Tækni
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 85 ›
Loksins íslenskt lyklaborð á Apple græjunum Nýja stýrikerfið iOS 6 frá Apple skartar mörgum nýjungum. Ein þeirra er alvörunni íslenskt lyklaborð með stafina Æ, Þ, Ð og Ö sýnilega. Þetta kemur fram á tækniblogginu Símon.is. Viðskipti erlent 23.9.2012 17:19
Þjófar komust fyrstir í iPhone 5 í Japan Margir virðast hafa áhuga á nýjustu græju Apple, iPhone 5, þeirra á meðal japanskir bófar, því nú lítur út fyrir að verslanir í Japan hafi verið rændar stuttu áður en síminn átti að koma í almenna sölu. Ránsfengurinn er talin um 100 þúsund dollara virði, eða rúmlega 12 milljóna króna. Viðskipti erlent 23.9.2012 16:16
Hundruð Íslendinga forpöntuðu iPhone 5 Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, býst við því að eftirspurn eftir iPhone 5 verði meiri en framboðið hér á landi og erfitt verði að komast yfir gripinn fram að jólum. Viðskipti erlent 22.9.2012 16:58
Apple biðst afsökunar Tæknirisinn Apple hefur beðið viðskiptavina sína afsökunar og heitir því að uppfæra staðsetningarþjónustu sína á næstu vikum. Fyrirtækið ákvað að slíta samstarfi sínu við Google fyrir nokkru en fyrri kynslóðir iPhone snjallsímanna sem og iPad spjaldtölvanna hafa notað Google Maps kortaþjónustuna. Viðskipti erlent 21.9.2012 21:05
iPhone 5 kemur í búðir í dag - Þjóðverji segir símann betri en kynlíf Nýjasti iPhone-síminn frá Apple kemur í verslanir í dag og mynduðust langar raðir við verslanir um allan heim þar sem aðdáendur símans börðust um að vera fyrstir til að fjárfesta í gripnum. Búist er við að Apple muni selja allt að tíu milljónir síma um helgina. Viðskipti erlent 21.9.2012 12:58
Yfir 2 milljónir pöntuðu sér iPhone á einum sólarhring Yfir tvær milljónir manna pöntuðu sér iPhone 5 í forsölu á fyrsta sólarhringnum, sem eru tvöfalt fleiri en pöntuðu sér 4S símann í fyrra. Eftirspurnin eftir símanum er langt umfram væntingar tæknirisans Apple, sem framleiðir símann. Gert er ráð fyrir því að ekki verði hægt að afgreiða allar pantanirnar strax og því mega notendur búast við að fá ekki símann fyrr en í október. iPhone 5 var kynntur til leiks fyrir helgi en hann er bæði lengri, hraðari og með betri upplausn en sá á undan. Viðskipti erlent 17.9.2012 15:56
iPhone 5 ekki fáanlegur hér landi fyrr en í lok mánaðarins Nýr iPhone verður ekki fáanlegur á Íslandi fyrr en í lok september. Fæstir deila um fallegt útlit en tækninýjungar virðast af skornum skammti. Umboðsaðili Samsung telur blómaskeið iPhone á enda. Viðskipti erlent 13.9.2012 19:01
Millitengi fyrir vörur Apple dýrt og ljótt Nýjasti snjallsími Apple, iPhone 5, leit dagsins ljós í gær. En afhjúpun Apple boðaði einnig endalok hvers einasta aukahlutar sem viðskiptavinir Apple hafa keypt fyrir raftæki sín. Viðskipti erlent 13.9.2012 13:32
iPhone 5 kominn út- Lengri, léttari og þynnri "Það er bara bomba komin inn á markaðinn. Þeir hafa komið okkur á óvart og sýnt að þeir geta gert miklu öflugri og betri græju - en hafa hana þó léttari og þynnri sem er eitthvað sem aðrir framleiðndur hafa ekki verið að gera," segir Björgvin Björgvinsson, sérfræðingur hjá Epli.is, í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Viðskipti erlent 12.9.2012 18:26
Raftæki öðlast framhaldslíf hjá Grænni Framtíð Gamlir farsímar og tölvur fá framhaldslíf hjá fyrirtækinu Græn Framtíð sem tekur við þeim og selur til viðgerðarfyrirtækja í Evrópu. Stofnandinn segir öryggisvörð næstum því hafa hringt í lögregluna þegar hann sá tugi fartölva í stöflum í stofunni. Viðskipti erlent 9.9.2012 19:43
iPhone er stærri en Microsoft Apple mun að öllum líkindum kynna nýjasta snjallsíma sinn, iPhone 5, í næstu viku. Vinsældir iPhone snjallsímanna síðustu ár eru með ólíkindum en þetta litla raftæki hefur innsiglað stöðu Apple sem eins stærsta fyrirtækis veraldar. En hversu vinsæll er iPhone í raun og veru? Viðskipti erlent 9.9.2012 17:27
Endurhannaður iPhone væntanlegur Nýr iPhone verður kynntur til leiks í næstu viku. Apple hefur boðað til blaðamannafundar 12. september næstkomandi og þykir það nær öruggt að nýjasta kynslóð snjallsímans verði afhjúpuð. Þó svo að Apple hafi ekki staðfest neitt varðandi hönnun og búnað símans hafa ýmsar upplýsingar um útlit hans og innvols komið fram. Viðskipti erlent 5.9.2012 13:12
iPhone 5 lendir í næstu viku Tæknirisinn Apple hefur boðað til blaðamannafundar í næstu viku. Sem fyrr gefur fyrirtækið ekki upp hvert fundarefnið sé. Það þykir þó vera nær öruggt að nýr iPhone snjallsími verði afhjúpaður á fundinum. Viðskipti erlent 4.9.2012 17:16
