Erlent
Danski sjóliðinn jarðsettur Erlent 28.12.2006 16:22 Liechtenstein stækkar Smáríkið Liechtenstein hefur stækkað um hálfan ferkílómetra, eftir nýjar mælingar á landamærum þess. Það þýðir að ríkið er 160 ferkílómetrar. Til samanburðar má geta þess að Ísland er rúmir 104 þúsund ferkílómetrar. Erlent 28.12.2006 15:41 Ísraelar útvega Palestínumönnum vopn Erlent 28.12.2006 15:19 Írakar flýja heimili sín Meira en 108 þúsund Írakar hafa yfirgefið heimili sín og látið skrá sig sem flóttamenn, á síðustu þrjátíu dögum, að sögn yfirvalda þar í landi. Hátt í hálf milljón manna hefur flúið að heiman síðan sprengjuárás var gerð á Samarra bænahúsið fyrir ári. Erlent 28.12.2006 14:40 Fjöldamorðum stjórnað úr fangelsum Að minnsta kosti ellefu manns létu lífið í árásum glæpagengja í Ríó de Janeiro, í Brasilíu, í morgun. Talið er að glæpamenn í Bangu fangelsinu hafi fyrirskipað árásirnar. Erlent 28.12.2006 13:45 Ungur viðskiptajöfur stöðvaður Erlent 28.12.2006 12:42 Bíða í röðum eftir að fá að hengja Saddam Tölvupóstur dynur nú á ríkisstjórn Íraks, frá landflótta Írökum, sem bjóðast til að verða böðlar Saddams Hussein, þegar hann verður hengdur í næsta mánuði. Margir sjálfboðaliðanna misstu ættingja eða vini meðan Saddam stjórnaði landinu. Erlent 28.12.2006 12:31 Heather Mills fær ekki eyri Fyrirsætan fyrrverandi Heather Mills mun ekki ríða feitum hesti frá skilnaðinum við Sir Paul McCartney, ef lögfræðingar hans fá einhverju um ráðið. Þeir hafa lagt fram rök fyrir því að Mills eigi ekki að fá eyri við skilnaðinn. Erlent 28.12.2006 12:59 Dæmdur fyrir mörg þúsund nauðganir Norskur maður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fósturdóttur sinni mörgþúsund sinnum. Árásirnar hófust þegar hún var tólf ára og stóðu þartil hún var tvítug. Maðurinn er 46 ára gamall. Erlent 28.12.2006 10:59 10 ára bann fyrir skáksvindl Indverskur skákmaður hefur verið dæmdur í tíu ára keppnisbann fyrir að svindla á stórmótum í heimalandi sínu. Hann var kominn alla leið á landsmótið í skák, þegar upp um hann komst. Erlent 28.12.2006 10:41 Bandaríkjastjórn í vegi fyrir Virgin America Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa neitað að veita Virgin Group, félagi breska auðkýfingsins sir Richard Bransons, leyfi til að setja á laggirnar lággjaldaflugfélag vestanhafs. Bandarísk lög kveða á um að 75 prósent hlutafjár í flugfélögum verður að vera í eigu Bandaríkjamanna. Viðskipti erlent 28.12.2006 10:17 « ‹ 192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Hvít-Rússar búast við lausn á gasdeilunni fyrir 1. janúar Hvíta-Rússland býst við því að deilan við Rússa um verðið á gasi þeim til handa verði leyst fyrir 1. janúar næstkomandi. Rússar hafa sagt að þeir muni skrúfa fyrir gasið ef samkomulag hefur ekki náðst fyrir þann tíma en þeir vilja fá hærra verð fyrir það. Hvít-Rússar hafa á móti sagst ætla að loka flutning gass til Evrópu ef í harðbakkann slær. Erlent 28.12.2006 23:30
Lögregla í Rio eykur viðbúnað Lögreglan í Rio de Janeiro munt tvíefla viðbúnað vegna áramótafagnaðar í borginni eftir að glæpagengi réðust á strætisvagna og lögreglustöðvar í borginni í dag og myrtu að minnsta kosti 18 manns. Sjö brunnu til dauða og nærri tveir tugir særðust alvarlega í árásinni en lögreglan kenndi eiturlyfjagengjum um hana. Erlent 28.12.2006 23:23
Ekvador deilir á aðgerðir Kólumbíu gegn eiturlyfjaframleiðslu Forseti Ekvadors, Rafael Correa, fór að landamærum Kólumbíu í dag til þess að skoða áhrif eitrana sem Kólumbíustjórn stendur fyrir til þess að drepa kókólaufaræktun en kókaín er unnið úr þeim. Forseti Kólumbíu, Alvaro Uribe, segir aðgerðirnar nauðsynlegar í baráttunni gegn fíkniefnum en Correa segir þær sýndarmennsku eina. Erlent 28.12.2006 23:15
