Stunguárás við Skúlagötu
1 2 3 ›
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Af hverju bíður barnið? Voveiflegir atburðir hafa gerst í okkar samfélagi. Megi þau óafturkræfu áföll sem orðið hafa verða til raunverulegra samfélagslegra breytinga. Við höfum talað um geðheilbrigðismál barna og fullorðinna árum og áratugum saman. Þrátt fyrir veljvilja flestra breytist allt of lítið og of hægt. Skoðun 3.9.2024 07:31
„Við þurfum að læra af öðrum þjóðum“ Hlynur Snorrason, formaður félags yfirlögregluþjóna, segir það ekki of seint að bregðast við ógnvænlegri þróun þar sem ungmenni beita vopnum í auknum mæli og að allt samfélagið þurfi að leggjast á eitt til að sporna gegn þessu. Mikilvægt sé að draga lærdóm frá öðrum þjóðum. Innlent 2.9.2024 22:03
Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi „Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“ Innlent 2.9.2024 18:38
Útskýrir hvers vegna hann mætti með hníf í skólann Landsliðsmarkvörður í handbolta lýsir því að hafa verið ungi strákurinn sem mætti með hníf í skólann á sínum tíma. Honum hafi liðið eins og allir í kringum sig gengju með hnífa og því gripið einn sjálfur. Þá líkt og nú hlusti enginn á börnin sem umfram allt þurfi að umvefja ást. Lífið 2.9.2024 14:36
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. Innlent 2.9.2024 11:45
Leggja aukinn þunga í að rannsaka ásetning hins grunaða Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Innlent 1.9.2024 20:03
Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin. Innlent 1.9.2024 18:48
Taka höndum saman gegn hnífaburði: „Þú ert aumingi“ Skýr skilaboð berast frá samfélagsmiðlastjörnum þessa dagana vegna fréttaflutnings og umræðu um aukinn hnífaburð ungmenna og þess skaða sem hann veldur: þeir sem bera hnífa úti á lífinu eru aumingjar og eiga sér engar málsbætur. Innlent 1.9.2024 13:18
„Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran“ „Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð. Hún var of góð, trúði engu slæmu upp á aðra og var ljósberi fyrir alla sem henni kynntust.” Þetta skrifar Birgir Karl Óskarsson, faðir hinnar sautján ára gömlu Bryndísar Klöru sem lést af sárum sínum síðastliðið föstudagskvöld eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Innlent 1.9.2024 00:15
Stúlkan er látin Stúlkan sem var stungin með hnífi í miðborginni síðastliðið laugardagskvöld er látin. Hún lést af sárum sínum á Landspítalanum í gærkvöld. Hún hét Bryndís Klara Birgisdóttir og var 17 ára. Innlent 31.8.2024 12:57
Ábyrgðin liggi fyrst og fremst hjá foreldrum Drengurinn sem er í haldi vegna stunguárásar á menningarnótt hefur verið fluttur á Hólmsheiði vegna líflátshótana. Ráðamenn vilja auka sýnileika lögreglu vegna ofbeldis unglinga en lögreglumaður ítrekar að foreldrar beri fyrst og síðast ábyrgð á börnum sínum. Innlent 30.8.2024 21:00
Drengurinn fluttur á Hólmsheiði til að tryggja öryggi hans Sextán ára drengur sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa stungið þrjú á menningarnótt er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir Fangelsismálastofnun ekki vista börn í fangelsum sínum nema það sé í samræmi við hagsmuni barnsins. Innlent 30.8.2024 13:26
Vill auka sýnileika lögreglu vegna stunguárása Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir ríkisstjórnina harmi slegna yfir stunguárásinni á menningarnótt. Hann vill hraða fyrirhuguðum aðgerðum er miða að því að auka sýnileika lögreglu. Innlent 30.8.2024 12:13
Stúlkan enn í lífshættu Sextán ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. september á grundvelli almannahagsmuna vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt. Innlent 30.8.2024 11:49
Bera fyrir sig að hinir krakkarnir séu með hníf Lögreglan telur að stórfellt átak þurfi til að taka á hnífaburði ungra barna. Dæmi er um að börn gangi um með rafvopn og piparúða. Einnig hefur borið á því að ungmenni mæti með hnífa í skólann. Innlent 29.8.2024 19:29
Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna. Innlent 29.8.2024 16:33
Orðið vör við hnífaburð í grunnskólum Reykjavíkur Borið hefur á því undanfarna mánuði að börn hafi verið með hníf á sér í grunnskólum og frístundastarfi í Reykjavík. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur hvetur foreldra til að ræða við börnin sín um hve hættulegt það geti verið að ganga með hníf á sér. Koma verði í veg fyrir vopnaburð. Innlent 29.8.2024 16:27
Miðbærinn orðinn hættulegri Bareigandi í Reykjavík segir miðbæ Reykjavíkur vera töluvert hættulegri en þegar hann kom hingað til lands frá Brasilíu fyrir um þrjátíu árum. Hann segist vera áhyggjufullur vegna stöðunnar og að reynsla hans af því að alast upp í Brasilíu sé orsökin á því. Innlent 29.8.2024 14:06
Þungar áhyggjur af vopnaburði ungmenna Yfirlögregluþjónar um allt land lýsa yfir áhyggjum af auknum vopnaburði ungmenna og ofbeldishegðun. Þeir segja mikla vinnu fyrir höndum og ekki síst hjá foreldrum til að snúa við þróuninni. Drengur á sextánda ári situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa stungið tvær stúlkur og dreng á sama reki. Sautján ára stúlka er í lífshættu. Innlent 28.8.2024 13:25
Mikill fjöldi lýst atburðarásinni við Skúlagötu Stúlka sem stungin var ítrekað með hníf í bíl við Skúlagötu að lokinni flugeldasýningunni á Menningarnótt er enn í lífshættu. Rannsókn lögreglu er sögð miða vel. Mikill fjöldi fólks varð vitni að árásinni. Innlent 27.8.2024 14:32
Viljum við börn í fangelsi? Í reglugerð um afplánun sakhæfra barna nr. 533/2015 segir að börn skuli afplána á vegum barnaverndaryfirvalda en ekki í fangelsi nema það sé barninu fyrir bestu að mati fagaðila. Og það er mat allra fagaðila að barni sé ekki fyrir bestu að vera vistað í fangelsi. Skoðun 27.8.2024 12:00
Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig. Innlent 26.8.2024 23:00
Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins. Innlent 26.8.2024 19:34
Einn þolenda stunguárásarinnar piltur frá Palestínu Einn þeirra sem varð fyrir stunguárás við Skúlagötu á Menningarnótt er af erlendum uppruna. Hinir brotaþolendurnir tveir og meintur gerandi eru hins vegar íslenskir ríkisborgarar. Þetta staðfestir Grímur Grímsson í samtali við fréttastofu, en áður hafði komið fram að öll fórnarlömbin þrjú auk árásarmannsins væru íslenskir ríkisborgarar. Grímur kveðst ekki geta tjáð sig frekar um stöðu viðkomandi eða uppruna hans að öðru leyti. Innlent 26.8.2024 17:01
Stúlkan enn í lífshættu en rannsókn miðar vel Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir rannsókn lögreglu á stunguárás við Skúlagötu á menningarnótt miða vel og að lögregla hafi verið í nokkuð hefðbundnum rannsóknaraðferðum. Stúlkan sem var stungin er enn í lífshættu. Innlent 26.8.2024 11:47
Sextán ára drengur í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar Sextán ára drengur sem er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld var í kvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur til 30. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25.8.2024 22:24
Stúlkan enn í lífshættu Stúlkan sem hlaut lífshættulega áverka í stunguárás í miðbæ Reykjavíkur í nótt er enn í lífshættu og ástand hennar óbreytt að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns miðlægrar rannsóknardeildar. Innlent 25.8.2024 20:24
Átti leið hjá fyrir tilviljun og tókst að endurlífga stúlkuna Ryan Cocuera, 32 ára hjúkrunarfræðingur á taugadeild Landspítalans, var á leiðinni heim með fjölskyldunni sinni á Menningarnótt í gær þegar hann kom að stúlku sem lá í blóði sínu á Skúlagötu eftir hnífstunguárás. Innlent 25.8.2024 15:05
Komu fórnarlömbum stunguárásarinnar til aðstoðar Starfsfólk Hopp hlúði að fórnarlömbum alvarlegrar stunguárásar sem átti sér stað við Skúlagötu í Reykjavík seint í gær. Einn var handtekinn grunaður um árásina og þrír eru særðir, þar af einn lífshættulega. Grunaður árásarmaður og brotaþolar eru allt Íslendingar undir átján ára aldri. Innlent 25.8.2024 13:16