83 milljón plat einstaklingar á facebook Yfir 83 milljón notendur á facebook eru plat. Þetta tilkynnti fyrirtækið í síðustu viku. Viðskipti erlent 2.8.2012 14:38
Snjallsímar taka yfir - niðurhal eykst Algjör kúvending hefur orðið á farsímanotkun hér á landi að undanförnu þar sem gagnaniðurhal hefur margfaldast. Þrátt fyrir það erum við nokkru á eftir Norðurlöndunum, segir framkvæmdastjóri Nova. Gríðarlega hröð sala á vinsælum snjallsímum á heimsvísu hefur haft afgerandi áhrif á farsímanotkun. Viðskipti erlent 31.7.2012 18:14
Apple kynnir nýja vörulínu í september Líklegt þykir að tæknirisinn Apple muni kynna nýja vörulínu í september. Þá er talið nýr iPhone snjallsími verði opinberaður, sem og minni útgáfa af iPad spjaldtölvunni. Viðskipti erlent 30.7.2012 20:29
Notendum Facebook fækkar Notendum samskiptasíðunnar Facebook hefur fækkað í Bandaríkjunum og Evrópu á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram í rannsóknarniðurstöðum greiningarfyrirtækisins Capstone Investments. Viðskipti erlent 18.7.2012 17:55
Næsti iPhone með nýja tengibraut - aukahlutir úreltir Tæknirisinn Apple hefur tryggt sér einkaleyfi á nýrri tengibraut fyrir jaðartæki og snjallsíma. Talið er að nýjasta útgáfa iPhone snjallsímans verði búin tenginu. Það þýðir að flest allir aukahlutir sem fólk hefur keypt hingað til verða úreltir. Viðskipti erlent 18.7.2012 20:02
Nexus 7 fær glimrandi viðtökur Nýjasta spjaldtölva Google, Nexus 7, er uppseld víðast hvar í Bandaríkjunum. Tölvan var opinberuð á I/O tækniráðstefnunni í síðasta mánuði en hún er knúin af nýrri útgáfu Android stýrikerfisins, Jelly Bean. Viðskipti erlent 16.7.2012 17:22
BlackBerry í andarslitrunum BlackBerry snjallsímarnir mega muna sinn fífil fegurri en fyrir um fjórum árum voru þeir heitasta græjan á markaði. Í dag eru þeir "á dánarbeðinu" að mati fjárfesta. Viðskipti erlent 15.7.2012 10:26
Tveggja turna tal á snjallsímamarkaði Tveir af hverjum þremur farsímum sem seldir eru í Bandaríkjunum eru snjallsímar. Þetta kemur fram í reglubundnu yfirliti greiningarfyrirtækisins Nielsen sem tekur saman upplýsingar um snjallsímanotkun Bandaríkjamanna. Viðskipti erlent 13.7.2012 10:19
Heilaskurðaðgerð á Twitter Læknar við Memorial Hermann-sjúkrahúsið í Houston framkvæmdu heilaskurðaðgerð í beinni útsendingu á Twitter-síðunni í gær. Viðskipti erlent 9.5.2012 17:04
Instagram loks komið fyrir Android Notendum Android-stýrikerfisins stendur nú til boða að fá smáforritið Instagram í snjallsíma sína. Náð hefur verið í forritið rúmlega milljón sinnum frá því að það var opinberað fyrr í dag. Viðskipti erlent 4.4.2012 17:40
Foxconn bregst við gagnrýni Tævanski raftækjaframleiðandinn Foxconn tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að hækka kaup starfsmanna sinn verulega. Þá ætlar fyrirtækið einnig að bæta vinnuaðstæður í verksmiðjum sínum í Kína. Viðskipti erlent 30.3.2012 13:35
Tim Cook heimsótti verksmiðjur Apple í Kína Tim Cook, forstjóri Apple, heimsótti verksmiðjur fyrirtækisins í Kína í dag. Apple hefur verið sakað um illa meðferð á starfsfólki sínu í verksmiðjunum og vill Cook vafalaust bæta ímynd Apple í Kína. Viðskipti erlent 29.3.2012 12:22
Obama mættur á Pinterest Samskiptasíðan Pinterest hefur vakið mikla athygli undanfarið og hefur Bandaríkjaforseti nú skráð sig á síðuna. Viðskipti erlent 28.3.2012 13:14
Apple reiðubúið að endurgreiða áströlskum viðskiptavinum Tæknifyrirtækið Apple er sakað um að hafa blekkt neytendur í Ástralíu með því að lofa fullum stuðningi við 4G farnetsþjónustu landsins á nýjustu iPad spjaldtölvunni. Fyrirtækið hefur boðist til að endurgreiða þeim sem keyptu nýju spjaldtölvuna. Viðskipti erlent 28.3.2012 11:47
Prótein sem veldur skalla Bandarískir vísindamenn við háskólann í Pennsylvaníu hafa uppgötvað prótein sem getur valdið hármissi. Þeir rannsökuðu sköllótta karlmenn og tilraunamýs og komu þá auga á þessi prótein. Viðskipti erlent 23.3.2012 19:16
Veðurskynjari í síma Fyrirtækið Google hefur tryggt sér réttinn til að nota kerfi sem byggir á að selja auglýsingar byggðar á veðrinu. Þannig gæti sá sem heldur á síma í rigningu mögulega séð auglýsingu um hvar næstu regnhlíf er að finna. Viðskipti erlent 22.3.2012 17:35
Sívirkni á Facebook merki um sjálfhverfu Þeir Facebook-notendur sem uppfæra stöðu sína reglulega og merkja sjálfa sig með nafni inn á myndir eru sjálfhverfari en aðrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Chris Carpenter, prófessors við Western Illinois-háskólann í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 22.3.2012 22:13