Körfubolti

Jakob með átta stig í sigurleik

Jakob í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob í leik með íslenska landsliðinu.

Univer KSE vann sigur á Szolnoki Olaj í ungversku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær, 89-85.

Jakob Örn Sigurðarson lék í 38 mínútur í leiknum og skoraði átta stig. Hann nýtti eitt af þremur tveggja stiga skotum í leiknum en tvö af sjö þriggja stiga skotum. Þá tók hann sjö fráköst í leiknum og gaf sex stoðsendingar.

Á Spáni komst Farho Gijon aftur á topp C-deildarinnar með sigri á Alimentos de Palencia, 86-77. Logi Gunnarsson lék í átján mínútur í leiknum en náði ekki að nýta neitt af þeim fjórum skotum sem hann tók í leiknum. Hann tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

Þrjú lið eru efst og jöfn í spænsku C-deildinni með fimmtán sigurleiki af nítján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×