Innlent
313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Enn mælist landris við Svartsengi Enn mælist landris við Svartsengi með svipuðum hraða og undanfarna daga samkvæmt GPS gögnum Veðurstofunnar. Innlent 6.1.2024 18:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. Innlent 6.1.2024 18:00
Formaðurinn nálgist Íslandsmet í óvinsældum og fylgið sögulega lágt Sjálfstæðisflokkurinn hefur líklega aldrei verið jafn illa undirbúinn undir kosningar og núna segir Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður flokksins. Flokkurinn hafi aldrei mælst með minna fylgi í könnunum og formaðurinn nálgist Íslandsmet í óvinsældum. Innlent 6.1.2024 17:58
Senda frá sér yfirlýsingu vegna banaslyssins á Grindavíkurvegi Steypustöðin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna banaslyssins á Grindavíkurvegi í gær. Í tilkynningunni segir að hugur Steypustöðvarinnar sé hjá aðstandendum hinna látnu og að fyrirtækið vinni með rannsóknaraðilum til að veita allar tiltækar upplýsingar. Innlent 6.1.2024 17:36
Katrín segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar Svandísar Svavardóttur matvælaráðherra. Hún segir að mikilvægt sé að taka niðurstöðu Umboðsmanns alvarlega og draga af henni lærdóm en að hún gefi ekki tilefni til róttækra aðgerða. Innlent 6.1.2024 17:13
Blöskrar sorphirðan í Garðabæ Sigurði Jökli Ólafssyni íbúa í Garðabæ brá heldur betur þegar hann ætlaði að fara með ruslið í grenndargáminn sinn við Ásgarð í Garðabæ. Þar blöstu við honum troðfullir gámar og rusl á víð og dreif á jörðinni umhverfis gámana. Innlent 6.1.2024 15:37
„Hver ber ábyrgð á vegum þegar þeir eru orðnir dauðagildra?“ Sumarhúsaeigandi við Jarðlangsstaði í Borgarbyggð segir hvorki sveitarfélagið né Vegagerðina vilja taka ábyrgð á hálkuvörnum á veginum sem leiðir að sumarhúsabyggðinni. Í henni eru meira en 150 sumarbústaðir og segir hann flughálku hafa verið á veginum í fleiri daga. Litlu megi muna að þar verði mannskæð bílslys nánast daglega. Innlent 6.1.2024 15:01
Fyrstu boð um að kviknað væri í framhaldsskólanum Eldur kom upp í sorpgeymslu við Framhaldsskólann á Húsavík á þriðja tímanum í nótt. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi þar sem slökkviliði barst útkall um að eldur hefði komið upp í skólanum. Líkur eru taldar á að um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 6.1.2024 14:14
Icelandair í samskiptum við Boeing Icelandair á í samskiptum við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing vegna farþegaflugvélar Alaska Airlines sem gat myndaðist á skömmu eftir brottför. Innlent 6.1.2024 12:40
Íslenskir aðgerðasinnar tjalda með Palestínumönnum Íslenskir aðgerðasinnar ætla sér að sýna Palestínumönnum samstöðu með því að tjalda á Austurvelli eins lengi og þarf. Mótmæli við utanríkisráðuneytið og samstöðufundur á Austurvelli fara fram í dag. Innlent 6.1.2024 12:24
Álit umboðsmanns nákvæmlega það sem varað hafi verið við Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir sláandi að hvalveiðibann hafi ekki átt sér lagastoð. Varað hafi verið við því síðan í sumar. Ráðherra verði að gera upp við sig sjálfur hvernig hann hyggist axla ábyrgð á málinu, sem eigi ekki að hafa úrslitaáhrif á framhald ríkisstjórnarsamstarfsins. Innlent 6.1.2024 11:55
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir sláandi að hvelveiðabann hafi ekki átt sér lagastoð. Varað hafi verið við því síðan í sumar. Ráðherra verði að gera upp við sig sjálfur hvernig hann hyggist axla ábyrgð. Innlent 6.1.2024 11:37
Fjórtán prósent landsmanna höfðu ekki efni á jólunum Fjórtán prósent landsmanna höfðu ekki efni á jólahaldinu og er það fimm prósentustigum fleiri en árið á undan. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup. Innlent 6.1.2024 10:07
Kærir sjálfan sig til lögreglu Árni Guðmundsson hefur gefið sig fram við laganna verði og játar brot sitt gagnvart áfengislöggjöfinni undanbragðalaust. Hann segist sekur um að hafa keypt áfengi ólöglega. Innlent 6.1.2024 09:00
Karl mátti ekki gefa konu sinni verðmætt aflandsfélag korter í þrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest riftun þrotabús Karls Emils Wernersson á ráðstöfun hans á hlutum í aflandsfélagi til Gyðu Hjartardóttur, sambýliskonu sinnar, skömmu áður en bú hans var tekið til gjaldþrotaskipta. Gyðu hefur verið gert að afhenda þrotabúinu hlutina, sem þrotabúið metur á ríflega 500 milljónir króna, að viðlögðum dagsektum. Innlent 6.1.2024 08:00