Arbour varar við of miklum flýti í máli Saddams Yfirmaður mannréttindamála Sameinuðu þjóðanna, Louise Arbor, sagði í dag að írösk yfirvöld ættu að flýta sér varlega í að uppfylla dauðadóminn yfir Saddam Hússeins þar sem málsmeðferðin hefði ekki verið fyllilega sanngjörn en íraskir embættismenn sögðu í dag að Saddam yrði líklega líflátinn fyrir áramót. Erlent 28.12.2006 22:27
Apple í vandræðum vegna kaupréttarákvæða Steve Jobs, forstjóri Apple Computer, fékk kauprétt að hlutabréfum í fyrirtækinu fyrir allt að 7.5 milljónir dollara, eða sem nemur um 535 milljónum íslenskra króna, án þess að hafa tilskilin leyfi frá stjórn fyrirtækisins. Erlent 28.12.2006 21:33
Herlög verða sett í Sómalíu á laugardaginn Forsætisráðherra Sómalíu, Mohamed Al Gedi, skýrði frá því í kvöld að þing landsins myndi lýsa yfir herlögum frá og með laugardeginum og að þau myndu standa í þrjá mánuði. Erlent 28.12.2006 21:26
Auglýst eftir ferðafélaga á E-bay Breskur maður hefur auglýst til sölu á Ebay lúxusferð fyrir tvo til Jamaíka og er verðið aðeins brot af upprunalegu verði, eða um 90 þúsund krónur í stað 335 þúsund króna. Sá böggull fylgir þó skammrifi að aðeins konur geta keypt ferðina og þær verða að fara með þeim sem selur hana. Erlent 28.12.2006 21:15
Bandaríkin vilja þrýsta á stjórnvöld í Myanmar Bandarísk yfirvöld hafa heitið því að leggja aukinn kraft í að koma á framfæri tillögu innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem mundi setja þrýsting á herstjórnina í Myanmar um að taka upp lýðræðislegri stjórnarhætti og bæta ástand í mannréttindamálum þar í landi. Erlent 28.12.2006 21:12
Danskir múslimar berjast í Sómalíu Forsætisráðherra Sómalíu skýrði frá því í dag í viðtali við norska blaðið Nettavisen að fjölmargir stríðsmenn uppreisnarmanna í Sómalíu séu norskir, sænskir eða danskir ríkisborgarar. Erlent 28.12.2006 20:55
Tvær milljónir í Mecca Tvær milljónir múslima streymdu út úr borginni Mecca í dag við upphaf Haj pílagrímsfararinnar undir árvökulum augum lögreglu í Sádi Arabíu sem vonast til þess að koma í veg fyrir hvers konar troðning eða ofbeldi. Ferðin til Mecca er samkvæmt Íslam ein af undirstöðum trúarinnar og hana verða allir sem geta að fara. Erlent 28.12.2006 19:46
Edwards ætlar í forsetaframboð John Edwards, sem var varaforsetaefni John Kerry í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2004, hefur lýst því yfir að hann muni sækjast eftir tilnefningu demókrata sem forsetaefni flokksins fyrir forsetakosningarnar sem munu fara fram árið 2008. Erlent 28.12.2006 19:25
Aftaka Saddams verður tekin upp Síðustu andartök í lífi Saddams Hússeins verða tekin upp á myndband af írösku stjórninni en þetta staðfesti fréttamaður CBS í dag en allt ferlið, frá undirritun dómsskjala til hengingarinnar, verði fest á filmu. Aðalöryggisráðgjafi Íraka sagði að dagsetningin myndi ekki vera gerð opinber til þess að komast hjá óeirðum. Erlent 28.12.2006 19:15
Bush segir samráð ganga vel George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri á góðri leið með að undirbúa nýja stefnu fyrir Írak. Bush, sem ætlar sér að kynna hina nýju stefnu í næsta mánuði, hitti í dag Condoleezzu Rice, Dick Cheney, Robert Gates og fleiri háttsetta aðila innan stjórnarinnar til þess að ræða málefni Íraks og hugsanlegar breytingar sem hægt væri að gera á stefnu Bandaríkjanna þar. Erlent 28.12.2006 19:04
Ísbirnir í útrýmingarhættu vegna bráðnunar íss Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur lagt til að ísbirnir verði settir á válista yfir dýr sem eru í útrýmingarhættu. Mikil ísbráðnun við norðurskautið veldur því að heimkynni bjarnanna eru nú óðum að hverfa. Erlent 28.12.2006 18:17
Eþíópíumenn komnir inn í Mogadishu Stjórnarher Sómalíu, með fulltingi eþíópískra hersveita, gekk fylktu liði inn í Mogadishu, höfuðborg landsins í dag, nokkrum klukkustundum eftir að íslamskir uppreisnarmenn yfirgáfu hana. Upplausn virðist ríkja í borginni og þúsundir landsmanna eru á vergangi vegna átakanna. 140 er saknað eftir að báti flóttamanna hvolfdi í dag. Erlent 28.12.2006 18:13
Sömu áramótaheit um allan heim Betra jafnvægi í leik og starfi, gera meiri líkamlegar æfingar og að forðast stórslysasambönd eru á meðan þeirra áramótaheita sem eru hvað vinsælust um allan heim þessi áramótin. Alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið ACNielsen tók fólk tali í 46 löndum og komst að því að allt frá Bandaríkjunum til Víetnam vildi fólk helst að vinna þess myndi verða í minna hlutverki á komandi ári. Erlent 28.12.2006 17:58
Bretar borga bandamönnum lánið Bretar skýrðu frá því í dag að næstkomandi föstudag myndu þeir klára að borga þau lán sem þeir hefðu tekið við lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Lánin fengu þeir frá Bandaríkjunum og Kanada á aðeins tvö prósent vöxtum en heildarupphæðin sem Bretar hafa borgað til baka nemur alls 9.5 milljörðum dollara, eða um 678 milljörðum íslenskra króna. Erlent 28.12.2006 17:46
Kjöt af einræktuðum dýrum hæft til manneldis Fæðu- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna sagði frá því í dag að það byggist við því að leyfa sölu og neyslu á kjöti úr einræktuðum dýrum. Dýrin sem um ræðir eru naut, svín og geitur en kjöt úr einræktuðu sauðfé er ekki enn talið hæft til manneldis. Erlent 28.12.2006 17:14
Forstjóri IKEA talar af sér Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA talaði af sér þegar hann hélt ræðu á jólahátíð verslanakeðjunnar, í síðustu viku. IKEA hefur það fyrir sið að segja ekki frá hagnaðinum en Kamprad upplýsti að á síðasta ári hefði hann verið um 250 milljarðar króna. Erlent 28.12.2006 16:38
Liechtenstein stækkar Smáríkið Liechtenstein hefur stækkað um hálfan ferkílómetra, eftir nýjar mælingar á landamærum þess. Það þýðir að ríkið er 160 ferkílómetrar. Til samanburðar má geta þess að Ísland er rúmir 104 þúsund ferkílómetrar. Erlent 28.12.2006 15:41
Írakar flýja heimili sín Meira en 108 þúsund Írakar hafa yfirgefið heimili sín og látið skrá sig sem flóttamenn, á síðustu þrjátíu dögum, að sögn yfirvalda þar í landi. Hátt í hálf milljón manna hefur flúið að heiman síðan sprengjuárás var gerð á Samarra bænahúsið fyrir ári. Erlent 28.12.2006 14:40
Fjöldamorðum stjórnað úr fangelsum Að minnsta kosti ellefu manns létu lífið í árásum glæpagengja í Ríó de Janeiro, í Brasilíu, í morgun. Talið er að glæpamenn í Bangu fangelsinu hafi fyrirskipað árásirnar. Erlent 28.12.2006 13:45
Bíða í röðum eftir að fá að hengja Saddam Tölvupóstur dynur nú á ríkisstjórn Íraks, frá landflótta Írökum, sem bjóðast til að verða böðlar Saddams Hussein, þegar hann verður hengdur í næsta mánuði. Margir sjálfboðaliðanna misstu ættingja eða vini meðan Saddam stjórnaði landinu. Erlent 28.12.2006 12:31
Heather Mills fær ekki eyri Fyrirsætan fyrrverandi Heather Mills mun ekki ríða feitum hesti frá skilnaðinum við Sir Paul McCartney, ef lögfræðingar hans fá einhverju um ráðið. Þeir hafa lagt fram rök fyrir því að Mills eigi ekki að fá eyri við skilnaðinn. Erlent 28.12.2006 12:59
Dæmdur fyrir mörg þúsund nauðganir Norskur maður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fósturdóttur sinni mörgþúsund sinnum. Árásirnar hófust þegar hún var tólf ára og stóðu þartil hún var tvítug. Maðurinn er 46 ára gamall. Erlent 28.12.2006 10:59
10 ára bann fyrir skáksvindl Indverskur skákmaður hefur verið dæmdur í tíu ára keppnisbann fyrir að svindla á stórmótum í heimalandi sínu. Hann var kominn alla leið á landsmótið í skák, þegar upp um hann komst. Erlent 28.12.2006 10:41
Bandaríkjastjórn í vegi fyrir Virgin America Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa neitað að veita Virgin Group, félagi breska auðkýfingsins sir Richard Bransons, leyfi til að setja á laggirnar lággjaldaflugfélag vestanhafs. Bandarísk lög kveða á um að 75 prósent hlutafjár í flugfélögum verður að vera í eigu Bandaríkjamanna. Viðskipti erlent 28.12.2006 10:17