Erlent

Blaðamennirnir lausir

Mynd/AFP
Blaðamennirnir sem voru í haldi á Rixos hótelinu í Tripoli eru lausir úr prísundinni. Blaðamaður CNN segir á twitter-síðu sinni að þeir hafi yfirgefið hótelið í bíl nú síðdegis.

Blaðamönnunum hefur verið haldið inni á hótelinu síðustu daga af stuðningsmönnum Gaddafi.


Tengdar fréttir

Blaðamenn í stofufangelsi í Tripoli

Um 35 erlendir blaðamenn eru fastir á Rixos hótelinu í Tripoli. Hótelið er umkringt stuðningsmönnum Gaddafi sem varna blaðamönnunum útgöngu. Bardagar geisa í kring. Byssumenn eru á göngunum, leyniskyttur á þakinu. Ef þeir reyna að sleppa út er byssum beint að þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×