Útlit fyrir rólegt veður Það er útlit fyrir rólegt veður á landinu í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 6.1.2024 07:52
Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis. Innlent 6.1.2024 07:20
Rannsókn á meintum hótunum Páls skipstjóra blásin af Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur fellt niður kæru tveggja blaðamanna Heimildarinnar og útvarpsstjóra á hendur Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja fyrir hótun sumarið 2022. Blaðamennirnir lásu hótun út úr orðum Páls í tölvupósti til þeirra að hann þyrfti að grípa til annarra ráða til að stoppa þá. Innlent 6.1.2024 07:01
Bláa lónið opnar á morgun Bláa lónið opnar aftur á morgun. Allar rekstrareiningar lónsins opna í fyrramálið fyrir utan hótelin Silica og Retreat og veitingastaðinn Moss sem verða lokuð út mánudag. Innlent 5.1.2024 23:01
Tómas Logi býður sig fram til forseta Tómas Logi Hallgrímsson, björgunarsveitarmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Íslands í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Innlent 5.1.2024 22:35
Björg ráðin aðstoðarmaður verðandi borgarstjóra Björg Magnúsdóttir, sjónvarpskona, hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar, verðandi borgarstjóra. Björg hefur verið starfsmaður hjá Ríkisútvarpinu undanfarin tólf ár. Innlent 5.1.2024 22:07
Sjálfstæðisflokkurinn líti málið alvarlegum augum og Píratar telja afsögn eðlilega Þingflokkur Sjálfstæðisflokks lítur alvarlegum augum álit umboðsmanns Alþingis um að frestun matvælaráðherra á hvalveiðum hafi verið í andstöðu við lög. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir ráðherrann hafa beðið álitshnekki og þingmaður Pírata segir eðlilegast að hún segi af sér. Innlent 5.1.2024 21:34
Fólk búið að bíða upp undir ár á spítalanum eftir plássi Hjúkrunarfræðingur og einn af stjórnendum Landspítalans segir stóran hóp aldraða, sem fastur er á spítalanum vegna skorts á öðrum úrræðum, eiga betra skilið en að vera orðinn eitthvað vandamál á síðustu metrunum. Uggvænlegt sé að engin lausn sé í sjónmáli. Innlent 5.1.2024 21:01
Velti bílnum með lögregluna á hælunum og reyndi að flýja Lögregla veitti ökumanni eftirför um fimmleytið í morgun. Maðurinn ók bílnum á vegrið og valt bíllinn nokkrar veltur í kjölfarið. Ökumaðurinn var handtekinn eftir misheppnaða flóttatilraun. Innlent 5.1.2024 20:54
„Ég er í hálfgerðu sjokki og átti ekki von á þessu“ Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni í Skálatúni til frambúðar vegna ástands hennar. Hið vinsæla ungbarnasund Snorra er því í lausu lofti og segir Snorri ákvörðunina hafa komið sér í opna skjöldu. Hann tími samt ekki að hætta alveg strax. Innlent 5.1.2024 20:28
Stjórnvöld ætli að leggja sitt af mörkum náist hagstæðir langtímakjarasamningar Forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni leggja sitt af mörkum takist að ná langtíma kjarasamningi milli SA og ASÍ sem miði af því að ná verðbólgu og vöxtum niður. Verkalýðsforingjar voru bjartsýnir eftir fund með ráðherrum í dag. Innlent 5.1.2024 20:01
Missti hálfa fjölskylduna í loftárás en er nú mætt til Íslands Sautján ára stelpa sem kom hingað til lands frá Palestínu í dag segist himinlifandi og hlakkar til að læra tungumálið. Hluti fjölskyldu hennar lét lífið í sprengjuárás Ísraela fyrir þremur mánuðum. Sjálf missti hún fót í árásinni. Innlent 5.1.2024 18:39
Sundhnúkagígaröð „langlanglíklegasta“ upptakasvæði eldgoss Í uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar eru líkur á eldgosi við Svartsengi lækkaðar úr töluverðum líkum í nokkrar. Jarðeðlisfræðingur segir að breytingin sé fyrst og fremst til marks um að öll gögn bendi til að það verði eldgos á Sundhnjúkagígaröð. Innlent 5.1.2024 18:39
Framlengja aftur við Söru Lind Setningartími Söru Lindar Guðbergsdóttur sem settur forstjóri Ríkiskaupa hefur verið framlengdur til 1. mars. Þetta er í annað skiptið á innan við hálfu ári sem tímabundinn setningartími hennar er framlengdur. Innlent 5.1.2024 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Matvælaráðherra telur ekki tilefni til að segja af sér þrátt fyrir álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að ákvörðun hennar um að stöðva hvalveiðar hafi verið í andstöðu við lög. Hún taki álitið alvarlega en er á því að endurskoða þurfi hvalveiðar. Innlent 5.1.2024 18:05