Fótbolti

Engar væntingar skiluðu okkur HM-titlinum

Marcello Lippi sagði starfi sínu sem landsliðsþjálfari Ítala lausu eftir HM.
Marcello Lippi sagði starfi sínu sem landsliðsþjálfari Ítala lausu eftir HM. AFP

Marcello Lippi, ítalski þjálfarinn sem stýrði þjóð sinni til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, segir að litlar væntingar hafi átt stærstan þátt í að Ítalir urðu heimsmeistarar. "Það var engin pressa á okkur og það hjálpaði gríðarlega," sagði Lippi við ítalska fjölmiðla í gær.

"Við höfðum unnið Hollendinga 3-1 og Þjóðverja 4-1 í vináttuleikjum fyrir HM en samt hafði fólk ekki mikla trú á því að við gætum náð langt. Fyrir vikið mættu leikmenn afslappaðri til leiks og við gátum spilað okkar fótbolta eins og við gerum best."

Lippi sagði einnig að sigurinn gegn Ástralíu í 8-liða úrslitum hafi verið vendipunkturinn í keppninni. "10 leikmenn voru eftir inni á vellinum og það stefndi allt í framlengingu. Þá kom Fabio Grosso og skoraði markið sem ég tel að hafa verið það mikilvægasta í keppninni. Þessi sigur gaf okkur mikinn andlegan styrk," sagði Lippi en ítrekaði að hann hefði sjálfur gert afar lítið til að mynda þann sterka liðsanda sem ítalska liðið þótti búa yfir á meðan HM stóð yfir.

"Leikmennirnir voru sífellt að ræða sín á milli um hvernig þetta væri tækifæri sem ekki væri hægt að láta sér úr greipum ganga. Ég þurfti ekki að minna þá á hversu gott tækifæri þetta var. Við vorum með frábært lið og mórallinn á þessum tíma var einstakur. Ég vissi alltaf að við myndum ná árangri við þessar aðstæður," sagði Lippi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×