Fótbolti

Inter með þriggja stiga forystu

Hernan Crespo fagnar marki sínu gegn Reggina í dag.
Hernan Crespo fagnar marki sínu gegn Reggina í dag. Getty Images

Inter Milan er með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir leiki dagsins. Hernan Crespo tryggði liðinu 1-0 sigur á Reggina en Roma burstaði Catania, 7-0.

Palmermo er í 2. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Inter, eftir óvænt tap gegn Cagliari í gær. Inter hefur 30 stig en Palermo 27. Roma kemur í 3. sæti með 26 stig en liðið gjörsigraði Catania á heimavelli sínum í dag.

Simone Perotta og Christian Panucci skoruðu tvisvar sinnum hvor fyrir Roma en hin mörkin skoruðu Vincenzo Montella, Alexandro Mancini og Francesco Totti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×