. Flokkurinn bætti við sig 180 sveitarstjórnarsætum og vann meirihluta í átta stjórnum.

Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð
Sadiq Khan borgarstjóri í Lundúnum tryggði sitt þriðja kjörtímabil í embætti þegar hann sigraði borgarstjórnarkosningar í Lundúnum fyrir hönd Verkamannaflokksins í dag.

Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn
Kosningar eru hafnar á Englandi þar sem Íhaldsflokkurinn gæti mögulega tapað um 500 sveitarstjórnarsætum. Niðurstöðurnar eru sagðar munu gefa nokkuð góða mynd af því hvort Íhaldsflokkurinn hefur tapað jafn miklu fylgi og kannanir benda til.

David Cameron nýr utanríkisráðherra
David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið skipaður í embætti utanríkisráðherra. Rishi Sunak, forsætisráðherra, rak Suella Braverman úr embætti innanríkisráðherra í morgun og réði James Celverly, fyrrverandi utanríkisráðherra, í stað hennar.

Tölvuþrjótar komust í kerfi breskrar kjörstjórnar
Yfirkjörstjórn Bretlands segir að hún hafi orðið fyrir barðinu á „óvinveittum aðilum“ sem brutust inn í tölvukerfi hennar síðasta haust. Þrjótarnir fengu meðal annars aðgang að tölvupóstum, stjórnkerfum og kjörskrám.