Litháen rétt marði Argentínu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. ágúst 2008 11:00 Manu Ginobili reynir hér að komast framhjá Rimantas Kaukenas. Nordic Photos / AFP
Litháen vann góðan sigur á Argentínu, 79-75, í körfubolta karla á fyrsta keppnisdegi greinarinnar á Ólympíuleikunum í Peking. Litháen náði frumkvæðinu í leiknum strax í upphafi og lét það í raun aldrei af hendi. Munurinn á liðunum var aldrei meiri en tíu stig fyrr en í fjórða leikhluta en Litháen hafði fjögurra stiga forystu í hálfleik, 34-30. Allt útlit var fyrir að Litháen myndi ná að sigla fram úr strax í upphafi fjórða leikhlutans en þeir argentínsku neituðu að játa sig sigraða og jöfnuðu metin með því að skora ellefu stig í röð undir lok leiksins. Staðan var því jöfn þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka en Litháar náðu að skora síðustu fjögur stig leiksins og vinna, 79-75. Sigurkörfuna skoraði Linas Kleiza er hann setti niður þrist þegar tvær sekúndur voru eftir. Áður höfðu leikmenn beggja liða brennt af skotum síðustu mínútuna. Kleiza var stigahæstur með þrettán stig en Robertas Jactokas kom næstur með tólf. Hjá Argentínu var Manu Ginobili stigahæstur með nítján stig, Marcelo Nocioni skoraði fimmtán og Francisco Delfino þrettán. Þá unnu Spánverjar góðan sigur á Grikkjum, 81-66. Spánverjar eru ríkjandi heimsmeistarar og höfðu sex stiga forystu í hálfleik, 35-29. Í þriðja leikhluta náðu þeir að stinga Grikkina af en leikhlutann unnu Spánverjar með 27 stigum gegn sautján. Rudy Fernandez var stigahæstur hjá Spáni með sextán stig en næstir komu Manuel Calderon með þrettán stig og Pau Gasol með ellefu. Hjá Grikkjum var Vasileios Spanoulis stigahæstur með fimmtán stig og Dimitrios Diamantidis kom næstur með fjórtán. Önnur úrslit í körfuboltanum í nótt voru eftir bókinni. Rússland vann Íran, 71-49, þar sem Andrey Kirilenko skoraði fimmtán stig. Þá vann Þýskaland skyldusigur á Angóla, 95-66, og skoraði Dirk Nowitzky 23 stig fyrir Þjóðverjana.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira